Síða 1 af 1

Símakaup

Sent: Fim 21. Mar 2013 13:08
af thiwas
Sælir,

Ég er að velta fyrir mér hvaða síma ég á að fá mér, það er svo mikið framboð af símum, en ég veit ekki hvað ég ætti að fá mér.

Ég held að ég hafi budgetið svona í kringum 70 þúsund. Á mjög erfitt með að réttlæta fyrir mér að kaupa dýrari síma, finnst 70 þús reyndar alltof mikið, en ég ætla að láta mig hafa það.

Með hvaða símum mæliði með fyrir -70 þúsund ??

Re: Símakaup

Sent: Fim 21. Mar 2013 13:15
af Plushy
Samsung Galaxy SII :)

Eru í kringum 70þ nýjir, samt oft til sölu hérna notaðir og ekkert að því til að spara þér smá pening, frábærir símar.

Re: Símakaup

Sent: Fim 21. Mar 2013 13:39
af Moldvarpan
https://vefverslun.siminn.is/vorur/farsimar/samsung_galaxy_siii_mini/#pv_11871


Ég fékk mér þennan síma og er mjög ánægður með hann, hann er á 69.900kr

Það fer samt soldið eftir hvað þú ert með stórar hendur, mér finnst t.d. 4" símar alveg meira en nóg. Vill ekki hafa þá persónulega neitt stærri.


Mér finnst þessir símar hrikalega slippy, svo ég pantaði mér þetta hulstur utanum hann til að gera gripið þægilegra og verja hann líka e-h. http://www.amazon.co.uk/dp/B009R5XMXG/ref=pe_217191_31005151_3p_dp_1

Re: Símakaup

Sent: Fim 21. Mar 2013 17:38
af steinarorri
Ef þú getur keypt Nexus 4 úti í BNA þá geturðu keypt hann á 50 þúsund þar.
Hann er frábær :)

Re: Símakaup

Sent: Fim 21. Mar 2013 17:43
af danheling92
steinarorri skrifaði:Ef þú getur keypt Nexus 4 úti í BNA þá geturðu keypt hann á 50 þúsund þar.
Hann er frábær :)


Sammála, Nexus er álíka jafn góður og S3, bara miklu ódýrari. Ég fæ mér þannig síma mjög bráðlega. Hann kostar bara 87 þúsund í versluninni "Heimkaup" eins og stendur.

Re: Símakaup

Sent: Fim 21. Mar 2013 19:00
af Halli13
Það er Galaxy S III á tilboði inná aha.is núna, er reyndar á 88k sem er aðeins yfir budgetið þitt en fannst vert að benda á hann engu að síður.