Síða 1 af 1

Galaxy S3 finnur ekki sim

Sent: Sun 17. Mar 2013 22:57
af gufan
Sælir

Búinn að eiga Galaxyinn minn í 4 mánuði og ekki feilpúst þanga til í morgun þegar hann hætti að finna simkortið ...

það var kveikt á símanum og ekkert verið að gera í honum þegar þetta poppaði upp allt í einu

Buinn að prufa annað simkort og það er sama sagan

er eitthver sem hefur hugmynd hvað skal gera ?

Re: Galaxy S3 finnur ekki sim

Sent: Mán 18. Mar 2013 09:37
af KermitTheFrog
Endurræsa símann? Fara með hann þangað sem þú keyptir hann?

Re: Galaxy S3 finnur ekki sim

Sent: Mán 18. Mar 2013 10:56
af gufan
Ég er að sjálfsögðu búinn að prufa endurræsa hann

já ætli ég neyðist ekki til þess ... ætlaði að athuga hvort einhver hefði lent í svipuðu og kynni eitthverja galdralausn :Þ

Re: Galaxy S3 finnur ekki sim

Sent: Mán 18. Mar 2013 11:20
af KermitTheFrog
Getur prófað að hreinsa snerturnar með contact spreyi, efast samt um að það virki þar sem þetta hefur gerst allt í einu.

Getur líka athugað hvort kortið sitji ekki almennilega í.

Re: Galaxy S3 finnur ekki sim

Sent: Mán 18. Mar 2013 11:40
af Danni V8
Myndi byrja á því að tékka á SIM kortinu, prófa annað t.d.

Síðan fara með símann ef það er ennþá allt í klessu.