Síða 1 af 1

Fartölvukaup, Dreamware málið? Viðbótatryggingar?

Sent: Fim 14. Mar 2013 20:11
af einsiboy
Sælir,

Hp fartölvan mín var að bila, ekki orðin tveggja ára en hún var keypt í Danmörku og tölvan þarf að fara út ef ég á að sækja ábyrgðina. Þetta er skjárinn sem er farinn og kostar 30þús að gera við hér með vinnu skilst mér, sem er ekki svo slæmt. Hinsvegar var tölvan ekki dýr á sínum tíma og ég tel það ekki vera þess virði.

Þannig ég enda líklegast á að kaupa mér nýja, og er að spá í dreamware tölvunum.
Hvernig reynslu hefur fólk af þeim hér?

Verðbilið sem ég hafði hugsað mér er sirka 80þús - 120 þús og það eru þrjár tölvur eins og er sem mér lýst ágætlega á:

Toshiba Satellite C850-19D fartölva
Asus X54C-SX292V fartölva
15.6" Dreamware W251EUQ i5/500GB/8GB

Ég er ekki sérfræðingur í vélbúnaði, en mér sýnist Dreamware tölvunar vera á mjög góðu verði miðað við vélbúnað. Þannig ef gæði og þjónusta er góð, þá er það besti kosturinn sem ég hef séð held ég. Ef einhver hér getur bent á önnur góð kaup er það líka vel þegið.

En þá að öðru, ég hef undanfarið alltaf tekið svona viðbótartryggingu. Eru þær þess virði, þ.e. miðað við bara venjulega ábyrgð?

Re: Fartölvukaup, Dreamware málið? Viðbótatryggingar?

Sent: Sun 17. Mar 2013 19:50
af einsiboy
Engar reynslusögur af Dreamware tölvum?
Bara hvort fólk sé almennt ánægt með gæðin og hvort þjónustan sé góð ef eitthvað kemur upp á.

Re: Fartölvukaup, Dreamware málið? Viðbótatryggingar?

Sent: Mið 17. Apr 2013 17:36
af Gylfiþ
Ég er sáttur með mína dreamware. og það hefur ekkert komið uppá hjá mér