Síða 1 af 1

HTC One

Sent: Þri 19. Feb 2013 23:27
af Tesy
HTC kynnti í dag nýjan síma sem þeir kalla HTC One!

Mynd

Skjár: 1080 x 1920 pixels, 4.7 inches (~469 ppi pixel density)
Storage: 32/64GB
CPU: Snapdragon 600 Quad-core 1.7 GHz Krait 300
RAM: 2GB

Fleiri specs og myndir hér: http://www.gsmarena.com/htc_one-5313.php

Hvað finnst ykkur um hann og hvað haldiði að hann myndi kosta hérna á Íslandi? :megasmile

Re: HTC One

Sent: Þri 19. Feb 2013 23:28
af AntiTrust
Fíla lúkkið, litaskiptinguna. Ef hann væri 4.3" væri ég slefandi. Á örugglega eftir að slaga í 130þúsund þegar hann dettur fyrst í verslanir, 110-115 eftir nokkra mánuði, mín ágiskun amk.

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 00:00
af hkr
Áhugavert að HTC ákvað að fara úr 8MP myndavélum niður í 4MP, þeir vilja meina að þessi myndavél hleypi inn meira ljósi.

Verð að segja þessi sími lúkkar ótrúlega vel og ekki skemmir HD skjárinn.

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 00:23
af chaplin
AntiTrust skrifaði:Fíla lúkkið, litaskiptinguna. Ef hann væri 4.3" væri ég slefandi. Á örugglega eftir að slaga í 130þúsund þegar hann dettur fyrst í verslanir, 110-115 eftir nokkra mánuði, mín ágiskun amk.

Sammála, mér finnst einmitt 3,5 örlítið of lítið, 4,3 fullkomið og 4,7 pínulítið of stórt. Og eins með öll þessu nýju flagship, þá mun hann örugglega kosta um 130.000 kr þegar hann kemur út, allavega ekki minna.

hkr skrifaði:Áhugavert að HTC ákvað að fara úr 8MP myndavélum niður í 4MP, þeir vilja meina að þessi myndavél hleypi inn meira ljósi.

Verð að segja þessi sími lúkkar ótrúlega vel og ekki skemmir HD skjárinn.

Mér er í raun alveg sama hvort myndavélin sé 4 eða 40MP, á meðan myndin er skýr og góð. Þessi á að geta tekið 300% betur lýstar myndir við dimmar aðstæður, einmitt eitthvað sem S2 getur ekki gert. 2688 x 1520 er alveg miklu meira en nóg.

Mér er svo einnig alveg sama um að ekki sé hægt að fjarlægja rafhlöðuna, ekkert microSD er smá ókostur en ég hef aldrei þurft á því að halda með S2, 16 Gb hafa dugað.

Ef það verður hægt að roota þennan síma eru allar líkur að ég versli hann.

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 11:27
af blitz
Þetta er klárlega næsta uppfærsla.

Engin þörf á Micro SD.

Er ennþá að rúlla á 2,5 ára HTC Desire sem hefur þjónað mér mjög vel - hef verið að bíða eftir verðugum replacement. Sýnist að þessi muni kosta um 100k úti - maður pikkar hann upp næst þegar maður stekkur út :-)

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 11:29
af Swooper
Ekkert SD-slot = dealbreaker fyrir mig, eiginlega. Sense 5.0 virðist líka vera alveg glatað - enginn homescreen, bara eitthvað bölvað "blinkfeed". o.O

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 11:47
af blitz
Hvað í fjandanum eruði að geyma á símunum ykkar sem tekur meira pláss en ~64 gig?

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 11:52
af Swooper
blitz skrifaði:Hvað í fjandanum eruði að geyma á símunum ykkar sem tekur meira pláss en ~64 gig?

Tónlistarsafnið mitt er ~70GB núna og sístækkandi, get ekki beðið eftir að geta geymt það allt á sama 128GB sd-kortinu og hætt að nota iPodinn minn...

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 12:20
af Bjarni44
Swooper skrifaði:

Google Music?

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 12:20
af Tesy
Swooper skrifaði:Ekkert SD-slot = dealbreaker fyrir mig, eiginlega. Sense 5.0 virðist líka vera alveg glatað - enginn homescreen, bara eitthvað bölvað "blinkfeed". o.O

Það er reyndar homescreen með widget og allt sem venjulegi android er með. Þú swipar bara til vinstri og þá færðu homescreen eins og android hefur alltaf verið með. Mér finnst nýji sense vera geggjaður!

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 12:30
af Swooper
Bjarni44 skrifaði:Google Music?

Nei takk, vil ekki þurfa að treysta á 3G til að streyma tónlistinni minni, fyrir utan hvað það er dýrt nema maður sé hjá Tal (sem ég er ekki). Vil bara geta verið með þetta allt á mér eins og ég er vanur.
Tesy skrifaði:Það er reyndar homescreen með widget og allt sem venjulegi android er með. Þú swipar bara til vinstri og þá færðu homescreen eins og android hefur alltaf verið með. Mér finnst nýji sense vera geggjaður!

Hmm, já, fattaði það eftir að ég var búinn að pósta þessu áðan. Skal viðurkenna að hönnunin er flott (ólíkt fyrri útgáfum Sense), og ef það er hægt að slökkva á þessu feedi þá get ég samþykkt að það sé vel nothæft. :)

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 13:59
af ponzer

Swooper þú þarft ekki að treysta 3g frekar en þú vilt Google Music er líka í boði offline.. Skoðaðu það betur því þetta er þvílík snilldar þjónusta sem kostar ekkert

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 15:20
af AntiTrust
Ég nota Subsonic fyrir tónlistina mína. Synca því sem ég vill synca fyrir offline usage (virkar bæði á 3G / Wifi) og streymi svo því sem ég þarf. Borga e-rn 2þúskall fyrir 5GB og finnst það bara ekkert of dýrt, dugar mér yfirleitt fyrir music/video streymi og af og til hotspot usage.

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 15:24
af worghal
og Apple kærir eftir 3, 2, 1...

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 17:14
af Orri
hkr skrifaði:Áhugavert að HTC ákvað að fara úr 8MP myndavélum niður í 4MP, þeir vilja meina að þessi myndavél hleypi inn meira ljósi.

Mér fannst Engadget orða þetta vel:
Engadget skrifaði:We'll take four million 2µm pixels over eight million 1.1µm pixels any day, but we think it's going be an uphill battle for HTC to educate the average consumer.

Heimild og nánari upplýsingar um þessa myndavél

Re: HTC One

Sent: Mið 20. Feb 2013 17:18
af chaplin
Orri skrifaði:
Engadget skrifaði:We'll take four million 2µm pixels over eight million 1.1µm pixels any day, but we think it's going be an uphill battle for HTC to educate the average consumer.

Hah, vel orðað!

Re: HTC One

Sent: Fim 07. Mar 2013 20:00
af birgirdavid
Þessi verður klárlega fyrir valinu í staðinn fyrir Iphone 5/5S
Virkilega flott hönnun.

Re: HTC One

Sent: Fös 08. Mar 2013 17:21
af Gilmore
Fer hann ekkert að koma til landsins?

Re: HTC One

Sent: Fös 08. Mar 2013 18:21
af vesley
Gilmore skrifaði:Fer hann ekkert að koma til landsins?

Hann er ekki kominn neins staðar út en á að gera það seinna í Mars.

Re: HTC One

Sent: Lau 09. Mar 2013 09:46
af audiophile

Re: HTC One

Sent: Sun 21. Apr 2013 17:29
af Tesy
Jæja.. Ætlar þessi sími aldrei að koma til Íslands? Er einhver búin að heyra eitthvað um hvenær hann kemur?

Re: HTC One

Sent: Sun 21. Apr 2013 18:04
af KermitTheFrog
Swooper skrifaði:Ekkert SD-slot = dealbreaker fyrir mig, eiginlega. Sense 5.0 virðist líka vera alveg glatað - enginn homescreen, bara eitthvað bölvað "blinkfeed". o.O

Hefðiru horft á allt myndbandið sem þú póstaðir sæirðu á ca 2:30 hvernig hann swipar til hliðar og fær venjulega Android homescreen lookið þar sem þú getur haft apps og widgets, ásamt því að bæta við fleiri homescreens. (edit: sá að þú hefur tekið eftir því)

Og btw, hlustaru á öll þessi 70 GiB á daily basis?

Tónlistarsafnið mitt rétt kemst inn á Google Music, ~20.000 lög og örugglega meira en 100 GiB. Google Music finnst mér snilld. Öll helsta tónlistin er í offline cache (sem rúmast fyrir ásamt öðru á 16 GB innra minninu í símanum) og svo streymi ég annað í gegnum WiFi eða 3G þegar á því er þörf. Það eru WiFi hotspots á mjög mörgum stöðum svo 3G notkun þarf ekki að vera mikil.

Kaupi mér oftast 500 MB hjá Nova á mánuði og tekst sjaldan að klára það í net + sync + tónlist.

Nú þegar Spotify er komið til Íslands fer þörfin á því að geyma tónlistina á símanum að fjara enn meira út, nema það helsta bara.

Re: HTC One

Sent: Sun 21. Apr 2013 18:22
af hkr
KermitTheFrog skrifaði:Kaupi mér oftast 500 GB hjá Nova á mánuði og tekst sjaldan að klára það í net + sync + tónlist.

Dayyyuumm 500 GB? :shock:

Re: HTC One

Sent: Sun 21. Apr 2013 18:24
af KermitTheFrog
hkr skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:Kaupi mér oftast 500 GB hjá Nova á mánuði og tekst sjaldan að klára það í net + sync + tónlist.

Dayyyuumm 500 GB? :shock:

Lagað...