Síða 1 af 1

Val á fartölvu, veit ekkert um tölvur ... :/ Hjálp...

Sent: Þri 15. Jan 2013 20:51
af evah
halló :)
Mig vantar smá hjálp, er að spá í að kaupa mér fartölvu og er "on a budget" auk þess að vera tækniheftasta manneskja veraldar (engar ýkjur) Hún má kosta í kringum 100.000kr.
Ég vil tölvu sem er ekki þung (geng með hana í skólann) hefur góða batterísendingu (innstungur eru sjaldséðar í skólastofum skólans míns) og er með 13-14 tommu skjá (á núna 10 tommu, alltof lítið)
Ég mun nota tölvuna til að glósa, setja tónlist á I-podinn minn (um leið og ég læri að downloada lögum og setja inn á hann) hangsa á netinu (face, bubbles og svoleiðis) og svo geymsla fyrir myndirnar mínar.
Ss ég þarf ekki öfluga leikjtölvu með massívum skjá neitt slíkt...

Er spennt fyrir þessum:
http://budin.is/index.php/tolvubunadur/ ... p-red.html
http://budin.is/index.php/tolvubunadur/ ... docka.html
http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 1,560.aspx

Ég ss skil ekki muninn og fatta ekki afhverju það er svona mikill verðmunur ... :catgotmyballs

En þessar eru ekkert möst, bara þær sem ég er skotin í akkúrat þessa stundina.. :) Það eru kannski aðrar sem passa betur við það sem ég þarf.
Bkv.Eva

Re: Val á fartölvu, veit ekkert um tölvur ... :/ Hjálp...

Sent: Fim 17. Jan 2013 09:57
af Halli25
aðallega örgjörvin sem er aðal munurinn á þessu vélum i3 er mun öflugri en AMD E

Gætir líka spáð í þessa hérna:
http://tl.is/product/toshiba-satellite- ... tolva-hvit

Re: Val á fartölvu, veit ekkert um tölvur ... :/ Hjálp...

Sent: Fim 17. Jan 2013 11:22
af mundivalur
Ekki notaða ?

Re: Val á fartölvu, veit ekkert um tölvur ... :/ Hjálp...

Sent: Fim 24. Jan 2013 21:47
af evah
Takk fyrir svörin, ég var ekki búin að sjá þau :)
Með toshiba tölvuna ég var búin að sjá hana og finnst hún einmitt líka mjög flott.
Með að kaupa notaða þá bara hreinlega þori ég því ekki. Finnst allir segja að fartölvur endist yfir höfuð ekkert það lengi og fyndist því sérlega fúlt að splæsa í notaða og brenna mig á því að hún gefi hugsanlega upp öndina stuttu eftir, eða að ég þyrfti fljótlega að kaupa annað batterý eða eh slíkt...
Meðað við mína (ó)heppni í fartölvu málum þá myndi ég pottþétt kaupa svoleiðis tölvu :/