Síða 1 af 1

SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 10:21
af jobbim
Sælir

Var að velta fyrir mér hvorn síman þið mynduð mæla með. Ég veit að S3 er vinsælli sími en ég er að spá hvort einhver hafi reynslu af OneX og einnig hvor þeirra sé með betri vélbúnað.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 11:35
af audiophile
OneX er fínn sími en hann er með Tegra3 kubbasetti (sama og í Nexus 7 spjaldtölvunni) sem er slakara og orkufrekara en Exynos settið í S3. Samt mjög öflugur sími.
Skjárinn er mjög flottur og almennt talinn besti LCD skjár í síma í dag. S3 er með AMOLED sem er önnur tækni og mjög persónubundið hvort fólki finnist betra.
OneX er er ekki með útskiptanlega rafhlöðu og er ekki með stækkanlegt minni, tvennt sem S3 hefur framyfir.

S3 er tæknilega fullkomnari, með betri myndavél, stækkanlegur og almennt mjög góður sími, en mér persónulega finnst hönnunin á OneX flottari og skjárinn er geggjaður. OneX er 10þ kr ódýrari en hann er hættur og OneX+ kominn í staðinn sem er sami sími eitthvað aðeins yfirklukkaður og annað smotterí.

S3 fyrir þá sem vilja spila öruggt og OneX fyrir þá sem vilja vera öðruvísi. :)

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 12:09
af Kristján
Hérna er spec vs spec frá gsmarena, að mínu mati þeir bestu sem gera reviews og prufanir.
http://www.gsmarena.com/compare.php3?id ... hone2=4320

Herna er s3 og onex settir saman á móti hvor öðrum.
http://www.gsmarena.com/samsung_galaxy_ ... ew-759.php

Svo mæli ég með að fara í símabúð og skoða og meðhöndla símana, hátækni ætti að vera með Onex og flest allar aðrar búðir með S3

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 13:06
af marri87
Spurning hvort þú skoðir Nexus 4, svakalega flottur sími á rosalega góðu verði.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 16:07
af jobbim
takk fyrir upplýsingarnar ég á svolítið erfitt með valið á milli þessara en ég er farinn að hallast að s3.
Hvernig er með LG? eru þeir ekki með allt niðrum sig, ég hef ekki heyrt alltof góða hluti um þá síma.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 18:31
af marijuana
Ekki fá þér LG, mín reynsla af þeim var bið í yfir ár eftir uppfærslu af Android.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 18:41
af oskar9
marijuana skrifaði:Ekki fá þér LG, mín reynsla af þeim var bið í yfir ár eftir uppfærslu af Android.


Nexus 4 ætti samt að fá allar uppfærslur strax því þetta er Google síminn, er það ekki rétt ?

Annars lítur Nexus 4 mjög vel út, keypti mér S2 í sumar, hefði farið í Nexusin ef ég hefði beðið lengur

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 19:08
af hfwf
oskar9 skrifaði:
marijuana skrifaði:Ekki fá þér LG, mín reynsla af þeim var bið í yfir ár eftir uppfærslu af Android.


Nexus 4 ætti samt að fá allar uppfærslur strax því þetta er Google síminn, er það ekki rétt ?

Annars lítur Nexus 4 mjög vel út, keypti mér S2 í sumar, hefði farið í Nexusin ef ég hefði beðið lengur


Nexus 4 er flaggskip gooogle atm og fær allar uppfærslur strax.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 19:40
af konice
Hvernig er með LG optimus 4X hef verið að skoða hann.
Var flaggskip LG í sumar að mér skyllst.
Virtist hafa camera vandamál en sýnast þaug vera leysst. http://optimusforums.com/threads/optimus-4x-hd-camera-auto-focus-issue-fix.96/
Nexusin er flottur(eiginlega bara rosa græja) en ekki minniskort og ekki útvarp off fyrir marga.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 20:28
af Tesy
Ég myndi taka Nexus 4 ef ég væri að fara kaupa síma núna.. Pure android UI, þetta er google sími sem þýðir að hann ætti að fá allar uppfærslur, betri specs en bæði OneX og S3. Eini gallinn er bara að það er ekki hægt að stækka minnið.

En ef það er S3 á móti OneX þá myndi ég taka S3 þó að mér finnist OneX flottari. Afhverju? Léttara að selja S3 heldur en OneX þegar þú villt fá þér nýjan síma :)

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 20:38
af audiophile
LG 4X er mjög flottur fyrir verðið. Sami speccar og OneX nema 20þ ódýrari.

Nexus 4 er bara geggjaður. Hann er rosaleg hraður og einn flottasti sími sem ég hef handleikið, en mig grunar að hann sé frekar brothættur og þarf að passa hann vel.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 21:13
af Kosmor
Fékk mér Nexus 4 í síðustu viku.
Hef átt nokkur android tæki, en þetta er bara allt allt allt annað. Allt svo smooth.

Skjárinn er með svona eitthvað extra feeling. Miklu "mýkri" en ég hef kynnst. og brúnirnar eru allt of töff.

Get virkilega mælt með honum.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 21:17
af intenz
Ég hef enga reynslu af OneX en ég hef töluverða reynslu af S3. Ég hef heyrt marga kvarta yfir batterísendingu á OneX og mér finnst TouchWiz skemmtilegra heldur en Sense UI þannig ég ákvað að hoppa á S3 og sé sko alls ekki eftir því.

En varðandi Nexus 4 þá myndi ég persónulega aldrei fá mér LG síma, jafnvel þótt þetta sé Google flaggskip. Ég hef heyrt frá flest öllum eigendum LG síma að þetta sé mesta drasl sem til er. Þannig ég treysti ekki LG og mun því aldrei fá mér LG síma.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 21:48
af valdij
Aldrei fá þér LG síma, end of story.

Rusl, drasl og hræ. Sama þótt þetta sé Google dæmi.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 22:06
af Ulli
One x er með samning við Drop box og fylgir með 24gb.

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 22:14
af Cascade
Eg fekk 50gb I 2 ar a dropbox med minum s3

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 22:22
af intenz
Ulli skrifaði:One x er með samning við Drop box og fylgir með 24gb.

50GB Dropbox fylgir með S3 :)

Re: SIII vs. OneX

Sent: Sun 13. Jan 2013 22:54
af jobbim
ég held það endi í s3 hjá mér sem er merkilegt því ég er enginn samsung maður, minn fyrsti droid sími var wildfire s og er mjög hrifinn af honum en langar að fara í einhverja alvöru græju. Ég var búinn að lesa helling um þessa síma en hélt bara að þetta hype í krngum s3 væri kannski aðalega frá fólki sem hefði ekki reynslu af öðru.
Ég get ekki lýst því hversu þakklátur ég er fyrir innlegg ykkar hérna en þetta hefur hjálpað mér að stíga vonandi í rétta átt :D

En þetta með LG þá er ég nokkuð sammála intenz þar, ég hef bara heyrt slæma hluti og verið bent á að forðast eins og heitan eldinn. Myndi ekki þora að taka séns á svona dýrum síma.