Síða 1 af 1
4G kerfi
Sent: Fös 11. Jan 2013 20:20
af konice
Sælt veri fólkið.
Veit einhver hvaða 4G kerfi verður á íslandi.
Maður en að spá í síma og vill nátúrulega að hann verði nothæfur í meira en kanski 2 ár.
(Eða er galaxy s3 eini android 4g síminn.)
Re: 4G kerfi
Sent: Fös 11. Jan 2013 20:24
af hfwf
4g hér heima verður á 800mhz og 1800mhz, sgs3 er ekki eini síminn en síminn sem er seldur hér heima eins og er er ekki 4g-vænn.
Re: 4G kerfi
Sent: Fös 11. Jan 2013 20:42
af Frantic
Símar sem eru með 3G munu alveg geta tengst ennþá þó svo 4G kerfið verður sett upp.
Þeir eru alveg nothæfir en geta auðvitað ekki náð fullum 4G hraða sem er að mínu mati algjörlega tilgangslaust.
Hef allavega ekki fengið þörf að fá uppí 50Mb hraða á símanum hingað til.
Re: 4G kerfi
Sent: Fös 11. Jan 2013 23:55
af capteinninn
Frantic skrifaði:Símar sem eru með 3G munu alveg geta tengst ennþá þó svo 4G kerfið verður sett upp.
Þeir eru alveg nothæfir en geta auðvitað ekki náð fullum 4G hraða sem er að mínu mati algjörlega tilgangslaust.
Hef allavega ekki fengið þörf að fá uppí 50Mb hraða á símanum hingað til.
Þetta er náttúrulega bara næsta skref í að henda út landlínunetinu, frekar að vera með 4g eða næsta Gen eftir það sem blanket-ar allt landið
Re: 4G kerfi
Sent: Lau 12. Jan 2013 00:59
af tdog
hannesstef skrifaði:Þetta er náttúrulega bara næsta skref í að henda út landlínunetinu, frekar að vera með 4g eða næsta Gen eftir það sem blanket-ar allt landið
Þú ert vonandi að grínast, ef ekki, hættu þá að bulla.
Re: 4G kerfi
Sent: Lau 12. Jan 2013 01:13
af capteinninn
tdog skrifaði:hannesstef skrifaði:Þetta er náttúrulega bara næsta skref í að henda út landlínunetinu, frekar að vera með 4g eða næsta Gen eftir það sem blanket-ar allt landið
Þú ert vonandi að grínast, ef ekki, hættu þá að bulla.
Haha ég veit ekkert um það, veit bara að mér finnst frekar pirrandi að ná ekki þráðlausu neti allstaðar heima því speedtouch draslið drífur ekki nema hálfa leið.
Þetta yrði samt góð lausn fyrir símafyrirtækin því þá myndu þeir losna við að þurfa að láta notendur fá routera og annað sem hinn almenni notandi þarf að hafa í dag, þannig gætu þeir sparað sér gífurlegan kostnað við að kaupa alla þessa routera og vera með lager af þeim og fleira.
Hvað finnst þér vont við það ef þetta verður raunin í framtíðinni?
Re: 4G kerfi
Sent: Lau 12. Jan 2013 12:25
af tdog
Í fyrsta lagi er það ekki vandamál þjónustuaðilans þíns að skaffa þér þráðlausu neti, þjónustuaðilinn skaffar þér nettengingu og það er síðan undir þér komið að sjá um restina, t.d að kaupa þér þráðlausann aðgangspunkt.
Kostnaðurinn við að setja upp landlægt 4G net er ábyggilega í tugveldi miðað við þann kostnað að skaffa notendum routera, og notendur koma áfram til með að þurfa tæki sem breyta 4G í ethernet.
Re: 4G kerfi
Sent: Lau 12. Jan 2013 12:37
af hfwf
talandi um 4g
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... g_uppbodi/hvað í bölvanum ætlar 365 miðlar að gera með 4g tíðni??
Re: 4G kerfi
Sent: Lau 12. Jan 2013 13:11
af berteh
Kannski að bjóða upp á sjónvarp/vod þar sem dsl línur ná ekki og eða sleppa við dsl línur þegar menn vilja bara sjónvarp og ekkert internet
Re: 4G kerfi
Sent: Lau 12. Jan 2013 13:13
af hfwf
berteh skrifaði:Kannski að bjóða upp á sjónvarp/vod þar sem dsl línur ná ekki og eða sleppa við dsl línur þegar menn vilja bara sjónvarp og ekkert internet
mmmm verður gaman að sjá kostnaðinn af því ef svo