Síða 1 af 1

Skipta um skjá í s3

Sent: Þri 08. Jan 2013 16:50
af MatroX
Sælir
hvaða fyrirtæki hérna heima eru að skipta um skjá í s3?

Re: Skipta um skjá í s3

Sent: Þri 08. Jan 2013 17:17
af hfwf
Minn var keyptur hjá NOVA. s2 þeas hann þurfti að fara í gegnum NOVA svo verkstæðið tæki við símanum.

Re: Skipta um skjá í s3

Sent: Þri 08. Jan 2013 17:19
af Beatsuka
Þú verður skilst mér að fara með símann í viðgerð í gegnum það símafyrirtæki sem þú verslaðir hann af.. ef þú verslaðir hann af netinu gætiru prófað að fara með hann í gegnum samsungsetrið.
Verkstæðið fyrir Samsung er ekki með neina afgreiðslu. þeir bara sækja eða fá símana senda frá söluaðilum og senda þá aftur þangað að viðgerð lokinni.

Re: Skipta um skjá í s3

Sent: Þri 08. Jan 2013 17:27
af MatroX
Hann var verslaður í gegnum buy.is og þeir segja að kostnaðurinn við þetta sé 50-60þús

Re: Skipta um skjá í s3

Sent: Þri 08. Jan 2013 17:31
af Beatsuka
ertu með innbúskaskó? þá lækkar þetta aðeins.. þótt að sjálfsábyrgð á þeim sé nú oftast skyhigh.. en hæðsta held ég að sé nú bara 35k
en það kæmi mér ekkert á óvart þetta verð. ég þarf að láta skipta um chrome rammann á mínum þar sem ég misti hann í gólfið og rammin er beiglaður... og það kostar mig 10-15þús

Re: Skipta um skjá í s3

Sent: Þri 08. Jan 2013 18:37
af KermitTheFrog
Held að allir samsung símar endi á verkstæðinu hjá Tæknivörum.

Re: Skipta um skjá í s3

Sent: Mið 16. Jan 2013 18:01
af joi123
Ég þurfti að skipta um glerið á mínum Samsung Galaxy Note 2 keyptur í nova. Nova sagði við mig að þetta myndi taka 2 - 3 vikur og gátu ekki gefið upp verð, þannig ég bað þá að prenta út ábyrgðar skirteini og fór með hann í samsung setrið. Þar sagði hann að þetta myndi taka max 4 daga og kosta 10k. En það endaði á að taka 1 dag og kostaði 9500 frábær þjónusta og það besta er að bæði nova og samsungsetrið senda síman í Tæknivörur. Ég held ég versli aldrei við nova aftur.
Glerskiptin voru eitthvað ódýrari því hann var keyptur hérna heima annars hefði þetta kostað 30k - 40k minnir mig að hann hafi sagt.