Síða 1 af 1
kaupa fartölvu.. eitthvað vit í þessu?
Sent: Lau 21. Ágú 2004 19:51
af DaRKSTaR
copy/paste af tölvulistanum, líst vel á speccana og verðið..
Fartölva - Acer Aspire 2012WLCi ferðatölva
Örgjörvi - 1.5 GHz Intel Pentium M - Centrino með 1MB cache
Vinnsluminni - 512 MB DDR 333MHz 200pin - Stækkanlegt í 1GB
Harðdiskur - 40 GB Ultra ATA100 harðdiskur 4200 RPM
Combodrif - 24x Skrifari sem er líka DVD geisladrif
Skjár - 15.4" Widescreen WXGA með 1280x800dpi og 16.7 milljón liti
Skjákort - 64MB ATI Mobility Radeon 9700 skjákort m/ TV-Out
Hljóð - Innbyggðir stereo hátalarar og hljóðnemi
Lyklaborð - 85 lykla lyklaborð í fullri stærð
Mús - Innbyggð snertinæm músarstýring
Netbúnaður - 10/100 netkort og 56K mótald
Þráðlaust - Innbyggt þráðlaust netkort 54Mbps 802.11g
Stýrikerfi - Windows XP Professional
Annað - 3xUSB 2.0, FireWire, Parallel, Infrared, Type II PC Card o.fl.
Annað - Aðeins 3.0Kg, W 360 x D 273 x H 33,5mm
Rafhlaða - Li-ion rafhlaða, ending allt að 6 tímar
Annað - Innbyggður kortalesari fyrir flestar gerðir minniskorta
Verð aðeins kr. 172.690.
Eða staðgreitt kr. 159.900. með vsk
er að leita að vél sem ræður við flest alla leiki og má ekki fara yfir 160þús kallinn
flestar aðra vélar sem eru svipaðar hef ég séð á um 200 þús.. þetta ekki bara það ódýrasta sem gerist í þessu og eru þessar vélar nokkuð slæmar ?
Sent: Lau 21. Ágú 2004 20:01
af Daz
Skoðaðu MSI tölvurnar hjá þeim líka. Bara 9600 skjákort, en betri harður diskur og nýrri örgjörvar.
Færð 1,7 mhz dothan + 512 mb minni + 40 gb 5400 rpm disk á 158 þúsund (án stýrikerfis).
Sent: Sun 22. Ágú 2004 01:25
af nomaad
Þetta var tölvan sem ég var búinn að ákveða að kaupa, en ég endaði með Mitac 8050d frá Hugveri. Skólatilboð 2 var bara of gott:
1.7 GHz Pentium M (Dothan)
512MB 333 MHz minni
60GB 5400 RPM HD (16MB buffer)
Mobility Radeon 9700 128MB
15.4" (1280x800) skjár
Windows XP Home
~170þús. Killer tölva. Mundu bara að setja upp Omegadriverana
Sent: Sun 22. Ágú 2004 01:39
af Daz
En það er mikill hávaði í mitac vélunum, miðað við aðrar ferðavélar í það minnsta. Mjög mikilvægt að athuga það áður en vélin er keypt.
Sent: Mán 23. Ágú 2004 11:13
af Icarus
nomaad skrifaði:Þetta var tölvan sem ég var búinn að ákveða að kaupa, en ég endaði með Mitac 8050d frá Hugveri. Skólatilboð 2 var bara of gott:
1.7 GHz Pentium M (Dothan)
512MB 333 MHz minni
60GB 5400 RPM HD (16MB buffer)
Mobility Radeon 9700 128MB
15.4" (1280x800) skjár
Windows XP Home
~170þús. Killer tölva. Mundu bara að setja upp Omegadriverana
mitac =
NO!!!!!!!
Sent: Mán 23. Ágú 2004 14:11
af Zkari
Afhverju ekki Mitac?
Sent: Mán 23. Ágú 2004 14:31
af dabb
hávaði og leiðindi
Sent: Þri 24. Ágú 2004 08:06
af Icarus
Zkari skrifaði:Afhverju ekki Mitac?
ef þú ætlar að kaupa þér mitac geturðu alveg eins verslað 100% við bt og búist við áreiðanlegum vörum og góðri þjónustu
mitac er bara rusl.... well known fact.
Acer - Asus - Thinkpad- Hp - Dell.
Sent: Þri 24. Ágú 2004 09:49
af axyne
mitac er alls ekki drasl tölvur.
mitac tölvurnar sem notuðu desktop p4 örgörva hitnuðu mikið og voru háværar.
þannig fengu mitac tölvurnar vont orðspor yfir sig.
Sent: Þri 24. Ágú 2004 11:55
af Daz
axyne skrifaði:mitac er alls ekki drasl tölvur.
mitac tölvurnar sem notuðu desktop p4 örgörva hitnuðu mikið og voru háværar.
þannig fengu mitac tölvurnar vont orðspor yfir sig.
Og núverandi mitac tölvur eru LÍKA mjög háværar, ég er búinn að skoða þær. Það merkilegasta er að tölvurnar með intel extreme skjákortunum og centrinu settinu er líka háværar, en þær ættu einmitt ekki að þurfa mikla kælingu.
Sent: Þri 24. Ágú 2004 12:35
af nomaad
Daz skrifaði:Og núverandi mitac tölvur eru LÍKA mjög háværar, ég er búinn að skoða þær.
Jebb, það er smá hávaði í minni, en ég myndi ekki segja að það væri óþolandi. Viftan fer í gang við og við í Windows þegar mikið er í gangi en maður heyrir varla í henni í stórri skólastofu. Auk þess hverfur hljóðið alveg ef maður er t.d. bara að læra með tónlist í eyrunum. Ég sætti mig við hávaða á móti góðum hraða og (relatively) ódýrri tölvu.
Sent: Þri 24. Ágú 2004 13:19
af Daz
nomaad skrifaði:Jebb, það er smá hávaði í minni, en ég myndi ekki segja að það væri óþolandi. Viftan fer í gang við og við í Windows þegar mikið er í gangi en maður heyrir varla í henni í stórri skólastofu. Auk þess hverfur hljóðið alveg ef maður er t.d. bara að læra með tónlist í eyrunum. Ég sætti mig við hávaða á móti góðum hraða og (relatively) ódýrri tölvu.
Málið er bara að Mitec tölvurnar eru allar mjög háværar miðað við aðrar tölvur. Og í stórri skólastofu þegar er alger þögn getur hávær tölva verið mjög hvimleið, t.d. í fyrirlestrarsal. En þær eru mjög öflugar miðað við verð, ég neita því ekki.
Þessi "hávaði" er engu að síður eitthvað sem kemur aldrei fram í upptalningu á "speccum", svo að mér finnst mikilvægt að allir þeir sem eru að skoða mitec tölvur fái að vita af þessu og geri helst samanburð við t.d. MSI, ASUS, ACER eða HP tölvurnar.
Sent: Þri 24. Ágú 2004 13:26
af gnarr
það er bara málið að modda. rífa þessa drasl viftu úr og setja eithva ðbetra í staðin
Sent: Þri 24. Ágú 2004 13:27
af Daz
gnarr skrifaði:það er bara málið að modda. rífa þessa drasl viftu úr og setja eithva ðbetra í staðin
Endilega bentu mér/okkur á leið til þess, því ef það er hægt að gera þessar mitec hljóðlátar þá er ég að fara að kaupa mér eina!
Sent: Þri 24. Ágú 2004 13:50
af gnarr
það er hægt að gera allt. ég hef aldrei moddað mitac. en það ætti ekki að vera neitt hræðiolega erfitt.
Sent: Þri 24. Ágú 2004 17:10
af axyne
gnarr skrifaði:það er hægt að gera allt. ég hef aldrei moddað mitac. en það ætti ekki að vera neitt hræðiolega erfitt.
ég myndi halda að vera hræðilega erfitt
setja 2 mm álplötu undir botninn á fartölvunni og mixa heatpipes á örgjörvann/örgjörvaheatsinkið. síðan finna þynnstu 80/120 mm viftu sem þú finnur í miðjuna
æji ekki lesa bullið í mér.
Sent: Mið 25. Ágú 2004 10:35
af nomaad
Já ég er reyndar fyllilega sammála þér Daz, það stendur hvergi við neinar fartölvur hvað það er mikill hávaði í þeim. Það væri fínt að hafa einhverja standard mælingu eins og dB í metersfjarlægð eða eitthvað svoleiðis (ca. jafnlangt og hausinn á manni er frá tölvunni). Sumir sætta sig við viftuhljóð við og við en þetta fer óendanlega í taugarnar á sumum.
Sent: Þri 31. Ágú 2004 22:31
af BerserK
Ég var að fá svona acer aspire 2012 wlci tölvu sem að ég fékk á 149 þús hjá tölvulistanum af því að ég er viðskiptavinur íslandsbanka, þá fær maður 10 þús kr. tilboð.
Ég mæli með þessari tölvu. Flott lúk og geggjaður skjár plús það að hún er góð við leikjavinnslu og hún ræður við doom 3, call of duty og battlefield svo að eitthvað sé nefnt.
Sent: Mið 08. Sep 2004 16:06
af ganjha
ASUS A3000N er flott og hljóðlát vél.
Ekta í skólann
http://www.bodeind.is/tilboda.html
Sent: Lau 16. Okt 2004 00:59
af Icarus
nomaad skrifaði:Daz skrifaði:Og núverandi mitac tölvur eru LÍKA mjög háværar, ég er búinn að skoða þær.
Jebb, það er smá hávaði í minni, en ég myndi ekki segja að það væri óþolandi. Viftan fer í gang við og við í Windows þegar mikið er í gangi en maður heyrir varla í henni í stórri skólastofu. Auk þess hverfur hljóðið alveg ef maður er t.d. bara að læra með tónlist í eyrunum. Ég sætti mig við hávaða á móti góðum hraða og (relatively) ódýrri tölvu.
þetta er svo heimskulegt... þetta smá hjóð er alveg gífurlega pirrandi í skólastofu !