Síða 1 af 1
Kaup á Fartölvu
Sent: Lau 21. Ágú 2004 17:27
af Guffi
jæja ég er spá í að kaupa mér Fartölvu og er með 2 sem langar að láta ykkur meta
og kanski nokkrar spurningar.
þessi:
http://www.ok.is/fast/?show=vorurdetail&id=DE264A og þessi:
http://www.ok.is/fast/?show=vorurdetail&id=DJ319A.
hverja skyldi ég splæsa á og langar að spyrja um muninn á skjákortunum er þetta ithver munur 64MB ATI Mobility Radeon (notar vinnsluminnið) á þessari seinni og ATI Mobility Radeon 7500 4X AGP með 32MB DDR VRAM á þeirri fyrru? hver er munurin endilega bendið mér á það seigja mér hvur tölvan er betri
Sent: Lau 21. Ágú 2004 18:40
af Daz
Hvor er betri? Fer mikið eftir því hvað þú vilt gera við tölvuna þína sérstaklega þar sem nx9005 kostar 160 þús en Compaq Evoin kostar 120 þús. Ég er dálítið hrifinn af Compaq tölvunni en það eru 2 ansi leiðinlegir gallar við hana, ekkert þráðlaust netkort og ekki geislaskrifari, en maður fær ekki mikið meira fyrir peninginn.
Lýstu því nánar hvað þú ætlar að gera við fartölvuna og þá er hægt að hjálpa þér meira.
Sent: Lau 21. Ágú 2004 18:43
af Guffi
ég myndi vilji nota hana í skólan og geta leikið mér aðeins
í tölvuleikja bransanum annað er það ekki
Sent: Lau 21. Ágú 2004 19:53
af Daz
Taka þá frekar tölvu með Pentium M örgjörva (Centrino pakkanum öllum helst, sem Compaq tölvan hefur ekki, ekkert þráðlaust net á henni). Og ef þú vilt komast í leiki þá viltu skoða tölvur með Radeon 9600-9700 kortum, eins og t.d. MSI tölvurnar í tölvulistanum.
Ég er ekki að vinna í Tölvulistanum, alveg satt. Ég er bara svo fjandi hrifinn af þessum tölvum
Sent: Lau 21. Ágú 2004 20:58
af Guffi
Daz skrifaði:Taka þá frekar tölvu með Pentium M örgjörva (Centrino pakkanum öllum helst, sem Compaq tölvan hefur ekki, ekkert þráðlaust net á henni). Og ef þú vilt komast í leiki þá viltu skoða tölvur með Radeon 9600-9700 kortum, eins og t.d. MSI tölvurnar í tölvulistanum.
Ég er ekki að vinna í Tölvulistanum, alveg satt. Ég er bara svo fjandi hrifinn af þessum tölvum
9600-9700 þer eru bara svo dýrar tölvur með því
ég get ekki eytt meira en svona 130ús held ég skelli mér bara á Compaq Evo N620c PM 1.4G 14.1 lýst mjög vel á hana
Sent: Lau 21. Ágú 2004 21:03
af Daz
Ódýrasta MSI tölvan kostar 139 þúsund.
Sent: Lau 21. Ágú 2004 21:04
af Guffi
Daz skrifaði:Ódýrasta MSI tölvan kostar 139 þúsund.
myndiru vilja vera svo góður að linka
Sent: Lau 21. Ágú 2004 21:07
af Zkari
og ekki geislaskrifari
afhverju ætti maður að þurfa geislaskrifara?
Sent: Lau 21. Ágú 2004 21:39
af Daz
Ekki nauðsyn að hafa geislaskrifara (sagði það aldrei) en það getur aftur á móti verið svolítið pirrandi að hafa ekki auðvelda leið við að koma gögnum af tölvunni (þó að usb minnislyklar séu nú að verða algengari).
Link á MSI tölvurnar hjá tölvulistanum?
http://www.tolvulistinn.is kannski?