Bilun í 3G kerfi Nova??
Sent: Sun 30. Des 2012 15:10
Ég tók eftir því seinustu helgi að ég gat ekki hringt né tekið á móti símtölum og það var eins og ég væri á reikisvæði... Og þetta er búið að vera svona síðan, Var þá staddur á Akureyri og núna er ég kominn til Keflavíkur og þetta er enn svona. Stillti símann bara á GSM kerfið og hann virkar þannig. Er einnig með númer frá Vodafone sem aðalnúmer og sá sími er alltaf í 3G sambandi. Langaði bara að forvitnast hvort það sé eitthvað vandamál hjá Nova