Síða 1 af 1

SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Sun 18. Nóv 2012 23:35
af hug-a-bug
Ég er með Galaxy Note, keyptan í sumar. Í gær fór hann allt í einu að vera lengi að hlaða, og ef ég nota hann á meðan hann er í hleðslu þá klárast batteríið, sem var ekki áður (náði fullri hleðslu þó ég væri að hlaða ). Veit einhver hvað þetta gæti verið?

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 02:04
af Swooper
Gæti verið eitthvað issjú með hleðsluportið. Er hann í ábyrgð? Skelltu honum þá á verkstæði og láttu tékka á þessu. Mjög ólíklegt að þetta sé hugbúnaðarthing (geri ráð fyrir að þú sért búinn að restarta honum, taka batteríið úr osfrv).

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 03:07
af hug-a-bug
Búin að restarta og taka batteríið úr. Síminn er keyptur í Póllandi, svo ég hef ekki hugmynd hvort hann er í ábyrgð hér (gáfulegt, ég veit). Var búin að reyna að gúggla vandamálið og þetta virðist þekkt hjá Note, en misvísandi upplýsingar og ég ekki alveg tilbúin að.treysta hvaða dúdda sem er :-P

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 09:21
af hug-a-bug
Prófaði annað hleðslutæki og komst að því að þetta er hleðsluportið. Hann hleður ef ég held við tengið. Veistu hvort það er mikið og dýrt mál að gera við?

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 12:33
af Swooper
hug-a-bug skrifaði:Búin að restarta og taka batteríið úr. Síminn er keyptur í Póllandi, svo ég hef ekki hugmynd hvort hann er í ábyrgð hér (gáfulegt, ég veit).

Ef hann er keyptur utan norðurlandanna má Samsung umboðið hér ekki taka við honum til að gera við, svo nei, hann er ekki í ábyrgð.

Ég lenti í veseni með hleðsluportið á mínum SGS2 sem er keyptur í Bretlandi. Fór með hann í verkstæði á Eiðistorgi (Seltjarnarnesi). Man ekki hvað það heitir, en þeir gerðu við hann fyrir 5000-kall.

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 17:52
af hug-a-bug
Swooper skrifaði:

Takk kærlega. Ætla að reyna að sjá hvort þetta séu nokkuð óhreinindi fyrst og tékka svo á þessu.

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 20:43
af hug-a-bug
Swooper skrifaði: Ég lenti í veseni með hleðsluportið á mínum SGS2 sem er keyptur í Bretlandi. Fór með hann í verkstæði á Eiðistorgi (Seltjarnarnesi). Man ekki hvað það heitir, en þeir gerðu við hann fyrir 5000-kall.

Lýstu það sér eins og ég lýsi hér að ofan og helst viðgerðin vel? Getur verið að verkstæðið hafi verið unlock.is?

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Mán 19. Nóv 2012 21:18
af Swooper
hug-a-bug skrifaði:
Swooper skrifaði: Ég lenti í veseni með hleðsluportið á mínum SGS2 sem er keyptur í Bretlandi. Fór með hann í verkstæði á Eiðistorgi (Seltjarnarnesi). Man ekki hvað það heitir, en þeir gerðu við hann fyrir 5000-kall.

Lýstu það sér eins og ég lýsi hér að ofan og helst viðgerðin vel? Getur verið að verkstæðið hafi verið unlock.is?

Það lýsti sér ekki nákvæmlega eins, nei. Byrjaði þannig að síminn datt beint úr ~90% hleðslu niður í 0%, svo eftir það hélt hann alltaf að hann væri í hleðslu minnir mig og afhlóðst óvenju hratt. Viðgerðin virðist hafa tekist vel, það hefur ekki verið neitt vesen síðan (gerðist í... mars eða eitthvað á þessu ári). Var búinn að gúgla þetta og það var víst eitthvað af SGS2 seldir með gölluðum hleðsluportum, gæti vel verið að það sama eigi við um Note.

Edit: Jú, unlock.is passar.

Re: SG Note - vesen með hleðslu - hjálp?

Sent: Þri 20. Nóv 2012 23:40
af hug-a-bug
K, takk aftur :-)