Síða 1 af 2

Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 13:22
af intenz
http://bits.blogs.nytimes.com/2012/11/1 ... page-turn/

Á ekki orð yfir þessu.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 13:39
af AntiTrust
Akkúrat þegar maður heldur að Apple geti ekki sokkið dýpra.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 13:42
af GuðjónR
Jahérnahér...

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 13:42
af vesley
AntiTrust skrifaði:Akkúrat þegar maður heldur að Apple geti ekki sokkið dýpra.


Nákvæmlega. Og hinn almenni notandi er farinn að taka vel eftir þessu núna. Farinn að taka eftir því hvað fólk er farið að verða þreytt á Apple.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 13:49
af intenz
"Apple, why?!"

- "Cause fuck you, that's why"

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:13
af Bjosep
Ætli það megi láta síðuna flettast úr efra horninu ?

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:17
af Klemmi
Bjosep skrifaði:Ætli það megi láta síðuna flettast úr efra horninu ?


Það flettir enginn heilvita maður þannig, ertu eitthvað klikkaður?

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:22
af appel
Að fletta síðum hefur verið til lengi, bæði í raunheimum og í hugbúnaði.

Það að Apple geti patentað slíkt sýnir í raun hvað þessi patent löggjöf er fáránleg. Allir ættu að hunsa þetta.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:22
af skoffin
Bjosep skrifaði:Ætli það megi láta síðuna flettast úr efra horninu ?

Það er annað patent þar. Tvö í viðbót við að fletta til baka.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:24
af appel
Ætli þeir séu búnir að patenta skriflegt mál?

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:33
af hfwf
Hvaða heilvitamaður flettir á þennan veg, frá neðst hægri, ég fletti frá efst hægri. Real mans way!

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:54
af tdog
Það er ekki Apple sem á sökina, heldur einkaleyfakerfið í heild sinni. Það er svo mikil fásinna á hverju er hægt að fá einkaleyfi.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 14:57
af AntiTrust
En þá spyr maður, afhverju virðist Apple vera eitt af fáum fyrirtækjum sem sækja um svona absúrd einkaleyfi.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:02
af tdog
Þeir hafa áttað sig á því að þetta er hægt.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:03
af KermitTheFrog
Svo er spurning af hverju þeir fá öll þessi einkaleyfi...

Það geta ekki allir hjá þessari blessuðu einkaleyfastofnun eða hvaðeina sem ákveður þetta að vera svona miklir þöngulhausar.

Held ég flytji til BNA og fái einkaleyfi á því í hvaða röð ég set morgunkornið út í Súrmjólkina mína.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:06
af BjarniTS
Þið skulið bara fà ykkur apple vöru ef að þið viljið fullkomið stýrikerfi/vélbúnað
Þið hinir sem eruð blankir getið fengið ykkur eldri týpur af iphone , iPad o.s.f hehe eða android

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:10
af Nördaklessa
ég á ekki orð...

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:10
af Jimmy
BjarniTS skrifaði:Þið skulið bara fà ykkur apple vöru ef að þið viljið fullkomið stýrikerfi/vélbúnað
Þið hinir sem eruð blankir getið fengið ykkur eldri týpur af iphone , iPad o.s.f hehe eða android


Blatant drasl troll spotted.

Minnir að ég hafi einhvern tíma lesið að IBM væri að reyna að fá patent á það að fá patent.. Það væri bara ekkert minna absúrd en þetta.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:24
af AntiTrust
Jimmy skrifaði:Minnir að ég hafi einhvern tíma lesið að IBM væri að reyna að fá patent á það að fá patent.. Það væri bara ekkert minna absúrd en þetta.


Kæmi mér ekki á óvart, IBM hefur verið 20 ár á toppnum í röð í USA yfir flest patent.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:29
af gardar
tdog skrifaði:Það er ekki Apple sem á sökina, heldur einkaleyfakerfið í heild sinni. Það er svo mikil fásinna á hverju er hægt að fá einkaleyfi.



bingó!

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 15:37
af AntiTrust
Er þetta samt ekki eins og að segja að það sé vegagerðinni að kenna að ökumaður hafi keyrt útaf afþví að hann keyrði á hámarkshraða, þar sem þeir ákvarða hámarkshraðann?

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 16:31
af gardar
Umsóknir renna nú ekki óséðar í gegn, það er nefnd sem fer yfir umsóknir og samþykkir eða hafnar.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 16:40
af bAZik
Only in America..

Finnst samt rounded corners patentið heimskulegra.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 16:44
af AntiTrust
gardar skrifaði:Umsóknir renna nú ekki óséðar í gegn, það er nefnd sem fer yfir umsóknir og samþykkir eða hafnar.


Pointið mitt er að fyrirtækið er ekki óvart að sækja um þetta. Varla hægt að firra fyrirtækið ábyrgð af umdeilanlegum ákvörðunum bara afþví að þær eru mögulegar.

Re: Nýjasta patentið hjá Apple

Sent: Sun 18. Nóv 2012 16:49
af KermitTheFrog
gardar skrifaði:Umsóknir renna nú ekki óséðar í gegn, það er nefnd sem fer yfir umsóknir og samþykkir eða hafnar.


Því er þetta líka meingallað kerfi eða hreinlega óhæft fólk í þessum nefndum ef það þekkir ekki muninn á uppfinningu og bulli.