Síða 1 af 1

Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 02:25
af KristoferK
Er í fartölvu hugleiðingum þessa stundina. Þannig er mál með vexti að tíma mínum er skipt milli tveggja heimila, á öðrum stað hef ég góða borðtölvu (sem þyrfti þó að uppfæra bráðlega) og á hinum gamla fartölvu. Er þ.a.l. búinn að vera skoða þann möguleika að versla mér öfluga leikjafartölvu til að taka á milli. Það er ekki í boði að eiga né reka borðtölvu á báðum stöðum nota bene.

Ég veit að margir eru skeptískir á 17" "fartölvur" en þær koma engu að síður til greina þar sem ég hygg ekki á mikil ferðalög með hana. Þetta er fyrst og fremst til að geta spilað tölvuleiki á 2 heimilum.

Búinn að vera vafra mikið undanfarið, aflandi upplýsinga, og hef dáldið verið að skoða þessar "high end" vélar frá fyrirtækjum á borð við MSI og Alienware en, sem algjör amatör í þessum efnum, langar mig í innslag varðandi það hvort það sé eitthvað vit í að vera borga 300 þúsund eða meira fyrir fartölvu og ef ekki hvað annað getur fullnægt leikjaþörfinni? Ég þarf alls ekki endilega að eiga það allra besta, en ég vil þó geta spilað þessa nýjustu og helstu leiki í góðum gæðum.

Öll hjálp yrði vel þegin :)

Re: Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 07:15
af upg8
ASUS ROG fartölvur eru víst með þeim betri leikja fartölvum. 15-17" skjáir á þeim.

Gætir samt örugglega keypt mjög góða og meðfæranlega µATXm jafnvel itx tölvu og verið með miklu stærri skjái á báðum stöðum fyrir þann pening sem færi í góða fartölvu ;) (Þá þyrftir þú bara að þvælast með tölvukassann en ekki skjáinn) og auðveldara að uppfæra seinna án mikils tilkostnaðar.

Re: Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 08:13
af Magni81
Ég mæli með ASUS g75 vélunum. Er sjálfur með G74SX og er alveg helsáttur með hana.

Re: Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 10:40
af Olli
tek undir mini-turn og skjá fyrir mismuninn

Re: Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 11:14
af Helfari
Er það ekki rétt skilið hjá mér að MSI eru fremstir í skjákortum fyrir fartölvur. Hafa þeir ekki verið leiðandi á markaðnum á þessum high end leikjavélum?

Re: Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 11:46
af olafurfo
Helfari :

það hefur verið mikið um kvartanir gagnvart skráningu á tölvunni (þ.e.a.s. skrá sig á msi með að þú sért eigandi tölvunnar fyrir costumer support og þess háttar) Fólk þarf að skanna inn nótu með undirskrift og senda þeim sem getur tekið sinn tíma að fá í gegn..

Þetta er helsta vesenið sem ég hef heyrt um MSI lappana og verð ég að segja.. það er ekki mikið ^^,

Re: Er eitthvert vit í þessum "high end gaming" fartölvum?

Sent: Fös 16. Nóv 2012 13:03
af Helfari
KristoferK varðandi leikjafartölvur þá kvaddi ég turnvélina fyrir 6 árum og hef verið að spila á fartölvum síðan. Fínt líka þegar maður fer upp í sveit og svona þá er maður með allt með sér.