Síða 1 af 1

Google Nexus 7 heima eða úti???

Sent: Lau 20. Okt 2012 03:09
af gazzi1
Sælir....mig dauðlangar í nexus 7 vélina en hún kostar 60 þús hérna heima 16 gb í tölvulistanum...úti i danmörku kostar hún um 2000 dkr sem er um 43 þúsund ísl kr...málið er að ég er að mer finnst 60 þus vera of mikið fyrir hana og ég er að fara til danmerkur um jólinn og get keypt hana þá...aftur á móti er mjög gott að hafa ábyrgðina hérna heima, ( 2ár á vél og 1 ár á batteríi ) og svo get ég einnig tekið hana á raðgreiðslum hérna heima sem væru 5500 á mánuði í heillt ár sem að ég mundi ekki finna neitt fyrir en væri þá samt að borga i heildina um 65 þús...er búinn að velta þessu soldið mikið fyrir mér en kemst ekki að neinni niðurstöðu þannig að mer langar að spyrja ykkur hér hvað munduð þið gera??

Re: Google Nexus 7 heima eða úti???

Sent: Lau 20. Okt 2012 09:21
af capteinninn
Bíða myndi ég segja, fer samt bara eftir hversu mikið þig langar í græjuna.

Annars hef ég heyrt einhvertímann að maður eigi að kasta upp á svona hluti með pening, áður en hann lendir vonar maður að hann lendi á annarri hvorri hliðinni og þá veit maður hvað maður vill frekar.

Ég á svona Nexus 7 og er mjög ánægður með hana, eina sem ég hefði viljað hafa á henni er 3G en maður getur skítmixað það með því að nota tethering á símanum sínum.

Re: Google Nexus 7 heima eða úti???

Sent: Lau 20. Okt 2012 11:12
af steinarorri
Biddu aðeins,32gb útgáfan sem kemur um mánaðamótin verður a sama pening og 16gb, allavega i BNA. Mun kosta 250usd.

Re: Google Nexus 7 heima eða úti???

Sent: Lau 20. Okt 2012 13:07
af gazzi1
já oki snilld, vissi ekki að það væri að koma út 32gb útgáfa...