Síða 1 af 1

Windows Marketplace og fleira á Íslandi

Sent: Mið 03. Okt 2012 20:55
af capteinninn
Keypti mér Lumia 710 í London í gær.

Loggaði mig inná Xbox Live accountinn minn þegar síminn bað um þær upplýsingar og síminn segir að Marketplace sé ekki í boði fyrir mitt svæði. Hvaða rugl er það?

Er kominn aftur til Íslands en á eftir að sækja íslenskt sim-kort og er bara með t-mobile kortið í enn sem komið er en er ekki einhver leið að komast fram hjá þessu, trúi því varla að íslenskt símafyrirtæki séu að selja síma sem eru ekki með neinu marketplace-i.

Spurning hvort ég geti búið bara til annan account á símanum fyrir marketplace-ið eða eitthvað en mig langar samt að geta notað Xbox Live forritið og fleira á símanum.

Einhver með ráð ?

Edit*
Vá strax búinn að finna grein um að marketplace-ið sé opið á Íslandi, ætla að búa til nýjan account og ekki nota Xbox Live accountinn sem aðal-account á símanum. Xbox Live accountinn minn er skráður í UK svo ég geti notað Gold áskrift, skil ekki afhverju marketplace-ið segi að mitt region sé ekki supported.

Edit 2*
Bjó til nýjan account skráðan á Ísland og loggaði mig inná hann í símanum og fæ ennþá að marketplace sé ekki supported

Re: Windows Marketplace og fleira á Íslandi

Sent: Mið 03. Okt 2012 21:14
af þorri69
fékk lumia 900 fyrir 2-3 vikum, marketplace hefur virkað hjá mér frá byrjun, á íslenskum account-i :)

Re: Windows Marketplace og fleira á Íslandi

Sent: Mið 03. Okt 2012 21:31
af upg8
Er það ekki þannig að market place sé supported en ekki Xbox Live?

Re: Windows Marketplace og fleira á Íslandi

Sent: Fim 04. Okt 2012 01:43
af Orri
Ég er búinn að eiga Lumia 900 síðan hann kom út hér á landi (keypti fyrsta eintakið hjá Nova :megasmile) og það er lítið mál að skipta á milli Marketplace.
Ferð bara í Region settings og stillir á það land sem þú vilt fá Marketplace í.
Ég er með bandaríska Marketplace-ið núna og líkar betur við það en það íslenska, það kom mér á óvart hvað mörg forrit eru region-locked/specific...

Re: Windows Marketplace og fleira á Íslandi

Sent: Fim 04. Okt 2012 10:14
af capteinninn
Orri skrifaði:Ég er búinn að eiga Lumia 900 síðan hann kom út hér á landi (keypti fyrsta eintakið hjá Nova :megasmile) og það er lítið mál að skipta á milli Marketplace.
Ferð bara í Region settings og stillir á það land sem þú vilt fá Marketplace í.
Ég er með bandaríska Marketplace-ið núna og líkar betur við það en það íslenska, það kom mér á óvart hvað mörg forrit eru region-locked/specific...


Er búinn að breyta Region format, System locale og Browser & Search Language yfir í Iceland en samt virkar ekki Marketplace.

Hvar stilli ég þetta?

Re: Windows Marketplace og fleira á Íslandi

Sent: Fim 04. Okt 2012 12:49
af Orri
hannesstef skrifaði:Er búinn að breyta Region format, System locale og Browser & Search Language yfir í Iceland en samt virkar ekki Marketplace.

Hvar stilli ég þetta?

Hmm, nú er ég ekki viss.
Ég var reyndar með íslenskan account til að byrja með og breytti yfir í US.. ætti samt ekki að skipta neinu máli held ég?