Síða 1 af 1

ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 11:22
af viggib
Sælir.
Er einhver hér sem hefur reynslu af þessum síma? Þetta yrði þá minn fyrst sími með Android kerfi.

https://vefverslun.siminn.is/farsimar/f ... ufactor=10

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 11:45
af Daz
Hann er með frekar lítið innbyggt minni sem gæti orðið pirrandi. Jafnvel þó þú getir geymt flest forrit á SD korti, þá eru nokkur sem þurfa þetta innbyggða minni og það er fljót að fara. Annars ertu örugglega að fínann síma fyrir peninginn. Forverinn, ZTE Blade (I) fékk fína umsögn, einmitt vegna fínna spekka miðað við lágt verð. Það þýðir samt ekkert að bera hann saman við Iphone 5 eða Galaxy S(1,2 eða 3).

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 11:51
af playman
Ég á ZTE Blade 1, er nokkuð ánægður með hann, þetta er fínn android sími fyrir þetta verð.
Þetta er kanski einginn dualcore samsung sími, hann er ekkert rosalega hraðvirkur, en hefur dugað mér.

Skjárinn er furðulega góður, í responding/touch og myndgæðum, einnig er myndavélin furðulega góð.

Það helsta sem ég set út símann er hversu lítill innri diskurinn er, eftir nokkur forrit 2-3 leiki þá fer hann að hvarta undann plásleisi, þó
svo að ég sé búin að færa öll forrit sem ég get inná SD kortið.
Blade 2 er með stærri innri disk en Blade 1. þó ég haldi að það sé bara 50mb munur. (Síminn er búin að taka út gamla Blade)

Þetta miðast allt við ZTE Blade 1, hef ekki skoðað Blade 2 en mun hugsanlega skoða hann og fjárfesta í honum.

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 12:18
af Swooper
playman skrifaði:Ég á ZTE Blade 1, er nokkuð ánægður með hann, þetta er fínn android sími fyrir þetta verð.
Þetta er kanski einginn dualcore samsung sími, hann er ekkert rosalega hraðvirkur, en hefur dugað mér.

Skjárinn er furðulega góður, í responding/touch og myndgæðum, einnig er myndavélin furðulega góð.

Það helsta sem ég set út símann er hversu lítill innri diskurinn er, eftir nokkur forrit 2-3 leiki þá fer hann að hvarta undann plásleisi, þó
svo að ég sé búin að færa öll forrit sem ég get inná SD kortið.
Blade 2 er með stærri innri disk en Blade 1. þó ég haldi að það sé bara 50mb munur. (Síminn er búin að taka út gamla Blade)

Þetta miðast allt við ZTE Blade 1, hef ekki skoðað Blade 2 en mun hugsanlega skoða hann og fjárfesta í honum.

Samanburður hér.

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 12:35
af viggib
Takk fyrir.

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 12:55
af playman
Spurning hvort að maður bíði kanski eftir Blade III :-k
Hann hefur allaveganna 2.5gb innraminni :happy
http://www.gsmarena.com/zte_blade_iii-4983.php

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 13:10
af frr
Það má losna við flest minnisvandamálin með því að roota símann, fá sér stórt minniskort og partitiona hluta af því sem ext3 og ná sér í forrit sem heitir link2sd. Með því er hægt að færa forrit úr innra minni yfir í ext partitionina.

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 13:17
af tlord
frr skrifaði:Það má losna við flest minnisvandamálin með því að roota símann, fá sér stórt minniskort og partitiona hluta af því sem ext3 og ná sér í forrit sem heitir link2sd. Með því er hægt að færa forrit úr innra minni yfir í ext partitionina.


síminn er líklega ekki lengur í ábyrgð eftir þetta, eða hvað?

Re: ZTE Blade II

Sent: Mán 01. Okt 2012 13:56
af Swooper
tlord skrifaði:
frr skrifaði:Það má losna við flest minnisvandamálin með því að roota símann, fá sér stórt minniskort og partitiona hluta af því sem ext3 og ná sér í forrit sem heitir link2sd. Með því er hægt að færa forrit úr innra minni yfir í ext partitionina.


síminn er líklega ekki lengur í ábyrgð eftir þetta, eða hvað?

Jú, það að roota brýtur EKKI lögbundna tveggja ára ábyrgð á raftækjum keyptum hérlendis nema hægt sé að sanna það að þú hafir valdið skaða á tækinu með því. Brýtur hins vegar ábyrgð frá framleiðanda, sem er það eina sem þú hefur ef þú keyptir símann erlendis.