Síða 1 af 1
Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Fim 20. Sep 2012 23:57
af thiwas
Nú er ráð að spyrja ykkur sérfræðingana um spjaldtölvur,
mig vantar spjaldtölvu til að geta lesið bækur, pdf-a, geta glósað inn í þær ofl. ásamt þessu venjulegra netflakki,
Hver er aðalmunurinn á iPad og öðrum spjaldtölvum, fyrir utan að þurfa að nota iTunes og fleira fyrir iPadinn,
Nú eru iPadinn og Samsung Galaxy padinn á svipuðu verði, hver er t.d. munurinn á þeim....
og með hverju mynduð þið mæla ?
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 12:03
af AronOskarss
Ég er að nota kindle 7" í skólanum, ekkert mál að skrifa inn á pdf skjöl og gera glósur. Mér finnst mjög gott að skrifa á 7" skjáinn. Er svo að nota camscanner ef mig vantar að koma blöðum yfir í pdf.
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 13:32
af Joi_BASSi!
sjálfur á ég asus transformer tf300t sem að hefur leist af heimilistölvuna í öllu nema skyrim.
hún getur gert allt sem að þú nefndir hér að ofan beint ür kassanum. nema pdf þá þarftu að installa adobe readersem að er mjôg einfalt með google playstore.
en einsog allar sjaldtölvur er vonlaust að reyna ad skrifaeinhvað af viti eins og sjá mà á þessum texta.
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 14:10
af AronOskarss
Ég set bara upp lyklaborð og dictionary sem virkar, og þá skrifa ég ekki neitt verr en ég geri við venjulega tölvu, kannski aðeins hægar en bara smá.
Það skal samt taka fram að ég er búinn að setja upp custom rom á kindilinn sem er bara eins og venjulegt Android ICS.
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 16:50
af Alex97
ég mæli með tf300 var að fá mér svoleigðis en fékk líka svona dokku með
http://tolvutek.is/vara/asus-transforme ... fhlodu-bla þá er þetta bara eins og fartölva og rosa þæginlegt að skrifa í henni
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 16:56
af AronOskarss
Ennþá meiri snild, er svo hægt að breyta hallanum á þessu eitthvað?
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 17:07
af KermitTheFrog
Þetta virkar alveg eins og fartölvu með snertiskja bara. Helvíti töff.
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Lau 06. Okt 2012 17:45
af Alex97
það er hægt að opna og loka bara eins og á fartölvu og svo bætir dokkan líka sd korta sloti og usb tengi og auka 5 klst af bateríi
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Sun 07. Okt 2012 13:19
af AronOskarss
Nice, ég mæli með ASUS, líka kominn 7" frá Google og Asus.. Nexus 7 hún er mjög góð.
Re: Fyrirspurn um spjaldtölvur...
Sent: Sun 07. Okt 2012 13:28
af Alex97
já held að nexus 7 sé mesta bang for the buck enda með tegra 3 örgjörva og jellibean