Síða 1 af 1

óviss með tölvukaup!

Sent: Mið 12. Sep 2012 01:46
af chickflick
ég ætla að kaupa mér nýja tölvu þar sem mín er alveg á seinasta snúningi en ég hef bara voða lítið vit á tölvum. ég er samt búin að finna eina sem
mér finnst virka góð, ég veit bara ekki hvort ég sé að fá nógu mikil gæði fyrir peninginn. ég spila mest sims og diablo og er oft með margt í gangi í einu
og tölvan þarf að vera frekar snögg þar sem ég er frekar óþolinmóð manneskja. ég get eytt allt að 140k í tölvuna og veit að ég vil fá mér acer tölvu (hefur
virkað vel fyrir aðra sem ég þekki). þessi sem ég fann mér kostar bara 114 en ég held að ég þurfi ekki betri en þessa. ég veit bara að i5 er betra en i3 og
að 600gb er ágætt geymslupláss í tölvunni. ég vil líka hafa 15-16 tommu skjá. Ég vona að þið getið sagt mér hvort þessi sé nóg eða bent mér þá á aðrar
sem eru betri fyrir mig.

ég er að hugsa um þessa:

http://www.computer.is/vorur/7122/

Re: óviss með tölvukaup!

Sent: Mið 12. Sep 2012 08:44
af Daz
SSD. Miðað við þessa notkunarlýsingu viltu SSD disk* í vélina, 120 gb ætti að sleppa miðað við að bara Diablo og Sims og svo geturðu keypt þér utanáliggjandi flakkara til að geyma "efnið". Alltaf hægt að athuga hvort það sé mögulegt að uppfæra svona tilboð með öðrum diskum.

*Solid State Disc disk!!

Re: óviss með tölvukaup!

Sent: Mið 12. Sep 2012 11:57
af Halli25
Hérna er önnur sem ég tel vera mun betri og er með sér skjákorti sem er betra í leiki:
http://tl.is/vara/25748
nýrra chipset og hraðara minni auk þess sem það er stakur 4GB kubbur í henni svo ekkert mál að uppfæra minnið seinna meir.

Re: óviss með tölvukaup!

Sent: Mið 12. Sep 2012 19:55
af Davidoe
Ef þú ert ekki að flýta þér að fá nýja fartölvu gætiru athugað hvort einhver búðanna gæti nálgast þessar.

Kannski þessi acer og þessi diskur http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16820227792
Eða þessi: http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16834215435 með þessum disk: http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16820227791

Og kaupa síðan einhverja hýsingu fyrir diskin sem þú mundir taka úr vélinni. http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=147&products_id=2184 til dæmis.

Ég myndi skoða þessa http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16834215552 og versla þá meira minni http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16820148492 og stærri diskinn.

Veit ekki hvernig þetta er reiknað en samkvæmt http://tollur.is/extern.asp?cat_id=1700 þá myndi ódýrari fartölvan og stærri SSD diskurinn og tveir minniskubbar kosta um ~115.000kr

Mig fyndist ekki út úr kú að athuga hvort einhver búð gæti fengið þessar fartölvur og þær kostuðu ekki meir en 140.000kr. Kannski er ég að reikna eitthvað vitlaust veit ekki.

Hérna geturu séð muninn á örgjövunum http://processors.findthebest.com/compare/24-39-830/Intel-i5-2430M-vs-Intel-i3-2370M-vs-Intel-i5-3210M, þó hin sé betri er hin kannski allveg nóg.