Síða 1 af 1

Nexus 7

Sent: Mán 27. Ágú 2012 23:44
af capteinninn
Var að fá í hendurnar Nexus 7 spjaldtölvu sem er awesome.

Er að spá samt eitt, það er lokað fyrir kaup á bókum og tímaritum en er ekki hægt að proxy bypassa það einhvernveginn ?

Re: Nexus 7

Sent: Mán 27. Ágú 2012 23:45
af intenz
Flottur, á svona græju einmitt. En ég kaupi bara bækurnar í gegnum Amazon (Kindle appið)

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 00:11
af capteinninn
intenz skrifaði:Flottur, á svona græju einmitt. En ég kaupi bara bækurnar í gegnum Amazon (Kindle appið)


Já en mig langar í Wired á þessa græju, er hún líka á Kindle ?

Næ ekki heldur að færa bækur yfir á græjuna til að lesa í Kindle eða Google Books, er ég alveg steiktur eða ?

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 01:58
af Hjaltiatla
Hvaðan ertu að kaupa Nexus 7 og hvað kostar hún ?

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 08:46
af arnif
ég á tvær...

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 11:09
af wicket
Rootar tækið, setur upp DROIDVPN appið og Market Access appið og þa ertu kominn með US Play Store og getur keypt bækur, þætti og bara allt.

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 19:23
af capteinninn
wicket skrifaði:Rootar tækið, setur upp DROIDVPN appið og Market Access appið og þa ertu kominn með US Play Store og getur keypt bækur, þætti og bara allt.


Spurning hvort ég geri það bara, vill samt bara svona no-fuss græju, t.d. er hún mjög hröð núna og spurning ef ég roota hvort ég þurfi að setja aðra gerð af android á hana sem er ekki jafn sérstillt fyrir græjuna eins og kerfið sem er á henni núna.

Hversu mikið vesen er að gera þetta annars?

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 19:34
af wicket
Þú ert eitthvað að misskilja þetta :)

Að roota gefur þér bara admin réttindi á tækið. Root aðgangur = Administrator aðgangur.

Ert ekki að breyta neinu í stýrikerfinu eins og tækið kemur úr kassanum þó að þú rootir.

Re: Nexus 7

Sent: Þri 28. Ágú 2012 19:47
af capteinninn
wicket skrifaði:Þú ert eitthvað að misskilja þetta :)

Að roota gefur þér bara admin réttindi á tækið. Root aðgangur = Administrator aðgangur.

Ert ekki að breyta neinu í stýrikerfinu eins og tækið kemur úr kassanum þó að þú rootir.


Okei sweet, einhver aðferð sem er betri en annar að gera þetta ?

Spurning líka hvort það sé hægt að gera þetta ókeypis að vera með vpn eða proxy í BNA ?

Re: Nexus 7

Sent: Mið 29. Ágú 2012 00:39
af gazzi1
Hvar keyptuð þið þessar Nexus vélar og hvað kostuðu þær ykkur samtals?

Re: Nexus 7

Sent: Mið 29. Ágú 2012 21:42
af intenz
gazzi1 skrifaði:Hvar keyptuð þið þessar Nexus vélar og hvað kostuðu þær ykkur samtals?

Buy.is - 60 þús

Re: Nexus 7

Sent: Fim 30. Ágú 2012 17:07
af gazzi1
intenz skrifaði:
gazzi1 skrifaði:Hvar keyptuð þið þessar Nexus vélar og hvað kostuðu þær ykkur samtals?

Buy.is - 60 þús


Já vissi af þessu verði á buy.is....finnst þetta bara allt of mikið...hef heyrt að hún verði á um 40 þús ísl kr í t.d danmörku og fleirri löndum...eru menn að kaupa þetta á 60 þús á buy.is?

Re: Nexus 7

Sent: Fim 30. Ágú 2012 18:35
af audiophile
Já finnst það of hátt verð fyrir $200 græju. 40þ væri flott.

Re: Nexus 7

Sent: Fim 30. Ágú 2012 19:28
af arnif
ég er með eina lítið notaða til sölu...fæst á 50þús

Re: Nexus 7

Sent: Þri 04. Sep 2012 21:48
af krizzikagl
Virkar google play á vélinni ?
er að spá í að splæsa, worth it?

Re: Nexus 7

Sent: Mið 05. Sep 2012 19:18
af AronOskarss
Ja plat virkar og það er goð leið her fyrir ofan til að komast inná USA play

Re: Nexus 7

Sent: Fim 06. Sep 2012 22:06
af gazzi1
Hvernig er gpsið að virka hjá ykkur á nexus 7 vélinni þar sem hún er ekki með gps assistant?