Síða 1 af 1
Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 12:55
af appel
Ok, ég er með vídjó skrár í windows sem ég vil spila á þessum galaxy s2 síma yfir wifi. Búinn að sheira folderið, bæði í windows og líka í windows media player. En þetta AllShare forrit á símanum er ekki að detecta neitt.
Er ég bara eitthvað stupid eða hvað?
Fór líka í "My Files" og í "ShareViaWifi" en það er tómt.
Hvernig fæ ég þetta til að virka?
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 13:17
af appel
Ok, náði að fá þetta til að virka... þurfti að setja tölvuna í eitthvað HomeGroup í windows og eitthvað þannig bla bla.
En svo þegar ég er að prófa að spila vídjó skrárnar þá fæ ég bara "Sorry, this video cannot be played". Fæ þetta á allar skrár. ÞVÍLÍKT DRASL!!
En ef ég set sömu vídjó skrár á símann beint þá get ég spilað. Virkilega skrítið.
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 13:56
af appel
Vá hvað maður hélt að þetta væri ekki svona mikið vesen. Ég meina, er þetta ekki alveg týpískt notkunardæmi, þ.e. að vilja spila vídjó af windows tölvunni þar sem maður downloadar öllum vídjóum á?
Neibb, ekki hægt.
Installaði einhverjum ES File Explorer, og það virkar að browsa allar vídjó skrár þar.. en get ekki spilað neitt.
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 14:17
af Sucre
það er svona takki hér á spjallinu sem heitir "breyta" þú sem stjórnandi ættir að kunna á hann
en á sjálfur s2 og hef ekki prufað þetta en ætla að prufa þetta núna skal update-a svo ef ég fæ þetta til að virka
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 14:22
af appel
Sucre skrifaði:það er svona takki hér á spjallinu sem heitir "breyta" þú sem stjórnandi ættir að kunna á hann
en á sjálfur s2 og hef ekki prufað þetta en ætla að prufa þetta núna skal update-a svo ef ég fæ þetta til að virka
Takk takk
en já rétt, ég er doldill spammari... tek stundum svona snúninga. vonandi fer guðjón ekki að setja mig í straff
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 14:47
af hfwf
Ertu orugglega bunad setja upp allshare forritid a tolvuna?
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 15:42
af appel
hfwf skrifaði:Ertu orugglega bunad setja upp allshare forritid a tolvuna?
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2
Er að því núna.
Læt vita um niðurstöður. Er eitthvað voðalega skeptískur á allt þetta drasl
edit: virkar
edit edit: virkar reyndar doldið illa. spilar ekki allar skrár (sem tölvan spilar) og svo virðist einsog ef ég hætti í allshare í símanum þá get ég ekki tengst aftur tölvunni nema að endurræsa forritið í tölvunni. Svo get ég ekki valið um að láta spila í símanum úr tölvunni. Allavega, voðalega skringileg upplifun.
Re: Spila vidjó í Samsung GS2 með þessu AllShare
Sent: Mán 23. Júl 2012 18:38
af Oak
mæli með Plex í svona föndri