Síða 1 af 1

iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 17:38
af jobbzi
Sælir vaktarar :happy

Er að hugsa hvort maður á að fá þer iPad eða andriod spjaldtölvu er einhver með reynslu af android??
hvað myndir þú velja?
hvað er betra?
Ég er bara að fara nota þetta á netinu og note e-mail og eitthvað smá leiki til dundurs :baby

Takk fyrir framm \:D/

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 17:43
af gardar
þetta er persónubundið, prófaðu bæði og ákveddu fyrir sjálfan þig

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 17:53
af jobbzi
Ég er búinn að prófa báðar og er líka hugsa hvort eru betri iPad eða android

og ég get ekki ákveðið mig ](*,) og vill líka sjá hvort þið myndið taka :-"

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 17:58
af intenz
Ef þú ert ekkert sérstaklega tæknisinnaður myndi ég mæla með iPad.

En það fer alveg eftir því hvernig spjaldtölvan er, hversu öflug, stór, o.s.frv. Það er ekkert lítið úrval af Android spjaldtölvum. :)

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 18:18
af Gets
Ég losaði mig fljótt við Ipadinn minn þegar ég komst að því að hann styður ekki flash player, fékk mér android og er sáttur :happy

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 19:56
af AntiTrust
Held þú fáir aldrei svar um hvort er betra, ómögulegt að segja. Ákveðnar vélar geta verið vélbúnaðarlega betri að sumu leyti, en hvað stýrikerfin varðar verður þetta alltaf smekksbundið.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 20:05
af jobbzi
Gets skrifaði:Ég losaði mig fljótt við Ipadinn minn þegar ég komst að því að hann styður ekki flash player, fékk mér android og er sáttur :happy


WHAT!!! styður ekki iPad ekki flash player ](*,) þá er það android málið held ég :) hvernig android spjaldtölvu fegstu þer? \:D/

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Lau 21. Júl 2012 20:37
af Daz
jobbzi skrifaði:
Gets skrifaði:Ég losaði mig fljótt við Ipadinn minn þegar ég komst að því að hann styður ekki flash player, fékk mér android og er sáttur :happy


WHAT!!! styður ekki iPad ekki flash player ](*,) þá er það android málið held ég :) hvernig android spjaldtölvu fegstu þer? \:D/


Án þess að vera iMaður, þá er spurning um að fyrst kynna sér hversu mikið maður þarf flash player og svo kynna sér hvort til séu apps sem leysa viðeigandi flash hlutverk. Eins og t.d. youtube app. Síðan eru Adobe að fara að hætta að styðja flash playerinn í Android.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Sun 22. Júl 2012 00:14
af BjarniTS
intenz skrifaði:Ef þú ert ekkert sérstaklega tæknisinnaður myndi ég mæla með iPad.

En það fer alveg eftir því hvernig spjaldtölvan er, hversu öflug, stór, o.s.frv. Það er ekkert lítið úrval af Android spjaldtölvum. :)

Hættu þessu kjaftæði Gaui , hefur ekkert að gera með hversu tæknisinnaður viðkomandi er.
Ég mæli með báðu svosem , tæki ipad sjálfur en ættir að skoða og meta.
Flash er löngu orðið hlægilegt form. Hefur verið það frá ipad1.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Sun 22. Júl 2012 03:33
af capteinninn
Ég myndi skoða nýju 7 tommuna frá Google sem heitir Nexus 7.

Næst á vanity kauplistanum mínum

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Sun 22. Júl 2012 13:47
af Frantic
BjarniTS skrifaði:
intenz skrifaði:Ef þú ert ekkert sérstaklega tæknisinnaður myndi ég mæla með iPad.

En það fer alveg eftir því hvernig spjaldtölvan er, hversu öflug, stór, o.s.frv. Það er ekkert lítið úrval af Android spjaldtölvum. :)

Hættu þessu kjaftæði Gaui , hefur ekkert að gera með hversu tæknisinnaður viðkomandi er.
Ég mæli með báðu svosem , tæki ipad sjálfur en ættir að skoða og meta.
Flash er löngu orðið hlægilegt form. Hefur verið það frá ipad1.


Allir IPhone/IPad eigendur sem ég þekki vilja bara eiga það nýjasta/flottasta og vilja alls ekki að þurfa að pæla of mikið í stillingum.
S.s. málið er að tolla í tískunni en ekki að geta gert nákvæmlega ALLT sem maður vill í símanum.
Þess vegna mæli ég með IPhone við þannig fólk því það er bara sett í sandkassa og þetta virkar bara...

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Sun 22. Júl 2012 15:41
af Jakob
Ég var að fá mér Samsung Galaxy Tab 2 10.1 og ég gæti ekki verið sáttari með tölvuna, þetta er ótrúlega flott vél. Hún er ný komin til landsins, fæst hjá Símanum. Highly recommended.

Skrifað á tablet tölvuna mína :-)

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Mán 23. Júl 2012 03:07
af BjarniTS
JoiKulp skrifaði:
BjarniTS skrifaði:
intenz skrifaði:Ef þú ert ekkert sérstaklega tæknisinnaður myndi ég mæla með iPad.

En það fer alveg eftir því hvernig spjaldtölvan er, hversu öflug, stór, o.s.frv. Það er ekkert lítið úrval af Android spjaldtölvum. :)

Hættu þessu kjaftæði Gaui , hefur ekkert að gera með hversu tæknisinnaður viðkomandi er.
Ég mæli með báðu svosem , tæki ipad sjálfur en ættir að skoða og meta.
Flash er löngu orðið hlægilegt form. Hefur verið það frá ipad1.


Allir IPhone/IPad eigendur sem ég þekki vilja bara eiga það nýjasta/flottasta og vilja alls ekki að þurfa að pæla of mikið í stillingum.
S.s. málið er að tolla í tískunni en ekki að geta gert nákvæmlega ALLT sem maður vill í símanum.
Þess vegna mæli ég með IPhone við þannig fólk því það er bara sett í sandkassa og þetta virkar bara...

Já tískuvara vissulega en þetta með sandkassa er þín upplifun. Android er þrælflott kerfi og alltaf að verða flottara og flottara útlitslega/virkni 2,3-4 t.d mjög fallegt stökk uppávið. Symbian sigraði líka einusinni heiminn og þú varst aðhlátursefni ef þú áttir ekki Nokia. Tímarnir breytast hratt og að segja að til sé stýrikerfi fyrir snjallsíma sem geti allt , það gerir þig að aðhlátursefni. Reyndu að njóta þess sem markaðurinn hefur upp á að bjóða í stað þess að velja þér eitt kerfi. Slíkt er þröngsýni í dag.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Mán 23. Júl 2012 12:04
af jonbk
Jakob skrifaði:Ég var að fá mér Samsung Galaxy Tab 2 10.1 og ég gæti ekki verið sáttari með tölvuna, þetta er ótrúlega flott vél. Hún er ný komin til landsins, fæst hjá Símanum. Highly recommended.

Skrifað á tablet tölvuna mína :-)


hvað kostaði hún ? og hvort er hún wifi eða 3g og hvað stórt minni ? er að pæla í að fá mér svona

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Mán 23. Júl 2012 12:26
af Blackbone
Ef ég væri sjálfur að fá mér tablet í dag, þá mundi ég hiklaust fá mér Asus Transformer Pad Infinity, http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6834230481 og fá mér svo docku fyrir hann :)

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Mán 23. Júl 2012 14:23
af isr
Ef ég væri sjálfur að fá mér tablet í dag, þá mundi ég hiklaust fá mér Asus Transformer Pad Infinity

Dóttir mín á asus transformers og lyklaborð líka ,algjör snild og raflhlöðuendingin er 15 til 16 tímar ef spjaldið er í lyklaborðinu.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Mán 23. Júl 2012 15:06
af intenz
Mamma keypti sér Asus Eee Pad Transformer TF300T með 1,2 GHz Tegra3 Quad-Core, finnst hún ekki eins smooth og hún ætti að vera á miðað við aflið í þessu.

Ætli ég fái mér ekki Nexus 7, dauðlangar í svoleiðis.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Þri 24. Júl 2012 15:19
af AntiMagic
Miða við verð og gæði færi ég í Samsung Galaxy Tab 2 7.0 kostar úti 250$

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Þri 24. Júl 2012 15:31
af Blackbone
intenz skrifaði:Mamma keypti sér Asus Eee Pad Transformer TF300T með 1,2 GHz Tegra3 Quad-Core, finnst hún ekki eins smooth og hún ætti að vera á miðað við aflið í þessu.



Transformer Pad infinity er tæknilega séð 2 útgáfum betri en Transformerinn... Transformer -> Transformer Prime ( sem er mjög smooth ) -> svo núna Transformer pad Infinity

En hérna er unboxing video frá Linus http://www.youtube.com/watch?v=ywvJNlD9 ... ature=plcp og mér líst ekkert smá vel á þessa vél :)

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Þri 24. Júl 2012 16:12
af intenz
Blackbone skrifaði:
intenz skrifaði:Mamma keypti sér Asus Eee Pad Transformer TF300T með 1,2 GHz Tegra3 Quad-Core, finnst hún ekki eins smooth og hún ætti að vera á miðað við aflið í þessu.



Transformer Pad infinity er tæknilega séð 2 útgáfum betri en Transformerinn... Transformer -> Transformer Prime ( sem er mjög smooth ) -> svo núna Transformer pad Infinity

En hérna er unboxing video frá Linus http://www.youtube.com/watch?v=ywvJNlD9 ... ature=plcp og mér líst ekkert smá vel á þessa vél :)

Örlítið betra kubbasett og 0,4 GHz hraðari örgjörvi. Sama 1 GB RAM....... veit ekki sko. Virkar samt mjög smooth hjá Linus.

Re: iPad eða andriod spjaldtölva?

Sent: Þri 24. Júl 2012 21:50
af Jakob
jonbk skrifaði:hvað kostaði hún ? og hvort er hún wifi eða 3g og hvað stórt minni ? er að pæla í að fá mér svona


Kostaði 104.000 hjá Símanum með 18 mán dreifingu á símreikning. Er bæði með 3g og wifi, 16gb minni.