Síða 1 af 1
Google Nexus 7?
Sent: Þri 17. Júl 2012 20:55
af gazzi1
Er einhver sem veit hvenar Google Nexus 7 kemur til Íslands eða Danmerkur og hvað haldið þið að hann muni kosta hingað kominn?
Re: Google Nexus 7?
Sent: Þri 17. Júl 2012 21:20
af wicket
Hann verður væntanlega ekki í boði á Íslandi svona opinberlega þar sem að Google Play er bara opið fyrir apps hér á landi. Þeir eru að niðurgreiða þetta tæki til að selja bíómyndir, sjónvarpsþætti, tónlist og bækur í gegnum þetta og það er ekki aðgengilegt á Íslandi.
Veit ekki með Danmörk.
Eina leiðin er að treysta á buy.is og álíka fyrirtæki til að flytja þetta inn, þá kostar þetta eflaust morðfjár.
Dauðlangar sjálfum í svona, ætla að treysta á för erlendis til að grípa svona.
Re: Google Nexus 7?
Sent: Fös 20. Júl 2012 14:22
af RobertSaedal
Re: Google Nexus 7?
Sent: Lau 21. Júl 2012 00:27
af gazzi1
er það ekki askoti mikið fyrir þetta kríli?
Re: Google Nexus 7?
Sent: Lau 21. Júl 2012 01:33
af capteinninn
200$ sem gera 25400 isk samkvæmt gengi valitor í dag.
Það er samt ekki tekið með flutningskostnaður eða skattur, ég er að spá að fá mér frekar svona heldur en að fá mér Galaxy S3III og ætla bara að ná í einhvern sem er að koma frá BNA á næstunni, skatturinn getur ekki verið það mikill á henni
Re: Google Nexus 7?
Sent: Lau 21. Júl 2012 02:01
af Daz
Ódýrasti Ipad3 kostar 499$, eða 79.900. Ódýrasti Nexus 7 kostar 199$ eða 59.900. Ég skil ekki alveg stærðfræðina þarna á bak við. Eða ég skil hana reyndar mjög vel, mismikil samkeppni.
Re: Google Nexus 7?
Sent: Lau 21. Júl 2012 07:36
af Bioeight
Þetta er 16 GB útgáfan á buy.is sem er seld á $249 dollara úti. Samsung Galaxy Tab 7" er seld á svipuðu verði, verðið á henni á buy.is er 55 þúsund. Ég hef svo sem ekki séð marga vera að kvarta yfir því.
Væri frábært ef verðlagningin á Android tablets væri eins og á Apple tablets, $389 dollara Asus TF-300 tablet kostar 87-90 þúsund krónur á meðan $499 Apple New iPad kostar 80-90 þúsund hérna heima. Vinsamlegast lagist.