Síða 1 af 1

hávaði í fartölvu

Sent: Mið 27. Jún 2012 21:52
af jonbk
þetta er líklegast bara ryk í henni, en allavegna þá er bara svo meðal "hávaði" þegar ég er bara á facebook en alltaf þegar ég er að horfa á vídeó eða bara þegar ég er á einhverri síðu með hreyfiauglýsingu eins og er hérna efst á þessari síðu og núna þegar ég skrifa þetta þá byrjar hávaðinn sem maður tekur eftir !

og þetta er svona tölva https://www.google.is/search?hl=is&q=packard+bell+easynote+mb85&bav=on.2,or.r_gc.r_pw.r_cp.r_qf.,cf.osb&biw=1440&bih=775&pdl=300&um=1&ie=UTF-8&tbm=isch&source=og&sa=N&tab=wi&ei=aX_rT87oD82e-Qaw09C0BQ

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Mið 27. Jún 2012 21:58
af upg8
Það er ekkert mál að rykhreinsa tölvur, það getur hjálpað að skipta um kælikrem ef tölvan er orðin nokkurra ára gömul. Svo gætir þú líka skipt um viftur, prófað að hafa upphækkun undir tölvunni eða fá þér fartölvustand með kælingu.

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Mið 27. Jún 2012 22:17
af jonbk
upg8 skrifaði:Það er ekkert mál að rykhreinsa tölvur, það getur hjálpað að skipta um kælikrem ef tölvan er orðin nokkurra ára gömul. Svo gætir þú líka skipt um viftur, prófað að hafa upphækkun undir tölvunni eða fá þér fartölvustand með kælingu.



já mun líklegast rykhreynsa hana á morgun en annars kann ég ekki að skipta um kælikrem né viftu en það þarf varla þar sem hún er ekkert mjög gömul síðan er ég líka með svona upphækkun en ekki með kælingu

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Mið 27. Jún 2012 22:22
af Gislinn
jonbk skrifaði:já mun líklegast rykhreynsa hana á morgun en annars kann ég ekki að skipta um kælikrem né viftu en það þarf varla þar sem hún er ekkert mjög gömul síðan er ég líka með svona upphækkun en ekki með kælingu


Ég tók 6 ára gamla fartölvu hjá bróðir hennar mömmu þar sem hún var farinn að vera með læti, rykhreinsaði hana og hún var alveg silent eftir það (skipti ekki um kælikrem þótt að það hefði eflaust getað hjálpað líka).

Það er mjög mikilvægt að hreinsa frá þessum viftum með reglulegu millibili. :happy

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Mið 27. Jún 2012 22:46
af AntiTrust
upg8 skrifaði:Það er ekkert mál að rykhreinsa tölvur, það getur hjálpað að skipta um kælikrem ef tölvan er orðin nokkurra ára gömul. Svo gætir þú líka skipt um viftur, prófað að hafa upphækkun undir tölvunni eða fá þér fartölvustand með kælingu.


Það er nú ekki fyrir hvern sem er að tæta í sundur fartölvur :)

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Fim 28. Jún 2012 02:13
af kizi86
mjög gott að teikna upp "layout-ið" á tölvunni, þe bakhliðina á blað og gera hring þar sem skrúfurnar eiga að vera, og svo þegar tekur skrúfurnar úr að setja á sinn stað á blaðinu, svo annað blað þegar ert kominn inn í tölvuna, var alltaf að enda með 2-3 skrúfur þegar var búinn að skrúfa vélar saman, en ekki lengur eftir að fór að gera þetta svona..

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Þri 10. Júl 2012 21:48
af Ratorinn
Mæli með að hafa alltaf eitthvað hart og slétt undir fartölvunni.
Annars fær hún ekkert loftpláss.

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Þri 10. Júl 2012 22:10
af agust1337
Ekki láta vifturnar ofsnúast þegar þú rykhreinsar tölvuna þína

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Fim 12. Júl 2012 22:23
af jonbk
var að opna hana áðan og fann nánast ekkert ryk ! :?

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Fim 12. Júl 2012 22:28
af fannar82
jonbk skrifaði:var að opna hana áðan og fann nánast ekkert ryk ! :?


Var viftan laus í ? slóst einhver vír í viftuna.. etc

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Lau 14. Júl 2012 16:45
af jonbk
fannar82 skrifaði:
jonbk skrifaði:var að opna hana áðan og fann nánast ekkert ryk ! :?


Var viftan laus í ? slóst einhver vír í viftuna.. etc

nei

Re: hávaði í fartölvu

Sent: Þri 17. Júl 2012 21:41
af upg8
Ef þú ert með Windows 7, prófaðu þá að fara í Advanced Power settings og breyta cooling policy úr active yfir í passive, það reynir að hægja á örgjörvanum frekar en að setja viftuna á fullan snúning. Yfirleitt bara virkt á fartölvum þegar þær eru í "battery mode" en hægt að hafa það líka þegar þær eru í sambandi.