Síða 1 af 1

vandamál m/hleðslu á hp dv4

Sent: Lau 16. Jún 2012 16:19
af vesi
Sælir vaktarar..
Mútta var að fá nýtt battery í Hp pavilion dv4,, og það er fullhlaðið.. svo þegar hún er tekin úr sambandi deyr hún.. samt sýnir hleðslumælirinn fulla hleðslu..

einhverjar hugmyndir hvað er að.. búinn að googla smá en virðist ekki hitta á svarið..

bestu kveðjur
Vesi

Re: vandamál m/hleðslu á hp dv4

Sent: Lau 16. Jún 2012 16:53
af DJOli
Var sama vandamál til staðar á gamla batterýinu?

Re: vandamál m/hleðslu á hp dv4

Sent: Lau 16. Jún 2012 16:54
af vesi
DJOli skrifaði:Var sama vandamál til staðar á gamla batterýinu?



ja.. það var allveg daut svo hún var alltaf í sambandi,, eða þá á ég við að battery meater sýndi alltaf tóma hleðslu..

Re: vandamál m/hleðslu á hp dv4

Sent: Lau 16. Jún 2012 19:25
af DJOli
Ég giska á vandamál á milli tengipunktanna í batterýinu og tölvunni (það ættu að vera svona litlir koparbitar sem tengja batterýið við tölvuna). Mín ágiskun er sú að þeir séu örugglega að valda þessu

Re: vandamál m/hleðslu á hp dv4

Sent: Lau 16. Jún 2012 22:26
af vesi
prufaði að gera battery test og fékk failed,., svo ég er stórlega farinn að efast um ágæti þessa batery-s,, hvernig get ég gengið í úr skugga um að það sé í lagi,, einhverskona test,, eða farið eithvað með það í prufun.. þá hvar

Re: vandamál m/hleðslu á hp dv4

Sent: Lau 16. Jún 2012 22:32
af Pandemic
Battery Testið myndi ekki virka ef hleðslurásin fyrir raflhlöðuna er biluð. Það er fyrsti staðurinn sem ég myndi kíkja á ef þú ert með tvö batterý sem virka ekki.