Síða 1 af 1
Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fim 07. Jún 2012 22:53
af jonbk
Valið stendur á milli þess að kaupa lg optimus 2x um næstu mánaðarmót eða samsung galaxy s2 í ágúst. ég er búinn að skoða svona VS vídeo á youtube og það er ekki mikill munur á hraða
Hver er ykkar reynsla af þessum símum ? og hvorn mynduð þið velja ?
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fim 07. Jún 2012 23:01
af Tesy
Ég hef heyrt margar leiðinlegar sögur um LG Optimus 2x en bara góðar sögur um Samsung Galaxy S2.
Sjálfur myndi ég frekar bíða og fá mér S2 heldur en LG eða sjá hvernig Windows 8 símar verða, hef átt LG Optimus síma og gat ekki beðið eftir að fá nýja.
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fim 07. Jún 2012 23:20
af hfwf
sgs2 hands on, snerti ekki lg síma.
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fim 07. Jún 2012 23:32
af jonbk
Tesy skrifaði:Ég hef heyrt margar leiðinlegar sögur um LG Optimus 2x en bara góðar sögur um Samsung Galaxy S2.
Sjálfur myndi ég frekar bíða og fá mér S2 heldur en LG eða sjá hvernig Windows 8 símar verða, hef átt LG Optimus síma og gat ekki beðið eftir að fá nýja.
hvernig sögur t.d. ?
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 00:14
af AciD_RaiN
Sorry en mín reynsla af LG símum almennt er hryllingur. Hef ekki átt neinn af þessum "flottu" LG símum en þeir sem ég hef átt voru með lélegum skjá, þoldu lítið og bara leiðinlegir. Svo er þetta bara alveg þín ákvörðun en mér sýnist allir vera sammála mér þegar ég segi bíddu frekar og fáðu þér Galaxy S2 í ágúst
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 00:25
af Kosmor
var sjálfur að fá mér S2 og get ekki annað en mælt með símanum, þvílíkur unaður.
hef enga reynslu af LG til að bera saman, en þótti rétt að segja frá minni S2 reynslu.
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 02:21
af Tesy
jonbk skrifaði:Tesy skrifaði:Ég hef heyrt margar leiðinlegar sögur um LG Optimus 2x en bara góðar sögur um Samsung Galaxy S2.
Sjálfur myndi ég frekar bíða og fá mér S2 heldur en LG eða sjá hvernig Windows 8 símar verða, hef átt LG Optimus síma og gat ekki beðið eftir að fá nýja.
hvernig sögur t.d. ?
Lengi að fá updates, voice quality-ið sökkar, lélegt signal. Getur séð fullt af negative comments á GSMarena.
Ég las líka einhverstaðar að 2x mun ekki fá ISC(4.0).. Semsagt, þetta er dauður sími!
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 04:18
af Leviathan
Ég á Optimus 2X og hann er alltaf að missa samband (eins og hann fari á airplane mode) en það kemur aldrei í ljós fyrr en ég reyni að hringja sjálfur. Stundum drepur hann á sér upp úr þurru, en þegar hann virkar kvarta allir undan því hversu illa heyrist í mér.
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 11:00
af jonbk
takk fyrir álitin ykkar
hef ákveðið að bíða þar til í ágúst og fá mér SII
vá hvað þetta á eftir að vera erfitt
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 12:07
af intenz
Ekki fá þér LG. LG kunna að gera sjónvörp en símarnir þeirra eru eins og KitchenAid hrærivélaframleiðandinn myndi fara að framleiða bíla... þetta bara gengur ekki upp.
Re: Hvaða síma skal kaupa ?
Sent: Fös 08. Jún 2012 15:20
af rattlehead
Mæli frekar með s2 símanum er miklu vandaðri heldur en LG. Hef átt 2 og nuddaði snertiskjáinn af einum og hinn steiktist þegar ég ætlaði að stinga honum í hleðslu,ekki árs gamall. Var einmitt í sömu sporum og þú fyrir örfáum mánuðum. Valdi frekar s2 símann út af súrri reynslu.