Síða 1 af 1
Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Mán 14. Maí 2012 22:28
af mundivalur
Sælir
Hvernig farið þið út að labba með 4"+ snjallsímana ykkar ? Ekki með hálsól og dragið hann á eftir ykkur
Hvað eruð þið að nota og hvað er sniðugt í svona málum Silicon, plasthylki,filma á skjá ?
Og er einhver verslun á njétinu með slatta af einhverjum aukabúnaði ?
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Mán 14. Maí 2012 23:13
af AronOskarss
Ég var alltaf með filmu... hún varð alltaf rispuð fljótt, tók svo filmuna af í síðasta skipti og notaði símann rispulausan eftir það í marga mán, dettur ekki í hug að fá mér filmu aftur... þetta górillu gler er ekkert grín...
Annars vantar mig líka eitthvað þrælsniðugt cover fyrir minn...svo ég fokki honum ekki upp í vinnunni. Veit ekkert hvar ég á að fá svoleiðis.
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Mán 14. Maí 2012 23:52
af halli7
Er með filmu á Iphone 4 sem ég er búinn að vera með síðan síðasta haust og hún er algjör snilld.
Hún rispast ekki neitt, samt hef ég óvart verið með lykla í sama vasa og iphonein.
Svo er ég líka með bumper, er búinn að missa símann nokkrum sinnum og tvisvar á malbik úr ca 150 cm hæð.
Er mjög sáttur með þetta, síminn enn eins og nýr
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 00:47
af AronOskarss
bíddu bíddu.....
http://toskuroghulstur.is/details/samsung-svart-le%C3%B0ur-in-geniushér er eitthvað, á víst eftir að koma fullt í viðbót.
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 00:53
af pattzi
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 01:18
af kubbur
ég er með minn í kortaveski sem var sérsaumað undir símann
http://stores.ebay.ca/EASECASE
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 01:24
af AronOskarss
...þetta er svalt....fyrir allan peninginn.
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 01:42
af kubbur
AronOskarss skrifaði:...þetta er svalt....fyrir allan peninginn.
u já, og búið að bjarga mér aðeins of oft
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 01:44
af kubbur
kubbur skrifaði:AronOskarss skrifaði:...þetta er svalt....fyrir allan peninginn.
u já, og búið að bjarga mér aðeins of oft
kostaði 8 þús komið til landsins minnir mig, fyrir ca einu og hálfu ári
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 01:45
af Tiger
Minn iPhone er svo fallegur að ég tími ekki að setja hann í neitt. Enda þolir þetta ótúrlega margt, varla rispa á honum eftir margra mánaðar notkun...
...maður kaupir ekki Benz og vefur honum síðan inní bóluplast og keyrir um
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 01:53
af g0tlife
Búinn að eiga galaxy s2 í ár núna og ekkert utan um hann. Sést ekki á honum
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 03:10
af Danni V8
g0tlife skrifaði:Búinn að eiga galaxy s2 í ár núna og ekkert utan um hann. Sést ekki á honum
Búinn að eiga min í mánuð og bakhliðin er farin að rispast, slétti parturinn neðst sem er aðeins þykkari.
En skjárinn í topp standi og allt annað
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 08:20
af Swooper
Er með minn SGS2 lausan líka, búinn að eiga hann síðan í júlí og það er bara ein lítil rispa á horninu aftaná eftir að ég missti hann einu sinni...
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Þri 15. Maí 2012 09:29
af mundivalur
Ég er allarvegna búinn að panta Silicon utanum dótið ! eitthvað til hjá símabæ
http://www.simabaer.is/index.php?option ... &Itemid=26Annars er fínt að nota Ebay til að versla svona dót og oft ódýrara en hér, keypti allt þar fyrir ZTE Blade.
Ég keypti LG Optimus 3D á tilboði 30þ +vsk ekki besti síminn en nokkuð góð uppfærsla frá Blade 600mhz
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Mið 16. Maí 2012 01:57
af AronOskarss
Það er samt ekkert eðlilegt hvaðnég misti HTC Desire oft og það sá svo mikið á honum.... en bilaði aldrei og varð aldrei óþéttari..
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Mið 16. Maí 2012 07:15
af mikkidan97
Ég keypti hjá Símabæ svona plasthylki, og það liggur við að maður getur grýtt símanum í gólfið og það gerist ekkert. Þessar plasthlífar virka ótrúlega vel, miðað við að hylkið á minn Galaxy kostaði aðeins 1000 KR
Re: Hlífðarveski Fyrir Snjallsíma ?
Sent: Mið 16. Maí 2012 13:21
af KermitTheFrog
Í vasanum...