Síða 1 af 1
Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 00:01
af KermitTheFrog
Daginn. Mér leiddist og reif gömlu HP tölvuna mína í sundur. Sé að í henni er 2.0 GHz eins kjarna Pentium M örgjörvi með 478 pinnum. Gæti ég, ef ég vildi, fundið í hana tvíkjarna örgjörva?
Reyndi bæði eBay og Amazon og fann þennan eina:
http://www.amazon.com/Pentium-Dual-Core ... 621&sr=8-1Fór svo að spá hvort það væru yfir höfuð til tvíkjarna örgjörvar í þetta socket.
Vonandi hrærist upp smá umræða og ég fræðist um málið
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 00:11
af DJOli
Reyndar er þetta ekki dual core, mig minnir að þetta sé eitthvað hyper threading technology, þannig að þetta er bara "thread" í stað "core".
Samt heví kraftmiklir örgjörvar miðað við sinn tíma.
Minnir að ég eigi einn 478 örgjörva hérna heima, 3.0ghz þá, en hann nær leikandi upp í 3.48.
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 00:11
af AntiTrust
Það eru ekki til 478 dual core CPU's, þeir komu fyrst í 775. Öflugasti CPUinn sem þú færð í 478 er 3.73Ghz með HyperTreading og 2MB L2.
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 05:04
af worghal
ég
held ég eigi til 2.8Ghz örgjörfa í þetta socket en hann er með hyper threading
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 08:28
af beatmaster
Endilega ekki vera að rugla saman 478 desktop og 478 mobile örgjörvum en Pentium M er 478 pinna en fer í socket 479 og ég veit ekki hvort að það hjálpar OP eitthvað en þessi 2 ghz Pentium M er einn af öflugustu örgjörvunum fyrir þetta platform
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 10:54
af DJOli
Hér stendur að Socket 478 móðurborð styðji bæði 478 desktop og 478 mobile.
http://www.cpu-world.com/Sockets/Socket ... 8B%29.htmlOg hérna eru aðeins nánari uppl. um 478 og 479.
http://www.cpu-world.com/Sockets/Socket ... 9M%29.html
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 12:02
af beatmaster
Socket 478 styður Pentium 4 Mobile en ekki Pentium M þetta eru ekki sömu örgjörvarnir
Re: Pentium M 478 socket - dual core eða ekki?
Sent: Þri 10. Apr 2012 18:04
af worghal
ég einmitt áttaði mig á því aðeins seinna að um var að ræða M örgjörfa, sem ég er einmitt ekki með.