Síða 1 af 1

vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Mið 28. Mar 2012 12:46
af J1nX
Sælir.. frændi minn er að fermast þetta árið og pabbi hans bað mig um að hjálpa honum um að velja ferðatölvu handa honum..

hún yrði aðallega notuð í leiki eins og skyrim og call of duty og hann var að velta því fyrir sér hvort þessi myndi ráða við það eða hvort þið mælið með einhverju öðru í svona sirka þessu budgeti..

http://www.omnis.is/vorulisti/tolvur/fa ... gory_id=29

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Mið 28. Mar 2012 12:48
af vesi
nokkuð góð ummræða :http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=26&t=46761

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Mið 28. Mar 2012 13:01
af J1nX
það sem ég er aðallega að pæla í er hvort skjákortið í tölvunni minni ráði alveg við þessa leiki.. ég er ekki alveg inn í þessum skjákortum í löppum

já og svo í hinum póstinum er aðallega bara verið að tala um að það sé ekkert sniðugt að vera að fá sér leikjafartölvu, en þar sem guttinn flakkar svolítið um þá er lappi bara í boði,
þannig ég þarf ekki að heyra að það sé ekki sniðugt að vera að fá sér leikjalappa

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Mið 28. Mar 2012 23:57
af AciD_RaiN
Er ekki allienware þá bara málið?? :-"

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 00:02
af Baraoli
að fjárfesta hálfa milljón í laptop er nú kanski full mikið er það ekki? (þá á ég við Alienware, miða við verð hér á landi)

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 00:03
af AciD_RaiN
Auðvitað er það bara rugl en er það ekki best ef maður ætlar að spila leiki í fartölvunni...

Persónulega færi ég bara í desktop og fengi mér eitthvað 10" dót til að flakka með til að getað farið á vaktina ;)

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 00:09
af Domnix
J1nX skrifaði:Sælir.. frændi minn er að fermast þetta árið og pabbi hans bað mig um að hjálpa honum um að velja ferðatölvu handa honum..

hún yrði aðallega notuð í leiki eins og skyrim og call of duty og hann var að velta því fyrir sér hvort þessi myndi ráða við það eða hvort þið mælið með einhverju öðru í svona sirka þessu budgeti..

http://www.omnis.is/vorulisti/tolvur/fa ... gory_id=29


Átti eina Satellite og hún var ágæt, entist í 4 ár næstum uppá dag og engin vandamál. Eina við hana var að hún keyrði leiki, en ekki í nægilegum gæðum. Miðað við þetta hérna:http://www.notebookcheck.net/NVIDIA-GeForce-GT-525M.43889.0.html er skjákortið á þessari að keyra nútíma-leiki í medium gæðum. Ef hann vill alvöru leikjafartölvu held ég að Alienware sé málið.

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 00:25
af Klaufi
Þið sem eruð að mæla með Alienware.

Það eru til betur spekkaðar MSI og Asus vélar sem eru töluvert ódýrari en Alienware, ef 15"+ eru í spilinu.

Þetta kemur frá harðkjarna AW manni.
Álagning á AW er hellingur, en þegar þú skoðar spekkana á 11 og 14" vélunum og pælir í því þær séu ekkert að hitna, og frábær rafhlöðuending þá hlýtur það að þýða almennileg hönnun ekki satt?

Ég nota ekki borðtölvu heima í dag og hef ekki gert í nokkra mánuði, 11" Alienware dokkuð heima fyrir og alltaf með hana á ferðinni, ferðast það mikið og ég verð að vera með öflugan lappa með mikilli rafhlöðuendingu vegna vinnu. Ég hef alveg komist hjá því að vera með tvær vélar (borðtölvu+lappa) með því að nota AW lappan.

Satt að segja myndi ég ekki "mæla með" Alienware fyrir hvern sem er þar sem þú ert að borga full mikið fyrir það sem þú færð.

Bottom line:
Ef ég væri að fara í 11 eða 14" lappa tæki ég AW en allt yfir 14" væri líklegast Asus eða í MSI (þó ég hafi smá fóbíu fyrir MSI síðan í gamla daga).

P.s. Nýju asus vélarnar heilla mig helling.

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 08:47
af HalistaX
Ég ætla ekki að hætta mér í að hjálpa þér með þetta en langaði bara að benda á þessa hér;
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2150
Ég og litli bróðir minn erum búnir að nauðga þessari síðan í gær og hún er GEÐVEIK!

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 08:59
af J1nX
HalistaX skrifaði:Ég ætla ekki að hætta mér í að hjálpa þér með þetta en langaði bara að benda á þessa hér;
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2150
Ég og litli bróðir minn erum búnir að nauðga þessari síðan í gær og hún er GEÐVEIK!


já ég var búinn að skoða þessa eitthvað.. sagði honum frá henni og ekki skemmir fyrir að hún er frá tölvutækni sem er klárlega besta búðin :D

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 21:47
af J1nX
engin fleiri álit ? :P væri alveg fínt að fá fleiri álit :)

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fim 29. Mar 2012 21:56
af Eiiki
J1nX skrifaði:engin fleiri álit ? :P væri alveg fínt að fá fleiri álit :)

Held að þú fáir ekkert betri tölvu en HalistaX benti þér á fyrir peninginn, þ.e.a.s. ef að þú ert að leita þér að leikjafartölvu.

Re: vantar hjálp við að velja fermingarlappa

Sent: Fös 30. Mar 2012 16:02
af Halli25
ef Omnis eiga þessa ennþá til þá myndi ég hoppa á hana:
http://www.omnis.is/vorulisti/tolvur/fa ... gory_id=29

betra skjákort en í vélinni sem þú valdir fyrst og meira solid build í P750 vs. L755