Síða 1 af 1
Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 14:58
af kbg
Sælir.
Langaði að vekja athygli á strætó forritinu
Taktu Strætó sem ég var að búa til fyrir Android síma
Forritið birtir bíðtíma og vegalengd í næsta strætó ásamt korti.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:02
af hagur
Nice!
Verst að eiga ekki Android síma til að prófa.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:05
af axyne
Flottur
ætlarðu ekki að reyna að díla eh við strætó svo þú fáir smá aur fyrir þetta?
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:12
af SolidFeather
Er ekki strætó með fully fledge rauntímakort fyrir android?
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:16
af kbg
SolidFeather skrifaði:Er ekki strætó með fully fledge rauntímakort fyrir android?
Það er auðvitað hægt að skoða rauntímakortið sem er á strætó.is á Android síma, en það virkar ekkert mjög vel fyrir minn smekk, hægvirkt og of stórt.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:19
af kbg
axyne skrifaði:Flottur
ætlarðu ekki að reyna að díla eh við strætó svo þú fáir smá aur fyrir þetta?
Já það er spurning
annars var þetta bara svona "pet project" hjá mér til að kynna mér Android forritun
En ég hef heyrt að Strætó sé á leiðinni með sitt eigið forrit, en veit ekkert meira um það.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:20
af wicket
Það var annað svona forrit komið, samt ekki frá Strætó sjálfum.
https://play.google.com/store/apps/deta ... mUuYnVzIl0.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 15:22
af kbg
Já ég vissi af því, það kom út nokkrum dögum áður en ég kláraði mitt
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 19:51
af hagur
Strætó er með erlenda aðila sem sjáum þetta upplýsingakerfi fyrir þá. Það er víst ýmislegt á leiðinni frá þeim sjálfum í þeim efnum. Hef þessar upplýsingar frá vinnufélögum mínum sem eru að vinna lokaverkefnið sitt fyrir Strætó og voru í svona pælingum, en Strætó vildi í raun lítið vinna með þeim, einmitt útaf þessum erlenda aðila.
En annars er þetta mjög flott, gaman að sjá allskona lausnir spretta upp frá hinum og þessum aðilum, sem nýta sér rauntímaupplýsingarnar frá straeto.is
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 21:07
af kbg
hagur skrifaði:Strætó er með erlenda aðila sem sjáum þetta upplýsingakerfi fyrir þá. Það er víst ýmislegt á leiðinni frá þeim sjálfum í þeim efnum. Hef þessar upplýsingar frá vinnufélögum mínum sem eru að vinna lokaverkefnið sitt fyrir Strætó og voru í svona pælingum, en Strætó vildi í raun lítið vinna með þeim, einmitt útaf þessum erlenda aðila.
En annars er þetta mjög flott, gaman að sjá allskona lausnir spretta upp frá hinum og þessum aðilum, sem nýta sér rauntímaupplýsingarnar frá straeto.is
Sæll vinnufélagi
Vissi ekki af þessu lokaverkefni, það verður áhugavert að sjá það. Annars hafa þeir örugglega áhuga á þessum gögnum:
straeto-data ef þeir eru ekki þegar komnir með eitthvað svona frá Strætó.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 22:21
af KermitTheFrog
Strætó appið er nú komið út en ég held það sýni bara rauntíma stöðu vagnanna, ekki leiðir og slíkt.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 22:22
af Swooper
Nei, ekki official. Einhver þriðji aðili sem gerði þetta sem var komið (eins og kom fram ofar í þessum þræði).
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 22:43
af KermitTheFrog
Það er þá bara einhver aðili að gera þetta fyrir Strætó þar sem hann þarf aðgengi að gps búnaði sem er um borð í vögnunum.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 23:04
af hagur
KermitTheFrog skrifaði:Það er þá bara einhver aðili að gera þetta fyrir Strætó þar sem hann þarf aðgengi að gps búnaði sem er um borð í vögnunum.
Neibb.
Gögnin eru öllum aðgengileg á vef Strætó,
http://straeto.is/rauntimakortÞað eru komin nokkur "öpp" nú þegar, bæði fyrir iOS og Android, ekkert þeirra er officially frá Strætó.
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 23:10
af GuðjónR
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 23:14
af worghal
einhver sem kann að rippa þetta og setja á installous ?
Re: Nýtt strætó forrit fyrir Android
Sent: Fim 08. Mar 2012 23:22
af KermitTheFrog
hagur skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:Það er þá bara einhver aðili að gera þetta fyrir Strætó þar sem hann þarf aðgengi að gps búnaði sem er um borð í vögnunum.
Neibb.
Gögnin eru öllum aðgengileg á vef Strætó,
http://straeto.is/rauntimakortÞað eru komin nokkur "öpp" nú þegar, bæði fyrir iOS og Android, ekkert þeirra er officially frá Strætó.
Ahh, auðvitað. Ég pældi ekki í kortinu á vefnum. Auli ég.