Síða 1 af 2

NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 20:45
af AronOskarss
Jæja núna er ég alveg kominn með nóg af þessu, ég nota 3g í símanum allann daginn oftast og fjandi mikið ef ekki allann daginn, og ég þarf að færa mig aftur yfir á Nova nokkrusinnum á dag! Búið að vera svona núna í nokkra mánuði.

Er einhver annar með nova pirring?

Ætla fá nýtt kort hjá þeim á morgun og sjá hvort þetta lagist.
Annars er ég farinn, fokk verðið á þessu.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 20:58
af BjarniTS
Ég er ekki að lenda í neinum vandræðum með NOVA. Ekkert vesen með nein sambönd , er meira að segja í ástarsambandi sem að byggir töluvert á samskiptaleiðum sem áttu sér stað í gegn um símkerfi NOVA , No prob.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:00
af steinarorri
Kerfið hjá Nova höndlar engan veginn þann fjölda sem er á því. Væri löngu farinn yfir til Símans ef allir vinir mínir væru ekki hjá Nova.
Síminn er með svo margfalt betra dreifikerfi heldur en Nova/Vodafone samsuðan.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:05
af FuriousJoe
Er að lenda í þessu líka :/

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:37
af Pandemic
Já, oft sambandsleysi eða eins og það sé á tali þegar maður hringir í aðra. Syncið inná netið er hrikalega hægt, þú getur alveg eins hringt í næsta mann og látið hann googla fyrir þig eins og að reyna að tengjast netinu í gegnum símann. Svo viðrist netið vera mjög óstabílt, stundum er fínn hraði og svo nokkrum mínútum seinna er maður ekki með neitt netsamband.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:43
af Klemmi
Aldrei lent í neinu veseni með Nova :beer

Búinn að vera hjá þeim nánast frá stofnun.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:44
af GuðjónR
Sammála Klemma, er búin að vera þar síðan í okt eða nóv 2010 ekkert vesen.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:45
af Pandemic
Þetta er kannski bara ég, en núna t.d þegar ég prófa netsambandið þá er það fínt en einhvernveginn finnst mér það alltaf þegar ég þarf að nota það IRL aldrei virka neitt sérstaklega vel.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 21:48
af worghal
Buid ad vera svona hja mer sidan eg for i nova

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mán 23. Jan 2012 22:07
af svensven
Pandemic skrifaði:Þetta er kannski bara ég, en núna t.d þegar ég prófa netsambandið þá er það fínt en einhvernveginn finnst mér það alltaf þegar ég þarf að nota það IRL aldrei virka neitt sérstaklega vel.


Ég er að lenda í þessu, ömurlegt.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mið 25. Jan 2012 00:57
af intenz
Já fer endalaust á Roaming (Vodafone) og ég þarf að skipta handvirkt yfir. Óþolandi! :hnuss

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mið 25. Jan 2012 10:42
af ArnarF
Búið að vera flakka svakalega símsambandið hjá mér milli NOVA & Vodafone .. svo flakkar 3g netið af og til yfir á E ... getur orðið frekar þreytandi

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mið 25. Jan 2012 11:03
af Viktor
BjarniTS skrifaði:er meira að segja í ástarsambandi sem að byggir töluvert á samskiptaleiðum sem áttu sér stað í gegn um símkerfi NOVA , No prob.


Mynd

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mið 25. Jan 2012 11:22
af valdij
ArnarF skrifaði:Búið að vera flakka svakalega símsambandið hjá mér milli NOVA & Vodafone .. svo flakkar 3g netið af og til yfir á E ... getur orðið frekar þreytandi


Þetta gerist alveg fáránlega oft hjá mér. Gjörsamlega óþolandi, veit ekki hversu oft ég hef einmitt þurft að skipta automatískt frá Vodafone yfir á NOVA svo ég komist á 3G. Svo nokkrum timum siðar þá dett ég aftur yfir á Vodafone E.

Hefur líka gerst fyrir mig í miðjum símtölum að ég er tengdur NOVA, svo skellist á þá sé ég að síminn hefur fært sig yfir á Vodafone E og það skellist á meðan það gerist.

Það virðast líka vera ótrúlega margir "dead-zones" þar sem ekkert samband næst hérna á höfuðborgarsvæðinu, lendi allavega oft í því að vera með nánast ekkert samband.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mið 25. Jan 2012 11:51
af vesley
valdij skrifaði:
ArnarF skrifaði:Búið að vera flakka svakalega símsambandið hjá mér milli NOVA & Vodafone .. svo flakkar 3g netið af og til yfir á E ... getur orðið frekar þreytandi


Þetta gerist alveg fáránlega oft hjá mér. Gjörsamlega óþolandi, veit ekki hversu oft ég hef einmitt þurft að skipta automatískt frá Vodafone yfir á NOVA svo ég komist á 3G. Svo nokkrum timum siðar þá dett ég aftur yfir á Vodafone E.

Hefur líka gerst fyrir mig í miðjum símtölum að ég er tengdur NOVA, svo skellist á þá sé ég að síminn hefur fært sig yfir á Vodafone E og það skellist á meðan það gerist.

Það virðast líka vera ótrúlega margir "dead-zones" þar sem ekkert samband næst hérna á höfuðborgarsvæðinu, lendi allavega oft í því að vera með nánast ekkert samband.



Ég lendi lika mjög oft í þessu, en þetta hefur samt minnkað með hverri viku hjá mér.

Það skellist reyndar ekki á hjá mér þegar hann færir sig yfir.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Mið 25. Jan 2012 11:53
af dori
Ég fór í Nova í byrjun (af því að viðskiptamódelið þeirra gerði það mjög hagstætt fyrir mig). Ég hef alltaf notað 3g mjög mikið og Nova var vissulega ódýrt í gagnatraffík en gæðin á netinu þeirra eru ekki mikil (prufið að steyma mynd/hljóði eða gera eitthvað annað sem krefst svolítið áreiðanlegrar tengingar).

Fór yfir til Símans síðasta haust og er bara mjög sáttur. Aðeins hærri símreikningur en það er líka af því að svo margir sem ég þekki eru í Nova (fer samt minnkandi).

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fim 26. Jan 2012 21:25
af Blackened
Þetta vandamál er ekki til staðar á Akureyri amk ;) er alltaf í 3g sambandi meira og minna hvar sem ég er og netsambandið mjög fínt

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fim 26. Jan 2012 21:28
af worghal
dori skrifaði:Ég fór í Nova í byrjun (af því að viðskiptamódelið þeirra gerði það mjög hagstætt fyrir mig). Ég hef alltaf notað 3g mjög mikið og Nova var vissulega ódýrt í gagnatraffík en gæðin á netinu þeirra eru ekki mikil (prufið að steyma mynd/hljóði eða gera eitthvað annað sem krefst svolítið áreiðanlegrar tengingar).

Fór yfir til Símans síðasta haust og er bara mjög sáttur. Aðeins hærri símreikningur en það er líka af því að svo margir sem ég þekki eru í Nova (fer samt minnkandi).

ég hef allveg náð, án vandræða, að streama/downloada af ftp servernum hérna heima á símann minn úti í bæ á NOVA 3g, en vandamálið er bara að ég þarf manually að fara á NOVA til að byrja með.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fim 26. Jan 2012 23:01
af Tesy
ArnarF skrifaði:Búið að vera flakka svakalega símsambandið hjá mér milli NOVA & Vodafone .. svo flakkar 3g netið af og til yfir á E ... getur orðið frekar þreytandi


Gerist líka hjá mér, stendur oftast Vodafone en ekki NOVA og fæ stundum 3g og stundum E..
Búinn að vera hjá NOVA frá 2010.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fös 27. Jan 2012 12:47
af mobile
Góðan daginn – ég er starfsmaður Nova og rakst á þessa umræðu um sambandið hjá okkur,
Það eru greinilega skiptar skoðanir í gangi og það er mjög eðlilegt því sambandið er “lifandi” þ.e.a.s. það getur haft áhrif hvar viðkomandi býr / starfar, hvernig farsíma viðkomandi er með osfrv.
Við viljum auðvitað gera hvað við getum til að hafa hlutina í lagi, svo endilega hafið samband við mig eða komið í kaffi í 4G íbúðina okkar í Nova Lágmula og við getum farið betur yfir þetta.
bestu kveðjur

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fös 27. Jan 2012 13:22
af wicket
Vandamálið er auðvitað bara það að kerfið er með of marga notendur og sendarnir ofhlaðnir.

Ef að of margir eru á einum sendi er notendum vísað frá og öll bandvídd er samnýtt sem þýðir að hraðinn minnkar þegar maður er að browsa netið. Sama með 4G sem ég skil illa að Nova ætli sér að markaðssetja sem einhvern staðgengil fyrir ADSL tengingar sem hefur fastann hraða óháð því hvað aðrir notendur í götunni / hverfinu eru að gera.

Nova þarf að bæta við sendum og stækka pípurnar.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fös 27. Jan 2012 14:02
af Frost
Ef ég vill nota 3g netið þá þarf ég að færa mig yfir á Nova netið frá Vodafone, frekar þreytandi en ég nota 3g netið svo sjaldan að ég læt það ekki fara í taugarnar á mér.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fös 27. Jan 2012 14:20
af razrosk
vesen hjá mér, og hefur verið í marga mánuði..
missi samband, NOVA IS 3G dettur niður í Vodafone E draslið, netið hættir að virka og maður þarf að slökkva/kveikja á símanum til að fá það til að virka aftur... stundum er það rosalega hægt og lélegt samband (1 strik í stað 4)... og svo er það stundum bara alveg fínt samband...

Hvað er í gangi eiginlega?!

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fös 27. Jan 2012 14:39
af AronOskarss
"lifandi" er samt ekki nein ástæða, 3g kerfi er lifandi yfirhöfuð og virðist ekki standa sig svona hjá simanum eða vodafone, hversvegna er ég ekki að fá fullt samband oft hjá NOVA , en fæ fullt samband Þegar ég dett inná vodafone, þó netið sé hræðilegt. Ef vodafone og nova eru eitthvað að vinna með sömu kerfin eins og ég hef heyrt, er það þá öll samvinnan, möguleikinn á þvi að slysast inná vodafone og fá þaðan mjög hægt net.
Þarf oft að færa mig manually yfir, allt að 5 sinnum á dag.

Re: NOVA, vonlaust samband!

Sent: Fös 27. Jan 2012 15:08
af steinarorri
Nákvæmlega, það er fáranlegt að þurfa alltaf að manually færa sig yfir á Nova kerfið aftur. Hjá mér skiptir t.d. litlu máli hvar ég er, heima í Kópavogi, skólanum niðri í bæ, vinnunni í brh, strætó... maður þarf alltaf að vera að færa sig yfir og uppi í breiðholti er það svo ótrúlega hægt eftir að ég hef fært mig yfir. Þetta kerfi þeirra er löngu sprungið, skil ekki hvað þeir eru að hlaupa yfir í 4G (þó það sé nauðsynlegt að vera leiðandi í þróun farsímakerfis hér á landi) ef þeir geta ekki einu sinni rekið 3G kerfi almennilega.