Síða 1 af 2

Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 14:55
af ponzer
Fékk þetta í emaili og vildi bara deila þessu með ykkur ef þið eruð að leita af góðum síma á góðum prís :)

Mynd

https://vefverslun.siminn.is/shop.do?pID=11230

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:04
af audiophile
Ef að hann væri bara með LED flassi.....

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:07
af ponzer
Hann er með LED flassi

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:14
af audiophile
ponzer skrifaði:Hann er með LED flassi


Æj, var að rugla sama Nexus S og Galaxy S. Galaxy S er ekki með LED.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:34
af Halli25
Hvað þarf til að komast í þennan klúbb... sé þetta verð ekki á netinu hjá þeim :fullur

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:45
af ponzer
Halli25 skrifaði:Hvað þarf til að komast í þennan klúbb... sé þetta verð ekki á netinu hjá þeim :fullur


Þarft ekki að vera í neinum klúbb fyrir þetta tilboð, ferð bara á netverslunina þeirra og droppar svo bara þessum kóða "nexustilbod" inn í Tilboðslykill reitinn.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:51
af Gerbill
Hmm, hvernig er þessi? Var einmitt að leita mér að síma í þessu price range-i.
Worth it?

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 15:54
af dori
Hann er náttúrulega orðinn árs gamall og það er að fara að koma út nýr google sími, Galaxy Nexux. En ég myndi segja að þessi sé samt sem áður algjörlega 50 þúsund krónu virði.

EDIT: auðvitað heitir nýi síminn Galaxy Nexus.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 16:14
af ponzer
Galaxy Nexus er kominn hjá Símanum og Voda á 120k en ég er sjálfur með Nexus S og finnst hann geggjaður sem varð svo enn betri með ice cream sandwich :)

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 18. Jan 2012 16:36
af capteinninn
Hörku sími, búinn að eiga svona síðan í Apríl og hann er mjög góður

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 00:41
af bjornvil
Skellti mér á þetta tilboð, gat ekki annað :)

Get ekki beðið eftir að fá hann, fyrsti android síminn minn \:D/

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 00:51
af capteinninn
bjornvil skrifaði:Skellti mér á þetta tilboð, gat ekki annað :)

Get ekki beðið eftir að fá hann, fyrsti android síminn minn \:D/


Vel valið fyrsta val.
Það kemur vonandi Ice Cream Sandwich fljótlega út, þeir gáfu það út en útaf einhverjum batterígöllum hættu þeir við og ætla að laga það og gefa svo aftur út.
Er ekki viss hvenær það verður, veit það einhver ?

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 01:17
af bjornvil
hannesstef skrifaði:
bjornvil skrifaði:Skellti mér á þetta tilboð, gat ekki annað :)

Get ekki beðið eftir að fá hann, fyrsti android síminn minn \:D/


Vel valið fyrsta val.
Það kemur vonandi Ice Cream Sandwich fljótlega út, þeir gáfu það út en útaf einhverjum batterígöllum hættu þeir við og ætla að laga það og gefa svo aftur út.
Er ekki viss hvenær það verður, veit það einhver ?


Ég er búinn að vera að lesa mér til um þetta, virðist sem þetta vandamál sé aðeins að hrjá suma notendur og erfitt að finna orsök. Vonandi kemur þetta bara sem fyrst :)

Eitt sem mér fannst soldið súrt... ég rakst á það að þessi Nexus S sem er í boði hér virðist vera með SuperLCD skjá á meðan upphaflega hafi þessir símar verið með SuperAMOLED skjá. Skortur á AMOLED skjám varð til þess að þeir fóru í SLCD skjái í miðri framleiðslu.

Er SLCD alveg glatað miðað við S-AMOLED? Á ég eftir að pirra mig á þessu?

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 01:30
af intenz
bjornvil skrifaði:Ég er búinn að vera að lesa mér til um þetta, virðist sem þetta vandamál sé aðeins að hrjá suma notendur og erfitt að finna orsök. Vonandi kemur þetta bara sem fyrst :)

Eitt sem mér fannst soldið súrt... ég rakst á það að þessi Nexus S sem er í boði hér virðist vera með SuperLCD skjá á meðan upphaflega hafi þessir símar verið með SuperAMOLED skjá. Skortur á AMOLED skjám varð til þess að þeir fóru í SLCD skjái í miðri framleiðslu.

Er SLCD alveg glatað miðað við S-AMOLED? Á ég eftir að pirra mig á þessu?

http://www.youtube.com/watch?v=HSKyRzDUelY

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 05:44
af Gerbill
Hm, var að lesa reviews um þennan síma og eitt sem ég rakst á sem ég var að velta fyrir mér hvort þið sem eigið svona síma (eða hafið prófað) gætuð sagt til um,
"Extremely low voice quality" er e-ð til í þessu?

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 09:07
af bjornvil
Gerbill skrifaði:Hm, var að lesa reviews um þennan síma og eitt sem ég rakst á sem ég var að velta fyrir mér hvort þið sem eigið svona síma (eða hafið prófað) gætuð sagt til um,
"Extremely low voice quality" er e-ð til í þessu?


Ég sá það review líka... það hefur verið eitthvað gallað tæki, eða gæjinn eitthvað með dapra heyrn þar sem lang flest önnur reviews sem ég hef séð segja að þessi sé með mjög gott voice quality. Einn sagði að þessi væri sá besti sem hann hefði nokkurn tíman prufað með það að gera.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 09:07
af bjornvil
intenz skrifaði:
bjornvil skrifaði:Ég er búinn að vera að lesa mér til um þetta, virðist sem þetta vandamál sé aðeins að hrjá suma notendur og erfitt að finna orsök. Vonandi kemur þetta bara sem fyrst :)

Eitt sem mér fannst soldið súrt... ég rakst á það að þessi Nexus S sem er í boði hér virðist vera með SuperLCD skjá á meðan upphaflega hafi þessir símar verið með SuperAMOLED skjá. Skortur á AMOLED skjám varð til þess að þeir fóru í SLCD skjái í miðri framleiðslu.

Er SLCD alveg glatað miðað við S-AMOLED? Á ég eftir að pirra mig á þessu?

http://www.youtube.com/watch?v=HSKyRzDUelY


Fuckit... getur ekki verið eitthvað issue :)

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 11:05
af audiophile
SLCD eru fínir skjáir og eins og kemur fram í myndbandinu, ekki langt frá Iphone 4 skjánum, sem er IPS LCD skjár frá LG. Það er svipaður skjár í LG Optimus Black, kallaður Nova Display.

Mér finnst AMOLED ekki vera eins frábæir og flestir segja að þeir séu.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 11:16
af Zpand3x
Ef ég væri ekki að eyða laununum mínum í að borga páskaferð þá væri ég búinn að kaupa þennan.. Þetta er sick verð :P Spurning að troða sér í þennann klúbb :D
Vona að það komi eitthvað svipað tilboð í sumar, þá hoppa ég pottþétt á það.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fim 19. Jan 2012 22:27
af bjornvil
Ég er allavega helsàttur með þessi kaup mín, bara flottur sími!

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Fös 20. Jan 2012 02:32
af Gerbill
Ah oh, þarf að staðgreiða þetta tilboð? (þ.e. raðgreiðsla virkar ekki)

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mán 30. Jan 2012 13:19
af marte1nn
Þessi sími kemur með android 2.3.3, getur einhver sagt mér afhverju hann er ekki að uppfærast.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mán 30. Jan 2012 13:22
af Halli25
marte1nn skrifaði:Þessi sími kemur með android 2.3.3, getur einhver sagt mér afhverju hann er ekki að uppfærast.

þeir frestuðu uppfærslunni þar sem það komu fram gallar varðandi rafhlöðuendingu í 4.0, skilst það styttist samt í að það sé lagað

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 01. Feb 2012 09:32
af bjornvil
marte1nn skrifaði:Þessi sími kemur með android 2.3.3, getur einhver sagt mér afhverju hann er ekki að uppfærast.


Þetta er góð spurning að því leiti að burtséð frá ICS þá ætti þessi sími að uppfærast í 2.3.5, jafnvel 2.3.7, en ég hef verið með minn í tvær vikur og ekki fengið neina uppfærslu.

Re: Tilboð frá Símanum, Nexus S á 49.900

Sent: Mið 01. Feb 2012 09:56
af ponzer
Finnst skrítið að þú fáir ekki uppfærslu því að síminn á að fara í 2.3.6 sem er "nýjasta" uppfærslan á 2.3 gingerbread burt séð frá því hvort hann eigi að fá ICS uppfærsluna eða ekki. Þessar official OTA uppfærslur koma aðeins ef þú ertu á Wifi!

Annars var ég að lesa á XDA að það eru einnhverjir farnir að fá 4.0.3 eftir pásuna.