Síða 1 af 1
nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 16:01
af sunna22
Halló ég var að spá í að láta kaupa fyrir mig nokia sima út í glasgow. En er örugglega ekki ísl valmynd í þeim þótt þeir séu keiftir úti. Ég heyrði einhvern timann að það værri sett ísl kerfi hér á landi. Ég trúi því varla er þessi kerfi ekki sett upp í verksmiðjunum. Og eru símanir nokkuð í ábyrgð hér þegar þeir eru keiftir úti. Kveðja ein vitlaus
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 16:28
af hsm
Það er 1árs alþjóðleg ábyrgð á Nokia símum, Hátækni er með umboðið hér heima held ég.
Varðandi íslensku valmyndina þá er hægt að láta setja upp stýrikerfið aftur hjá Hátækni með íslenskri valmynd ef hún er ekki fyrir.
En ef þú uppfærir símann eða stýrikerfið á honum, þá missir þú íslensku valmyndina og þarft að láta setja það upp aftur.
Og það kostar nokkra þúsundkalla í hvert skifti...
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 17:37
af Black
keftir keiftir Hvernig sími er þetta og ertu búinn að skoða hvað hann kostar hér á landi.Borgar það sig að kaupa hann úti?
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 21:02
af sunna22
Þetta er Nokia C3-00 og kostar hjá vodafone 25þús.
http://www.vodafone.is/netverslun/simar/um/Nokia+C3-00En ég sá á einhver staðar á netinu í dag að hann kostaði um 80 pund.
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 21:12
af lukkuláki
Black skrifaði:keftir keiftir
Rétta stafsetningin er
KEYPTIR
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 21:15
af ORION
lukkuláki skrifaði:Black skrifaði:*MYND*[/img]
keftir keiftir
Rétta stafsetningin er
KEYPTIR
ég Keypti mér tölvu?
þú keyptir þér tölvu?
Hann keypti sér tölvu?
Það sá enga ástæðu til að vesenast í tölvum *punktur*
Way off?
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 22:05
af sunna22
Hann kostar 20þús í elko Leifsstöð. Þannig að það fer að verða spurning hvort það borgi sig að kaupa hann úti.
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 22:38
af lukkuláki
Fáðu þér þennan hann er flottur og kostar bara 25.000 í Hátækni með 2 ára ábyrgð og alles. Snertiskjár
http://hataekni.is/is/vorur/1000/1010/A00003635/
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 22:45
af AntiTrust
Ef þú ert bara að enda með því að spara þér e-rn 5kall þá myndi ég bara kaupa hann hérna heima, auka ár í ábyrgð, auðveldara að fá þjónustu ef þarf etc.
Annars er þetta flottur sími, hef handleikið einn svona töluvert og það er alveg merkilega mikill gæðafílíngur í þessum síma m.v. verð - og ekki skemmir QWERTY lyklaborðið fyrir.
Re: nokia keftur úti
Sent: Mið 04. Jan 2012 22:55
af IL2
Ef þú kaupir hann úti er annað lyklaborð á honum en hérna heima. Það myndi kosta þig uppundir 5.000 að láta skipta um það og uppfæra hann í Íslensku.
Re: nokia keftur úti
Sent: Lau 07. Jan 2012 09:59
af sunna22
Jæja ég fékk mér nokia c3-00. En hvar stillir maður símann þannig að ísl stafir koma t.d þ ð. Finn það ekki er samt búin að stilla hann á ísl valmynd og tungumál texta samt finn ég það ekki. Kannski er maður bara svona vitlaus en það eiga vera isl stafir á maður að þurrfa að ná í eitthvað forrit. Eða þarf maður þetta Symbian forrit. með fyrir fram þökk um skjótt og MJÖG jákvæð viðbrögð kveðja einn treggáfuð
Re: nokia keftur úti
Sent: Lau 07. Jan 2012 11:48
af IL2
Ég HELD að það þurfi að flassa hann. Það er ekki nóg að setja einhver forit upp eða var það alla vega ekki með minn E71.
Re: nokia keftur úti
Sent: Sun 08. Jan 2012 20:09
af sunna22
Halló mig vantar uppl um skjábirtu í símanum. Þær eru ekki í skjástillingum ein og vanalega í nokia. Er ekki lika til eitthvað forrit sem maður getur downloadað í símann og ráðið skjábirtuni sjálfur.