Síða 1 af 1

HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 20:08
af chaplin
Veit e-h hvort HTC hleðslutækin virka einnig fyrir Samsung síma? Í mínu tilviki er ég að vonast til þess að hleðslutækið sem fylgdi Desire símanum mínum virki einnig á SGS2.

Hefur e-h hugmyndum það þar sem þetta eru auðvita bæti USB micro tengi á símunum..

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 20:09
af vesley
Ég veit að HTC tengið virkar allavega bæði fyrir Nokia og aðrar týpur af Samsung.

Allavega hefur það virkað hjá mér á ódýrari Samsung símunum.

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 21:25
af Swooper
Já, ef það er micro USB hleðslutæki þá virkar það með öllum símum með micro USB tengi. Segir það sig ekki alveg sjálft? :|

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 21:34
af chaplin
Swooper skrifaði:Já, ef það er micro USB hleðslutæki þá virkar það með öllum símum með micro USB tengi. Segir það sig ekki alveg sjálft? :|

Ekki ef það væri mismunandi spenna, það virðist allavega ekki vera að virka, síminn einfaldlega ræsir sig, er í gangi í sirka mínútu og endurræsir sig og fer í loopu..

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 21:45
af Swooper
daanielin skrifaði:

USB er með staðlaða 5V spennu.

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 23:10
af Kristján
og það ætti að standa á hleðslutækinu hvað það er að gefa út í spennug og það ætti líka að standa í manualinum hvað síminn þarf í spennu.

svo er líka google mjög sniðugt.

hélt samt usb væri bara stöðluð tengi en það er kannski mismunandi spenna sem fer um þau.

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 23:15
af MarsVolta
daanielin skrifaði:
Swooper skrifaði:Já, ef það er micro USB hleðslutæki þá virkar það með öllum símum með micro USB tengi. Segir það sig ekki alveg sjálft? :|

Ekki ef það væri mismunandi spenna, það virðist allavega ekki vera að virka, síminn einfaldlega ræsir sig, er í gangi í sirka mínútu og endurræsir sig og fer í loopu..

Wh00t ? Síðast þegar ég vissi var 4,8-5V - 1A á öllum svona hleðslutækjum, hljómar mjög asnalega að þú getir ekki notað HTC hleðslutæki við Samsung síma. Ég var einmitt með Samsung Galaxy S með HTC hleðslutæki, virkaði bara mjög vel.

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Sun 25. Des 2011 23:18
af Haxdal
Samkvæmt ESB löggjöfinni þá áttu að geta notað sama hleðslutæki við alla síma, sameiginlegi staðallinn sem var valinn var Micro USB tengi. Ef eitthvað hleðslutæki frá einum framleiðenda virkar ekki fyrir annan þá AFAIK er það brot á þessari löggjöf.

Re: HTC USB Micro hleðslutæki fyrir Samsung

Sent: Mán 26. Des 2011 00:16
af Swooper
Haxdal skrifaði:Samkvæmt ESB löggjöfinni þá áttu að geta notað sama hleðslutæki við alla síma, sameiginlegi staðallinn sem var valinn var Micro USB tengi. Ef eitthvað hleðslutæki frá einum framleiðenda virkar ekki fyrir annan þá AFAIK er það brot á þessari löggjöf.

Get ekki beðið eftir að sama gerist með fartölvur (ekki micro USB auðvitað, meina stöðluð hleðslutæki)... En já, eins og er löngu komið fram þá eru öll MicroUSB hleðslutæki eins, eini munurinn er á veggtengjunum eftir því fyrir hvaða land þau eru.