Síða 1 af 1

Sim-kort í einhverju rugli

Sent: Sun 25. Des 2011 17:28
af hauksinick
Ég var að nota gamla símann minn um daginn þar sem síminn minn gaf sig endanlega.
Hann virkaði ágætlega þar til einn daginn þegar hann náði engu sambandi. Prufaði að setja kortið í annan síma og það virkaði þar, þá hélt ég að sá sími hefði verið ónýtur bara.
En þá fékk ég síma í jólagjöf og sim-kortið virkaði ekki þar. Prufaði annað nova sim kort í hann og það virkaði. Prufaði að setja mitt kort í annan síma og það virkaði þar.

Hvað í ósköpunum getur verið að?

Re: Sim-kort í einhverju rugli

Sent: Sun 25. Des 2011 17:32
af worghal
farðu í nova og fáðu nýtt kort.
það gæti verið þetta vesen sem var talað um um daginn, sumir símar taka ekki nova kortum :(

Re: Sim-kort í einhverju rugli

Sent: Sun 25. Des 2011 17:35
af hauksinick
Já en það virka mörg önnur nova kort í þessum sama síma?

Re: Sim-kort í einhverju rugli

Sent: Mán 26. Des 2011 20:50
af hauksinick
Veit enginn neitt?

Re: Sim-kort í einhverju rugli

Sent: Mán 26. Des 2011 21:17
af Akumo
Fá nýtt kort hjá nova og sjá hvort það lagi þetta ef ekki þá fara með símann til þeirra.