Síða 1 af 1

Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 11:46
af hsm
Sælir

Veit einhver hér hvort að það sé hægt að fá festingar í bíl fyrir iPad 2 hér á landi.
Er búinn að leita og finn bara ekki neitt. ????

Kv HSM

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 13:02
af Moquai
Er akkurat að leita af bókastandi fyrir bílinn þannig að ég get lesið eitthverjar spennandi glæpasögu á ljósum.

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 13:22
af dori
Moquai skrifaði:Er akkurat að leita af bókastandi fyrir bílinn þannig að ég get lesið eitthverjar spennandi glæpasögu á ljósum.

Ég ætla að gera ráð fyrir því að þú sért að leika þér að kaldhæðni. Þú kannski þekkir möguleika iPad ekki mjög vel en það er t.d. hægt að fá fín GPS forrit fyrir hann sem réttlætir það algjörlega að vilja festa hann einhversstaðar þar sem er hægt að sjá á hann. Svo getur verið að hann vilji festa hann fyrir aðra en ökumann til að bjóða uppá skemmtun fyrir einhverja farþega (þó mér finnist hinn möguleikinn líklegri).

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 13:29
af worghal
dori skrifaði:

ég held það sé ekkert íslandskort til fyrir ipad

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 13:49
af dori
worghal skrifaði:ég held það sé ekkert íslandskort til fyrir ipad
Góður punktur. Þú átt þá við Íslandskort fyrir forrit sem styðja svona leiðsagnardót? Það eru náttúrulega til forrit sem styðja svona tracking dæmi og sýna þér ýmsar upplýsingar um hvað þú ert að gera. Ég er með eitthvað þannig sem heitir MotionX GPS (keypti það reyndar bara í einhverju flippi og hef lítið skoðað hvað það býður uppá annað en kort sem sýnir manni hvar maður er :P)

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 13:53
af sunna22
Ertu búin að prófa isiminn. Þar er gott úrval.
http://isiminn.is/

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 14:59
af Moquai
dori skrifaði:
Moquai skrifaði:Er akkurat að leita af bókastandi fyrir bílinn þannig að ég get lesið eitthverjar spennandi glæpasögu á ljósum.

Ég ætla að gera ráð fyrir því að þú sért að leika þér að kaldhæðni. Þú kannski þekkir möguleika iPad ekki mjög vel en það er t.d. hægt að fá fín GPS forrit fyrir hann sem réttlætir það algjörlega að vilja festa hann einhversstaðar þar sem er hægt að sjá á hann. Svo getur verið að hann vilji festa hann fyrir aðra en ökumann til að bjóða uppá skemmtun fyrir einhverja farþega (þó mér finnist hinn möguleikinn líklegri).

haha djóka sko =] en annars sá ég svona stand fyrir síma úr sílíkoni, þá er það bókstaflega bara fast þar :s, en veit ekki hvort að það er á iPad stærð.

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 15:33
af DabbiGj
http://www.rsimport.is/ eiga allt sem að þig vantar og festingar fyrir nánast öll tæki í bíla

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 16:04
af Viktor
sunna22 skrifaði:Ertu búin að prófa isiminn. Þar er gott úrval.
http://isiminn.is/

Hef aldrei séð klunnalegri hönnun á standi.

Mynd

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 16:09
af Glazier
Sallarólegur skrifaði:
sunna22 skrifaði:Ertu búin að prófa isiminn. Þar er gott úrval.
http://isiminn.is/

Hef aldrei séð klunnalegri hönnun á standi.

Mynd

Hvernig ætti hann annars að vera?
Skrúfa hann bara fastann í miðjuna á ipadinum?
Voða einfaldur standur, mjög svipaður þeim sem notaðir eru fyrir gps tæki :)

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 18:19
af hsm
worghal skrifaði:
dori skrifaði:
Moquai skrifaði:Er akkurat að leita af bókastandi fyrir bílinn þannig að ég get lesið eitthverjar spennandi glæpasögu á ljósum.

Ég ætla að gera ráð fyrir því að þú sért að leika þér að kaldhæðni. Þú kannski þekkir möguleika iPad ekki mjög vel en það er t.d. hægt að fá fín GPS forrit fyrir hann sem réttlætir það algjörlega að vilja festa hann einhversstaðar þar sem er hægt að sjá á hann. Svo getur verið að hann vilji festa hann fyrir aðra en ökumann til að bjóða uppá skemmtun fyrir einhverja farþega (þó mér finnist hinn möguleikinn líklegri).

ég held það sé ekkert íslandskort til fyrir ipad

Það passar dori er akkurat að spá í navigation GPS, ég keypti mér navigation forrit þegar ég var úti í BNA
og notaði iPadinn sem leiðsögutæki og þvílík snilld og öll vegakort sem hann hefur uppá að bjóða.
Það er að sjálfsögðu vegkort fyrir Ísland og meira segja Færeyjar. Já ég elska iPadinn minn, er samt ekki að segja að apple sé betra en eitthvað annað :megasmile

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 18:36
af slubert
hvaða app ertu að nota fyrir GPS ? vantar ísl vegakort í ipad.

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 19:18
af Danni V8
Er ekki Google Earth og 3G net í iPad 2?

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 19:20
af worghal
Danni V8 skrifaði:Er ekki Google Earth og 3G net í iPad 2?

íslands kortið á google earth sökkar all svakalega, getur nánast ekkert zoomað inn

Re: Festingar í bíl fyrir iPad 2 ??????

Sent: Mið 14. Des 2011 19:29
af hsm
slubert skrifaði:hvaða app ertu að nota fyrir GPS ? vantar ísl vegakort í ipad.

GPS Navigation 2 by Skobbler en það kostar um 60 dollara ef þú tekur kort fyrir allan heiminn.