Síða 1 af 1
Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Fös 25. Nóv 2011 23:50
af Gúrú
Ma & pa fundu síma liggjandi upplýstan úti í snjónum, kveikt á honum í "Insert PUK" valmyndinni,
hvað dettur ykkur í hug til að koma honum til eiganda?
Langar ekki beint að nota neyðarlínuna í þetta (einungis hægt að hringja í neyðarsímtalanúmer án PUKsins) en
það væri örugglega fínt fyrir einhvern að fá símann sinn til baka.
Í millitíðinni sendi ég TAL þessar upplýsingar og IMEI númerið.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Fös 25. Nóv 2011 23:52
af tdog
Koma honum í næstu verslun símafyrirtækisins sem kortið er merkt. Þeir fletta upp IMSI númerinu og tengja það við símanúmerið. Þeir sjá sjálfir um að hringja í eigandann.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Fös 25. Nóv 2011 23:54
af Magginn
Það er væntanlega minniskort í símanum? Fara svo með símann þangað sem að simkortið er frá, þeir ættu að geta fundið eiganda símans.
hehe jæja ég var of seinn
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Fös 25. Nóv 2011 23:54
af chaplin
tdog skrifaði:Koma honum í næstu verslun símafyrirtækisins sem kortið er merkt. Þeir fletta upp IMSI númerinu og tengja það við símanúmerið. Þeir sjá sjálfir um að hringja í eigandann.
x2
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 02:53
af Sphinx
búinn að prufa hringja i gaurinn ?
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 02:56
af Plushy
Sphinx skrifaði:búinn að prufa hringja i gaurinn ?
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 11:56
af tdog
Gúrú skrifaði:Í millitíðinni sendi ég TAL þessar upplýsingar og IMEI númerið.
IMEI númerið er í SIM kortinu sjálfu, ekki utan á því. Það númer kallast ICCID. Þeim er [að ég held fullkomlega] ólöglegt að láta þig hafa upplýsingar um hver á númerið þannig þú verður að fara með símann til þeirra. Ekki vera asni og fara að gramsa á SD kortinu í símanum heldur, það er bara dónaskapur.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 12:21
af steinarorri
tdog skrifaði:Gúrú skrifaði:Í millitíðinni sendi ég TAL þessar upplýsingar og IMEI númerið.
IMEI númerið er í SIM kortinu sjálfu, ekki utan á því. Það númer kallast ICCID. Þeim er [að ég held fullkomlega] ólöglegt að láta þig hafa upplýsingar um hver á númerið þannig þú verður að fara með símann til þeirra. Ekki vera asni og fara að gramsa á SD kortinu í símanum heldur, það er bara dónaskapur.
IMEI númer er auðkennisnúmer símans, ekki SIM kortsins og ég "held" að það sé oftast á bak við batterýið.
ICCID er hinsvegar, eins og þú segir, auðkenni sim kortsins.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 13:40
af tdog
Ég átti við IMSI, afsakið ruglinginn. IMEI númerið er aftan á símanum sjálfum, IMSI númerið geymt í kortinu sjálfu. Hægt er að tengja UCCID númerið við símanúmer en ég er ekki viss hvort það sé svo auðvelt með IMEI númer.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 13:53
af Gúrú
tdog skrifaði:Gúrú skrifaði:Í millitíðinni sendi ég TAL þessar upplýsingar og IMEI númerið.
Þeim er [að ég held fullkomlega] ólöglegt að láta þig hafa upplýsingar um hver á númerið þannig þú verður að fara með símann til þeirra. Ekki vera asni og fara að gramsa á SD kortinu í símanum heldur, það er bara dónaskapur.
Ég gerði mér grein fyrir því að ég fengi aldrei að vita hver ætti símann, ætti samt að vera lítið mál fyrir þá
að láta eiganda símans vita hvar ég er með símann hans, nenni semí ekki upp í Tal til að skila
þessum síma,
mestu verðmætin hérna fyrir eigandann eru eflaust símaskráin.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 14:42
af ZiRiuS
Hvar fannst hann? Ég var að koma heim í gærnótt þegar tveir gaurar voru að leita af týndum síma á bílaplaninu heima, ég bý hliðina á Borgarspítalanum, býst við því að þeir séu þaðan einhverstaðar.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 15:14
af Gúrú
ZiRiuS skrifaði:Hvar fannst hann? Ég var að koma heim í gærnótt þegar tveir gaurar voru að leita af týndum síma á bílaplaninu heima, ég bý hliðina á Borgarspítalanum, býst við því að þeir séu þaðan einhverstaðar.
Hálfan kílómeter frá Borgarspítalanum í Fossvogi, á horninu Hólmgarður-Grensásvegur held ég.
Nokia 1650 sími.
Re: Fundinn farsími úti - besta röð aðgerða
Sent: Lau 26. Nóv 2011 17:00
af vikingbay
Gúrú skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Hvar fannst hann? Ég var að koma heim í gærnótt þegar tveir gaurar voru að leita af týndum síma á bílaplaninu heima, ég bý hliðina á Borgarspítalanum, býst við því að þeir séu þaðan einhverstaðar.
Hálfan kílómeter frá Borgarspítalanum í Fossvogi, á horninu Hólmgarður-Grensásvegur held ég.
Nokia 1650 sími.
Sennilega einhver sem hefur fundið hann, labbað með hann hálfann kílómeter og reynt að giska á pin númerið þangað til hann var beðinn um puk númerið og hennt honum..