Síða 1 af 1

Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 10:52
af Gilmore


Ég er að leita að góðri 17" vél og er með þessar tvær í huga:

http://www.buy.is/product.php?id_product=9208367

http://www.buy.is/product.php?id_product=9208294

Þær virðast vera með frekar svipað specs, nema Dell vélin er með 3D. Er eitthvað vit í því?

Hefur annars einhver reynslu af þessum vélum?

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:30
af MarsVolta
Asus vélin er með betra skjákort og er mun myndalegri ;). Ef ég væri að pæla í þessum kaupum þá myndi ég taka Asus vélina, ekki spurning.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:32
af Plushy
Asus á líka að vera með lægri bilanatíðnið

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:34
af MatroX

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:37
af Gilmore
MatroX skrifaði:afhverju ekki þá að taka þessa?
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=21&products_id=2070


Er ekki HD og skjákort aðeins betra í G73 vélinni? Annars var ég að spá í þessari líka. :)

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:39
af MarsVolta
MatroX skrifaði:afhverju ekki þá að taka þessa?
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=21&products_id=2070


Því það er mun betra skjákort í Vélinni sem hann linkar á ? Annars á ég eins tölvu og þú bendir á inná Tölvutækni síðunni, nema bara 15". Ég veit ekki hversu vel GT 540m skjákortið höndlar 1920x1080 upplausn í nýrri leikjum.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:54
af Gilmore
Ég mundi líka skipta öðrum diskinum út seinna fyrir SSD og nota hann utanáliggjandi sem backup disk.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 11:59
af MarsVolta
Gilmore skrifaði:Ég mundi líka skipta öðrum diskinum út seinna fyrir SSD og nota hann utanáliggjandi sem backup disk.

Hörðu diskarnir sem eru í Asus vélinni á buy.is eru í raid0, þannig þú ættir að fá ágætis hraða ;) En annars er SSD mjög góð hugmynd. En síðan er líka spurning hvort þú viljir bíða í margar vikur eftir að buy.is skipti út íhlutum í tölvunni ef hún bilar. Ég hef sjálfur ekki góða reynslu af þessu fyrirtæki og mæli ekki með þessari þjónustu við neinn. Ég myndi hringja uppí Tölvutækni og sjá hvort það sé mögulegt fyrir þá að flytja svona tölvu inn fyrir þig :).

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 12:19
af Gilmore
Svo er það þessi skratti:

http://buy.is/product.php?id_product=9208415

Maður er kannski að teygja sig of langt......orðin mikið öflugri en borðvélin, sem er ekkert slor.

Ég er einmitt að spá í því ef eitthvað bilar, þá gæti maður verið í veseni. Kannski það sé ekki svo góð hugmynd að panta á þessari síðu. Ég er reyndar ekki að lenda mikið í því að vélar bili hjá mér. Get oftast reddað því sjálfur nema það sé gallaður búnaður auðvitað.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 12:50
af hendrixx
Hvað með Dreamware? Getur fengið sudda tölvu á 215

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 12:51
af Gilmore
Ekki vitlaust....en langar í 17".

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 12:57
af hendrixx
já meinar

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 13:21
af lukkuláki
Ég er alltaf mjög hrifinn af Dell en það verður bara að segjast eins og er að XPS línan frá þeim hefur verið til mikilla
vandræða síðustu árin og ég á ekki von á að það sé neitt að breytast því miður.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 13:44
af Gilmore
En þessi skratti:

http://buy.is/product.php?id_product=9208331

Flott spec og cool vél, nema kannski aðeins of mikið gamer útlit fyrir minn smekk. Kemur samt til greina.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 13:47
af lukkuláki
Gilmore skrifaði:En þessi skratti:

http://buy.is/product.php?id_product=9208331

Flott spec og cool vél, nema kannski aðeins of mikið gamer útlit fyrir minn smekk. Kemur samt til greina.



Brrr MSI ég fékk alveg gæsahúð af skelfingu. Persónulega segi ég ASUS af þessu sem þú ert búinn að nefna.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 13:49
af Gilmore
Hvað er að MSI?

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 18:17
af Gilmore
MSI GT780R er komin efst á listan....einhver mótmæli??

Á einhver svona stykki?

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 18:26
af MarsVolta
Gilmore skrifaði:MSI GT780R er komin efst á listan....einhver mótmæli??

Á einhver svona stykki?


Það er alltof há bilanatíðni á MSI fartölvunum skilst mér.

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 18:27
af lukkuláki
Gilmore skrifaði:MSI GT780R er komin efst á listan....einhver mótmæli??

Á einhver svona stykki?


Já ekkert mál vertu bara með aðra til að nota þegar MSI er á verkstæðinu

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 19:05
af Gilmore
Damn...... :mad

Held áfram að leita. ](*,)

Re: Asus G73SW-A1 vs Dell XPS 3D?

Sent: Mið 16. Nóv 2011 19:06
af Nördaklessa
hehe, snilld, þessi þráður minnti mig á að buy.is er enn til :sleezyjoe