Síða 1 af 1

Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Mán 07. Nóv 2011 21:25
af eyjostinsen
Halló.

Ég er þrettán ára og er að fara að fermast á næsta ári. Var að pæla í hvaða fartölva væri best að fá í fermingargjöf fyrir 120.000 eða minna.

Ef þið hafið séð góðar og flottar fartölvur.. endilega segja mér það.
Er að pæla í einhverri betri en þessari ---> http://tolvutek.is/vara/packard-bell-ea ... olva-svort :-k

Senda má tölvupóst á mig... eyjo.krist@gmail.com

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Mán 07. Nóv 2011 21:32
af lifeformes
eru fermingabörn farin að velja gjafirnar sínar sjálf :popeyed

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Mán 07. Nóv 2011 21:36
af bulldog
þessir lítur vel út en það koma ábyggilega fermingartilboð þar sem fengist meira fyrir peninginn þegar nær dregur.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Mán 07. Nóv 2011 21:45
af Victordp
Myndi fara í borðtölvu, þegar að ég fermdi mig keypti ég lappa var sáttur með þessi kaup í svona mánuð. En ef þú vilt lappa myndi ég bíða eftir að tilboðin koma.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Mán 07. Nóv 2011 21:50
af daniellos333
sammála viktori, lappar gera mann geðveikan ef þetta er ekki einhver ofur alienware tölva

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Mán 07. Nóv 2011 23:51
af Haxdal
lifeformes skrifaði:eru fermingabörn farin að velja gjafirnar sínar sjálf :popeyed

lol, hafa þau ekki alltaf valið stóru gjöfina sjálf ?.

Ég veit að þegar ég fermdist fyrir laaaaanga löngu síðan þá valdi ég mína gjöf frá mömmu og pabba, og allir sem ég þekkti líka frá sínum foreldrum.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 00:11
af Black
Ég myndi fá mér borðtölvu, nema þá þú sért að fara útí 10" tölvu þá svosem skiptir það engu hvað þú velur, ég keypti fyrir fermingarpeningana amd 4200+vél með 9600gt korti og sú vél virkar flott ennþá og spilar flesta leiki, ef ég hefði fengið mér fartölvu þá væri hún prob ónothæf núna.. þannig ég myndi fá mér desktop vél.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 00:38
af moneytalks
http://buy.is/product.php?id_product=9208300 góð tölva fyrir lítinn pening

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 01:25
af Bioeight
Ef þú ætlar að spila leiki þá færðu þér fartölvu með AMD Llano örgjörva, sem er með skjákortið á örgjörvanum sjálfum(A8-3850, A6-3600, o.s.frv.). Það er akkurrat það sem er í þessari Packard Bell tölvu sem þú ert að benda á. Ef þú ætlar ekki að spila neina leiki eða gera neitt sem krefst góðs skjákorts þá færðu þér Intel örgjörva, eins og tölvan á buy.is er með. Færð ekki skjákort sem er betra en skjákortið á Llano örgjörvunum fyrir þennan pening.

Hvenær mun þessi tölva vera keypt? Það er mjög erfitt að mæla með einhverri einni fartölvu núna því að þetta á eftir að breytast áður en þú fermist. Mæli með því eins og einhver annar sagði að bíða eftir fermingartilboðunum. Jafnvel getur verið að það verði komið eitthvað af AMD Trinity þá og þá jafnvel enn sniðugra að fara í AMD.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 02:16
af DabbiGj
Held að menn fatti ekki hvað skjástýringarnar eru orðnar lúmskt öflugar í dag er með HP Probook 4530 með intel 2310 með HD 3000 eða eitthvað álíka og hún keyrir cs:s, TF2 og fleirri leiki með glans.

En auðvitað ef menn vilja nýjasta nýtt og fínast ða þá eru það önnur lögmál í gangi.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 02:28
af Bioeight
Intel skjástýringin getur ýmislegt í dag en AMD skjástýringin getur meira og kostar svipað. Þannig að ef maður hefur valið á milli Intel skjástýringu og AMD skjástýringu fyrir leikina þá velurðu AMD.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 06:35
af gardar
Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 08:39
af sveik
Ef ég væri að fara að kaupa mér fartölvu þá myndi ég tvímælalaust fá mér þessa
Thinkpad e420 hjá búðin.is

Þessi kæmi líka til greina
ASUS B43J-A1B hjá Kísildal

En eins og kom fram hér á undan þá eru nú einhverjir mánuðir í fermingar og bæði verðlækkanir og útsölur í millitíðinni svo ég myndi bíða og sjá til...

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 08:51
af chaplin
gardar skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.

Haha sammála!

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 19:04
af Haxdal
gardar skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.

Svo þú varst sofandi á gólfinu áður þá?.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 20:07
af eyjostinsen
En ef þú værir að horfa á þætti, bíómyndir og nota hana í skólanum.. Hvað væri sniðugast að kaupa hana þá ?

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 20:53
af BjarkiB
eyjostinsen skrifaði:En ef þú værir að horfa á þætti, bíómyndir og nota hana í skólanum.. Hvað væri sniðugast að kaupa hana þá ?


Ha?

En ef þú ert aðeins að fara nota tölvuna í þetta en ekki leiki þá myndi ég fara í fartölvu.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 22:41
af gummih
ég myndi ekkert vera að skoða 17 tommu fartölvurnar... fékk þannig og það var óþolandi hvað maður gat ekkert tekið þetta með sér, svo er batterís endingin ekkert betri.. mesta sem þu myndir fá eru 2 tímar :thumbsd

en þessi vél sem þú póstaðir er örugglega eitt besta valið, allaveganna af því sem ég hef séð á þessum tíma.

Re: Fermingar Fartölvan í Ár

Sent: Þri 08. Nóv 2011 22:45
af gardar
Haxdal skrifaði:
gardar skrifaði:Mikið er ég feginn að hafa fengið rúm í fermingargjöf frá mínum foreldrum en ekki fengið fermingargjöf sem var orðin úrelt eftir 6 mánuði.

Svo þú varst sofandi á gólfinu áður þá?.



Nei en ég er búinn að sofa í amerísku gæðarúmi síðan ég fermdist \:D/