Síða 1 af 1

Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:23
af benson
Mynd

Það er smá tilraunastarfsemi í gangi og við verðum með live coverage á facebook og twitter og líka á Símon.is :)
Símon.is á facebook
Símon.is á twitter
Símon.is

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:23
af GuðjónR
:happy

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:26
af Tiger
Semsagt bara þýtt live-blog frá erlendum síðum?

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:31
af benson
Snuddi skrifaði:Semsagt bara þýtt live-blog frá erlendum síðum?


Nei við verðum á staðnum! :)

Hehe, jú þetta er þýtt af erlendum síðum og já ég veit líklega verðið þið að lesa þetta live á engadget, thisismynext.com eða öðrum tæknisíðum. Þetta er ekki beint stílað inn á die hard nörda sem fylgjast með þessu live frá öðrum síðum heldur frekar þá sem hafa ágætlega mikinn áhuga á tæknimálum en nenna ekki að fá hvern einasta detail frá erlendu síðunum.

Eins og ég segi þá er þetta smá tilraunastarfsemi :)

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:33
af Tiger
benson skrifaði:
Snuddi skrifaði:Semsagt bara þýtt live-blog frá erlendum síðum?


Nei við verðum á staðnum! :)

Hehe, jú þetta er þýtt af erlendum síðum og já ég veit líklega verðið þið að lesa þetta live á engadget, thisismynext.com eða öðrum tæknisíðum. Þetta er ekki beint stílað inn á die hard nörda sem fylgjast með þessu live frá öðrum síðum heldur frekar þá sem hafa ágætlega mikinn áhuga á tæknimálum en nenna ekki að fá hvern einasta detail frá erlendu síðunum.

Eins og ég segi þá er þetta smá tilraunastarfsemi :)


Bara gott framtak, meinti þetta ekki á neinn slæman hátt heldur bara forvitnast hvernig þið ætluðuð að tækla þetta.

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:39
af benson
Takk fyrir það :)

En ég áttaði mig alveg á því að þegar ég postaði þessu hérna að vaktin.is væri kannski aðeins of mikið af nördum sem vita alveg hvar þeir eiga að fylgjast með þessu. En prufum þetta, kannski hefur fólk áhuga á þessu :)

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:39
af Hjaltiatla
Fínt að geta skoðað þetta í vinnuni. Kíki á þetta með öðru auganu.

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 14:40
af chaplin
Ánægður með hvað Simon.is er virk síða og hefur augljóslega áhuga á farsímasviðinu. Kudos til ykkar! :8)

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 17:58
af Hjaltiatla
Var að spá hangir síðan http://www.simon.is líka hjá ykkur þegar þið farið inná hana?

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 18:06
af Hjaltiatla
Komst loksins inn

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 18:53
af benson
Það er búið að vera vesen með hýsinguna undanfarið, sorry með það :(
En við skiptum á morgun og þá ætti þetta að detta í lag!

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 18:56
af benson
daanielin skrifaði:Ánægður með hvað Simon.is er virk síða og hefur augljóslega áhuga á farsímasviðinu. Kudos til ykkar! :8)


Takk fyrir það, við erum stór hópur og reynum helst að koma með 1-2 greinar á dag.
Það gengur samt misjafnlega :)

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 20:33
af intenz
"iPhone 4s með A5 örgjörva (staðfest)" ... kommon það segir manni ekki neitt.

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 21:00
af wicket
A5 er sami örgjörvi og í ipad2 þannig að jú það segir okkur eitthvað. Hann er dual-core og er fast klukkaður í 1Ghz.

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 21:08
af capteinninn
Hahaha þetta finnst mér snilld, allir þvílíkt spenntir fyrir nýja iPhone 5 og svo trollar apple með því að gefa bara út iPhone 4s.
Hvenær á iPhone 5 að koma út þá?

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Þri 04. Okt 2011 21:10
af worghal
Mér sýnist það líði 2 ár á milli talna og svo "s" á milli

Re: Símon.is: iPhone event kl 17 í dag að íslenskum tíma

Sent: Mið 05. Okt 2011 00:42
af BjarniTS
Mynd