Síða 1 af 1

Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 23. Sep 2011 21:57
af HalistaX
Hvað segja menn um þennan síma?
Er einhver með reynslu af honum?
Er búinn að vera að skoða hann smá og hann hljómar ekkert illa verð ég að segja :)

http://www.vodafone.is/netverslun/simar ... +Ace+S5830

http://reviews.cnet.co.uk/mobile-phones ... -50002651/

(Ég veit, Samsung Galaxy II er awesome.. en ég hef mjög limited budged..)

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 23. Sep 2011 22:01
af biturk
fínasti sími, stórgóður fyrir peninginn en batteríið er all verulega leiðinlega stutt :thumbsd


enda er ég að spá í að kaupa mér öflugara batterí að utan 1600 or sum :happy

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 23. Sep 2011 23:06
af Tesy
Mjög góður sími fyrir peninginn, örruglega sá besti. Go for it!

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 23. Sep 2011 23:13
af HalistaX
Ókei, Takk fyrir svörin :)

Skottast útí Vodafone á morgun og kíki á hann :D

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 23. Sep 2011 23:16
af berteh
Besta bang for the buck IMHO

Hef átt svona síma síðan i maí og hann hefur staðið sig eins og hetja eina er að batterís endingin er ekki sú besta en hann þraukar alltaf daginn að minnsta kosti, ég átti optimus one áður og finnst þessi mun betri að öllu leiti :)

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 23. Sep 2011 23:21
af HalistaX
Haha, Batteríið skiptir mig ekki það miklu máli :)
Hver hleður ekki yfir nótt?? ;)

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Lau 24. Sep 2011 01:25
af Danni V8
Á svona síma.

Eina sem ég get sett út á er myndavélin, sem mér finnst erfitt að fá til að taka í fókus og síðan er ekki flash support í honum.

Mjög góður sími þrátt fyrir það. Finnst ekkert að batterí endingunni, hann er töluvert skárri en gamli SE Xperia Arc sem ég átti.

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Lau 24. Sep 2011 21:24
af HalistaX
Andsk.. hann var ekki til á Selfossi í dag :/

Hefur einhver reynslu af þvi að panta hjá Vodafone.is?? :)

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Mið 28. Sep 2011 18:39
af HalistaX
Keypti hann áðan :)

Er nokkuð sáttur með hann :D er að downloada Angry Birds núna ;)

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Mið 28. Sep 2011 18:54
af Oak
HalistaX skrifaði:Haha, Batteríið skiptir mig ekki það miklu máli :)
Hver hleður ekki yfir nótt?? ;)

Mjög góður kostur að þurfa ekki að hlaða á hverjum degi myndi ég segja...

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Mið 28. Sep 2011 19:17
af elri99

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 30. Sep 2011 21:55
af HalistaX
Það er aldeilis sem batteríið er lélegt.. :'D

En hérna, ég setti SD kortið sem fylgdi með honum í eftir að ég keypti hann og er búinn að vera að skoða svona 'Öpp' á Android búðini, sótti Angry Birds, Angry Birds: Rio, IMDB, Wikipedia, Facebook og allskonar crap..
En núna kemur alltaf að það sé ekki nóg pláss fyrir dótið sem ég ætla að sækja..
Veit einhver hvað er að frétta með það?
Á ég að geta valið einhverstaðar hvar ég save'a 'Öppin' ? Þar að segja á simann eða SD kortið?

Re: Samsung Galaxy Ace S5830?

Sent: Fös 30. Sep 2011 23:27
af PepsiMaxIsti
HalistaX skrifaði:Það er aldeilis sem batteríið er lélegt.. :'D

En hérna, ég setti SD kortið sem fylgdi með honum í eftir að ég keypti hann og er búinn að vera að skoða svona 'Öpp' á Android búðini, sótti Angry Birds, Angry Birds: Rio, IMDB, Wikipedia, Facebook og allskonar crap..
En núna kemur alltaf að það sé ekki nóg pláss fyrir dótið sem ég ætla að sækja..
Veit einhver hvað er að frétta með það?
Á ég að geta valið einhverstaðar hvar ég save'a 'Öppin' ? Þar að segja á simann eða SD kortið?


Þetta er bara vandamál með þennan síman, en þú getur náð þér í app2sd og reynt að færa einhver öpp á sd kortið, en mörg öpp þurfa að vera á símanum, sem að er galli að mínu mati.