Síða 1 af 1

[Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 20:27
af intenz
Sælir, mig langar að nota símann minn sem tónlistarspilara.

Ég er að leita að bestu leiðinni til að ná að koma upp synci við tölvu þannig ég geti stjórnað lögunum/playlistunum á tölvunni og þurfi aldrei að gera neitt á símanum, nema að spila lögin.

Eruð þið með einhverjar lausnir?

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 20:41
af Sultukrukka
Unified remote + winamp = goodshit...

Þ.e.a.s ef þú vilt nota tölvuna sem output fyrir tónlistina

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 20:43
af Hvati
Gætir skoðað Audiogalaxy

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 20:54
af intenz
IceDeV skrifaði:Unified remote + winamp = goodshit...

Þ.e.a.s ef þú vilt nota tölvuna sem output fyrir tónlistina

Þetta er ekki það sem ég vil gera. Ég vil nota símann minn sem tónlistarspilara (iPod) í partýum og slíkt og er að leita að góðri einfaldri leið til að synca tónlistina frá tölvunni við símann.


Hvati skrifaði:Gætir skoðað Audiogalaxy

Ég vil ekki streama! Ég vil copera músík frá tölvunni yfir á símann svo ég geti hlustað á tónlist í símanum hvar sem er og í partýum og slíkt.

Ég stefni á að nota símann eins og iPod

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 21:10
af Sultukrukka
Þá býst ég við að þú myndir vilja geta nálgast fæla af tölvuni án þess að þurfa að vera á local neti býst ég við?

Væri þá ekki sniðugast að vera bara með ftp server og decent client í símanum? Kannski ekki beint mest user friendly en líklegst skynsamlegasta leiðin til að gera þetta ef þú ætlar ekki að vera bundinn við local net.

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 21:14
af intenz
IceDeV skrifaði:Þá býst ég við að þú myndir vilja geta nálgast fæla af tölvuni án þess að þurfa að vera á local neti býst ég við?

Væri þá ekki sniðugast að vera bara með ftp server og decent client í símanum?

Nei, nei, nóg að vera bara á localneti. Tengi símann við tölvuna, bý til playlista, yfirfæri músík, ekkert mál - líkt og á iPod. En það er of mikið vesen að þurfa að færa músík yfir, búa svo til playlistann á símanum. Vil bara geta gert þetta allt í einu á tölvunni.

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 21:27
af Dormaster
intenz skrifaði:
IceDeV skrifaði:Þá býst ég við að þú myndir vilja geta nálgast fæla af tölvuni án þess að þurfa að vera á local neti býst ég við?

Væri þá ekki sniðugast að vera bara með ftp server og decent client í símanum?

Nei, nei, nóg að vera bara á localneti. Tengi símann við tölvuna, bý til playlista, yfirfæri músík, ekkert mál - líkt og á iPod. En það er of mikið vesen að þurfa að færa músík yfir, búa svo til playlistann á símanum. Vil bara geta gert þetta allt í einu á tölvunni.


ef þú ert að tala um eins og iPod virkar, semsagt bara að synca hann við iTunes.
þá hef eg verið að nota easy phone tunes.

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 21:38
af Sultukrukka
Þetta er víst líka hægt með Winamp en ég fæ þetta bara engan vegin til að virka. Næ ekki að fá winamp til að discovera símann hjá mér.

Þvílík synd þar sem að ég neita að nota Itunes.

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 22:10
af viddi
winamp syncar fínnt yfir WiFi :happy

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 22:16
af arnif
Google Music og Google Music app ?

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Sun 18. Sep 2011 22:47
af intenz
Winamp væri frábær lausn ef WiFi sync í því væri ekki svona lélegt.

Bý til playlist á tækinu í Winamp, dreg lög inn í playlistann en lögin fara ekki á playlistann. Ég þarf að fara í tækið inni í Winamp og velja lögin sem ég vil fá á playlistann og hægri smella og velja "Send to playlist".

@Dormaster vil helst sleppa við að nota iTunes :)

Re: [Android] Nota símann sem tónlistarspilara

Sent: Mán 19. Sep 2011 11:34
af wicket
Google Music.

Býrð til playlista og gerir hann svo available offline :)