Síða 1 af 1
Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 18:05
af Arkidas
Vantar fartölvu á undir 200k. Var að pæla í Dreamware eða Thinkpad vél. 15" skjár - þyngd skiptir ekki máli.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 18:08
af MarsVolta
Kemur ekkert annað til greina en Dreamware eða Thinkpad ?
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 18:08
af Arkidas
Júbb. Var bara að pæla í því.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 18:10
af MarsVolta
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1979Ég mæli með þessu eintaki ef það er allt í lagi að batterýið dugi í 3-4 tíma í venjulegri vinnslu.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 18:12
af kjarribesti
Ég færi í þetta hérna
- dreanware.jpg (177.98 KiB) Skoðað 1487 sinnum
Öflug og með hrikalegan ssd disk, miðað við fartölvu þá er þessi vél á 200k gott dæmi.
Eða vélina sem var bent á hér fyrir ofan, reyndar er hún klassi líka.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 19:08
af OverClocker
Varðandi Dreamware og ssd þá fór ég og skoðaði tölvuna í Start og hef aldrei séð tölvu boota jafn hratt upp og Dreamware 150. Kom nú í ljós að sýningar eintakið var tjúnað í botn.. 1600mhz minni, intel 510 og ég veit ekki hvað.. alvöru græja þarna.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 19:21
af Eiiki
Ég myndi klárlega taka vélina sem MarsVolta benti þér á. Fáðu svo að semja við drengina í tölvutækni og skiptu út harða disknum í þessari tölvu og fáðu þér SSD disk í staðin. Þá ætti þessi tölva að vera komin upp í eitthvað í kringum 200 kallinn og orðin fáránlega öflug. Það eina sem mætti setja útá með vélina er að batteríið endist ekki neitt vangefið lengi en það ætti að vera fínasta ending á því ef þú passar að hafa það ekki alltaf í hleðslu...
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 22:19
af Daz
Hvað eru kröfurnar? Leikjatölva, skólatölva, vinnutölva? Afhverju bara Dreamware eða Thinkpad. Annað merkið glænýtt og óþekkt, svolítið leikjamiðað, hitt mjög þekkt í solid vinnutölvum, en ekki miklar leikjavélar.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 17. Ágú 2011 23:48
af Tesy
Eiiki skrifaði:Ég myndi klárlega taka vélina sem MarsVolta benti þér á. Fáðu svo að semja við drengina í tölvutækni og skiptu út harða disknum í þessari tölvu og fáðu þér SSD disk í staðin. Þá ætti þessi tölva að vera komin upp í eitthvað í kringum 200 kallinn og orðin fáránlega öflug. Það eina sem mætti setja útá með vélina er að batteríið endist ekki neitt vangefið lengi en það ætti að vera fínasta ending á því ef þú passar að hafa það ekki alltaf í hleðslu...
Það sem hann sagði, hef bara góða reynslur á ASUS vélar og tölvutækni er með awesome þjónusta.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Fim 18. Ágú 2011 15:02
af Arkidas
Vil bara tölvuna með besta vélbúnaðinn fyrir þennan pening. Er ekki að hugsa um meðfærileika (á samt að vera 15").
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Fim 18. Ágú 2011 15:56
af Halli25
Arkidas skrifaði:Vil bara tölvuna með besta vélbúnaðinn fyrir þennan pening. Er ekki að hugsa um meðfærileika (á samt að vera 15").
Þessi er soldið sexý og rétt sleppur
http://tl.is/vara/21065
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Þri 23. Ágú 2011 21:05
af OverClocker
Samt fyndið að ef þú velur Dreamware 251 með sama hardware þeas sami örgjörvi, minni og diskur þá kostar hún 164.900 en þessi 199.900.
Báðar með sama skjákorti.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 24. Ágú 2011 09:33
af Halli25
OverClocker skrifaði:Samt fyndið að ef þú velur Dreamware 251 með sama hardware þeas sami örgjörvi, minni og diskur þá kostar hún 164.900 en þessi 199.900.
Báðar með sama skjákorti.
hvernig færðu það út að 520 og 540 sé sama skjákort? Plús það eru Harman Kardon hátalarar í Toshiba vélinni
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 24. Ágú 2011 09:36
af BjarniTS
faraldur skrifaði:OverClocker skrifaði:Samt fyndið að ef þú velur Dreamware 251 með sama hardware þeas sami örgjörvi, minni og diskur þá kostar hún 164.900 en þessi 199.900.
Báðar með sama skjákorti.
hvernig færðu það út að 520 og 540 sé sama skjákort? Plús það eru Harman Kardon hátalarar í Toshiba vélinni
Verð reyndar að segja eitt með hátalara , að ég átti Toshiba vél einmitt með Harman Kardon , og veistu það að ef að menn ætla að gera sér einhverjar svakalegar væntingar varðandi fartölvuhátalara þá eru þær dæmdar til að verða ekki uppfylltar.
Ef að menn vilja hljómgæði frá fartölvu þá tengja þeir snúru við hana.
Re: Fartölva á undir 200k
Sent: Mið 24. Ágú 2011 09:39
af MatroX