Síða 1 af 1
Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Mán 15. Ágú 2011 16:37
af Carragher23
Sælir vaktarar
Er að velta fyrir mér þessum síma. Félagi minn er á spáni og sagðist hafa séð bæði S2 og S2 plus á búð útá spáni á ca 380 evrur.
Þetta er auðvitað grín verð en er þetta fake? Hann sagði að verðin á s2 og s2 plus væru svipuð en getur það verið?
Var ekki lengri biðtími í plus útgáfuna?
Talaði einnig við bræðurna ormsson og þeir eru ekki tilbúnir að veita ábyrgð. Finnst bjánalegt að Samsung eru ekki með alheimsábyrgð ( 1 ár ) á sínum vörum eins mörg stór fyrirtæki.
Kv.
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Mán 15. Ágú 2011 16:53
af BirkirEl
ef að þessir símar eru ekta og nýjir þá er söluaðilinn allavega ekki að græða á sölunni.
galaxy s2 plus ? hef hvergi séð að sá sími sé kominn út...
ef ég væri þú þá myndi ég alfarið sleppa þessu
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Mán 15. Ágú 2011 18:41
af wicket
Þetta geta ekki verið alvöru verð. Hann er dýrari en þetta í innkaupum.
Væntanlega eru þetta verð með einhversskonar samningi við spænskt símafélag, það finnst mér mjög líklegt.
Svo hafa Bræðurnir Ormsson ekkert með Samsung farsíma að gera, þeir hafa ekki umboðið fyrir slík tæki. Tæknivörur eru fyrirtækið sem þú vilt tala við, þeir eru með umboðið fyrir Samsung farsíma.
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Mán 15. Ágú 2011 20:29
af intenz
Nokkuð viss um að þetta sé Samsung Galaxy S2 og svo Samsung Galaxy S Plus (ekki S2), þar sem S2 Plus er ekki kominn út.
Já ég gæti hugsa að þetta sé með einhverjum föstum samning við eitthvað spænskt símafélag.
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Mán 15. Ágú 2011 21:28
af Carragher23
Mmm grunaði það.
Er svona að efast hvort ég eigi að skella mér á þetta.
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Þri 16. Ágú 2011 18:43
af Carragher23
Eitt hérna í viðbót, er einhver leið að sjá það að um sé að ræða fake eða ekki. Númer í símanum eða eitthvað svoleiðis. Maður veit aldrei hvort um mjög góða eftirlíkingu sé að ræða.
Ég myndi alveg treysta mér til að dæma um það sjálfur en félagi minn sem er úti er ekki mesta tæknigúru sem fyrirfinnst.
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Þri 16. Ágú 2011 19:36
af g0tlife
keipti minn Samsung Galaxy S2 útí hollandi fyrir mánuði síðan á 490 evrur
Re: Samsung Galaxy s2 plus
Sent: Þri 16. Ágú 2011 20:33
af Carragher23
80 þús er ágætlega sloppið.
Myndi samt persónulega alltað kaupa þennan síma hjá Nova. 109 þús og af því dregst 24 þús
endar í 85 þús + að þú ert með góðan söluaðila auk tveggja ára ábyrgðar.
ÞAð er bara því ég er að fá símann á 65 þús sem ég er virkilega að spá í þessu. En þetta verð er bara einum of gott til að vera satt