Síða 1 af 1

Kaup á fartölvu

Sent: Lau 13. Ágú 2011 13:13
af Icer
Sælir,

Ég hef hugsað um kaup á fartölvu í svolítinn tíma. Ég er kominn með tvær vélar en hef bara ekki hugmynd um hvor þeirra væru betri kaup.

Önnur þeirra er í Tölvutek: http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=28143

En hin er í Tölvutækni: http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1974

Spurningin er hvort þær geti alveg keyrt nýjustu leikina og í raun hvor þeirra er betri kostur. Asus vélin er með i7 örgjörva en Packard Bell vélin er með i5.
En ég er staðsettur á Norðurlandi og Tölvutek er því betri kostur fyrir mig ef eitthvað myndi gerast við tölvuna. (Með tryggingar að gera)
Þess vegna skýt ég hérna inn þriðju spurningunni, er alveg þess virði að vera panta þessa Asus vél að sunna og láta senda hingað norður, er hún alveg það góð eða það mikið betri?

En 175.000 er það mesta sem ég vil eyða í fartölvuna.

Þakka fyrir öll svör

Kv. Ingvi

Re: Kaup á fartölvu

Sent: Lau 13. Ágú 2011 14:01
af tölvukallin

Re: Kaup á fartölvu

Sent: Lau 13. Ágú 2011 16:42
af Icer
Þetta Dreamware er ekki alveg að heilla mig. 175.000 "budgettið" er ekki hagstætt ef ég myndi panta frá Dreamware.

Til að hafa i7 örgjörva myndi verðið hjá Dreamware fara upp í 191.000 (Á Dreamware W150HRO) á þá á enþá eftir að stækka td: harða diskinn upp í 750.

En það er í raun sama verð á Asus vélinni og Dreamware W251HPQ...

En eins og ég segi er Dreamware ekki alveg að heilla mig eins og er og því stendur valið enþá á milli Asus vélarinnar hjá tölvutækni og Packard Bell hjá Tölvutek

Þakka samt fyrir hugmyndina.

En fyrri spurningar um bæði Asus vélina og PB standa enþá

Kv. Ingvi

Re: Kaup á fartölvu

Sent: Sun 14. Ágú 2011 18:46
af Icer
Enginn sem getur aðstoðað mig aðeins? :D

Kv. Ingvi

Re: Kaup á fartölvu

Sent: Sun 14. Ágú 2011 18:48
af MarsVolta
Ég á nákvæmlega eins Asus tölvu bara með 8GB í vinnsluminni(Ég er að skrifa úr henni núna) og ég get ekki annað en mælt með henni ! Gjörsamlega trufluð tölva :) og síðan er þjónustan uppí tölvutækni til fyrirmyndar. Svona uppá framtíðina að gera þá finnst mér quad-core kosturinn mun gáfulegri heldur en dual-core örgjörvi. Ég var annars að spila FEAR 3 í gær og tölvan höndlar hann bara mjög vel ef þú ert að pæla í leikjaspilun ;).

Re: Kaup á fartölvu

Sent: Sun 14. Ágú 2011 18:56
af Icer
Þú ert þá væntanlega að tala um þetta "skrímsli": http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1979

Mér lýst vel á hana. Spurning um að ég taki hana bara.

Re: Kaup á fartölvu

Sent: Sun 14. Ágú 2011 19:04
af MarsVolta
Icer skrifaði:Þú ert þá væntanlega að tala um þetta "skrímsli": http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1979

Mér lýst vel á hana. Spurning um að ég taki hana bara.


Já ég er að tala um þessa ;), rosalega flott og góð fartölva :).