Síða 1 af 1
Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 17:28
af Daz
Loksins uppfærðist Optimus One síminn minn í 2.3 og núna er stanslaust uppi táknið um plássleysi. Ég er búinn að færa öll forrit yfir á SD sem hafa þann möguleika innbyggðan og því spyr ég, eru mínir einu kostir að taka út þessi fáu forrit sem eftir eru föst í símanum, eða að roota símann og taka út for-uppsett forrit (Thinkfree office, ég er að hugsa um þig og þín 10 tilganslausu mb). Eru ekki til einhver non-root forrit sem leyfa mér að færa úr síma yfir á SD kortið?
Er svosem ekkert spenntur að fara að roota símann, ef ég kemst hjá því þ.e.a.s.
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 17:43
af BirkirEl
App 2 SD ætti að vera það sem þú ert að leita af
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 17:54
af Daz
Geturðu sent mér Market link, það eru fleiri en 1 forrit sem finnst þegar maður leitar að App2SD. Svo er ég búinn að færa öll forrit úr símaminni yfir á SD kortið, öll sem styðja það (og notaði til m.a.
Apps 2 SD )
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 17:57
af BirkirEl
þetta er forritið sem ég var að tala um. hélt að það væri nóg.
veit ekki um annað betra.
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 18:03
af Daz
Virðast vera nokkur forrit sem voru for-uppsett sem ég get ekki fært yfir á SD kortið. Get ekki tekið þau út heldur.
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 18:05
af audiophile
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 18:42
af Daz
Gerði svosem bara það sama og hitt forritið sem ég var með. Virðist sem ég verði að roota símann til að un-installa þessum aukaforritum? Engar aðrar lausnir?
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 19:00
af bixer
er semsagt komin uppfærsla?!?!
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 19:02
af intenz
Daz skrifaði:Gerði svosem bara það sama og hitt forritið sem ég var með. Virðist sem ég verði að roota símann til að un-installa þessum aukaforritum? Engar aðrar lausnir?
Nei, engar aðrar lausnir án þess að roota. Nema að installa custom ROM sem er ekki með þessi apps.
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 20:11
af berteh
Var með Cyanogen7 a mínum Optimus og fílaði alltaf mun betur en stock lg það var tiltölulega litið mál að set a upp og ekkert mal að reverta aftur i stock
Sent from my GT-S5830 using Tapatalk
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 21:40
af blitz
Skil ekki af hverju fólk rootar ekki.
Þegar þú ert búinn að lesa þig til þá tekur þá ~50 min með öllu. Ef síminn þarf að fara í viðgerð tekur ~5min að fara aftur í stock.
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 21:59
af berteh
"Rooting is best explained like this, say you have a mansion of a house with an indoor pool, retractable roof, movie theater, heated floors and all of the other things a house of this caliber may contain, but all of the controls are in the basement and the basement door is locked... rooting unlocks that door"
stolið af íslensku android facebook síðunni
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 22:26
af Daz
blitz skrifaði:Skil ekki af hverju fólk rootar ekki.
Þegar þú ert búinn að lesa þig til þá tekur þá ~50 min með öllu. Ef síminn þarf að fara í viðgerð tekur ~5min að fara aftur í stock.
Sumir hafa kannski ekki efni á því að taka neina áhættu með símann sinn (0,1% áhætta er jú enþá áhætta)? Sumir með vinnusíma? Sumir tækniheftir? Eða bara menn eins og ég sem búast við því að hlutirnir virki, fyrst þetta er Android
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Sun 31. Júl 2011 22:30
af blitz
Daz skrifaði:blitz skrifaði:Skil ekki af hverju fólk rootar ekki.
Þegar þú ert búinn að lesa þig til þá tekur þá ~50 min með öllu. Ef síminn þarf að fara í viðgerð tekur ~5min að fara aftur í stock.
Sumir hafa kannski ekki efni á því að taka neina áhættu með símann sinn (0,1% áhætta er jú enþá áhætta)? Sumir með vinnusíma? Sumir tækniheftir? Eða bara menn eins og ég sem búast við því að hlutirnir virki, fyrst þetta er Android
Held að ég hafi aldrei séð case þar sem einhver klúðrar þessu, brickar og getur ekki lagað símann aftur á tiltölulega einfaldan hátt.
Re: Android 2.3, plássleysi
Sent: Þri 02. Ágú 2011 00:10
af Daz
ég eyddi örugglega meira en 50 mín í að reyna að ríóráðstefnunni, tókst ekki. Prófað nokkur mismunandi forrit. Svo ég er aftur à byrjunarreit. Einhver sem þekkir leið til að taka út þessi pre-installed forrit eða getur bent mér áleiðis með að rölta ( android 2.3, LG Optimus One )