Síða 1 af 1

Android vs iOS

Sent: Mán 06. Jún 2011 20:14
af GuðjónR
Þá er það komið á hreint.
Ég fæ mér frekar iPhone.

Mynd

Re: Android vs iOS

Sent: Mán 06. Jún 2011 20:28
af worghal
i wonder about his Data plan :-"

Re: Android vs iOS

Sent: Mán 06. Jún 2011 21:15
af bAZik
iOS 5 er svo mikil fokking snilld að það er ekki fyndið..

Re: Android vs iOS

Sent: Mán 06. Jún 2011 21:39
af wicket
IOS5 er mjög flott.

Samkeppnin er af hinu góða, það sannar sig hér enn og aftur. Það sem að iOS5 er að koma með má finna að öllu leiti í Android nema iMessenger sem er hrein stæling (copy & paste) á BlackBerry Messenger.

Yndislegt hvernig þessi stýrikerfi ýta hverju öðru áfram og þau veita hvort öðru aðhald.

Persónulega vel ég Android. Var með iPhone 1st gen og iPhone 3GS og prófaði svo Android og hef verið þar síðan. iPhone er engu að síður snilld, bara hentar mér ekki.

Re: Android vs iOS

Sent: Mán 06. Jún 2011 21:59
af chaplin
Tvö hæst rate-uðu commentin af Engadget.

That awkward moment when iOS 5 copies Android's notification system, BBM and WebOs multitasking. Apple wasn't kidding when they called 2011 the year of the copycats.

How can Apple go around suing everybody and then go and do something like this?


Ég sé ekkert merkilegt við iOS5, ekki það að ég sé e-h Apple hater, finnst iPhone 4 einn flottasti og stílhreinasti farsíminn á markaðinum og væri mjög svo til í einn slíkan, með Android. Finnst allt svo miklu sveigjanlegra og frjálsara með Android stýrikerfinu og mun halda mig við Desire-inn minn þanga til ég fæ Galaxy S II.

Mynd

Re: Android vs iOS

Sent: Mán 06. Jún 2011 23:45
af Orri
daanielin skrifaði:Ég sé ekkert merkilegt við iOS5, ekki það að ég sé e-h Apple hater, finnst iPhone 4 einn flottasti og stílhreinasti farsíminn á markaðinum og væri mjög svo til í einn slíkan, með Android. Finnst allt svo miklu sveigjanlegra og frjálsara með Android stýrikerfinu og mun halda mig við Desire-inn minn þanga til ég fæ Galaxy S II.

Með þessum sveigjanleika og frelsi fylgir oft mikið vesen.
Kannski er það bara því maður er búinn að alast upp við síma sem lítið er hægt að eiga við, en ég vill að síminn minn geti gert vissa hluti (3g, browser, myndavél, tónlistar og video spilari o.fl.) og ég vill að þeir virki vel, lýti vel út og ekkert vesen..

iOS er stílhreint, einfalt og virkar vel, en það er líka með alla fídusa sem þú þarft nútildags og helling af valmöguleikum á bakvið þessa fídusa.
Ef mig vantar svo eitthvað sem iOS býður ekki uppá þá fer ég bara á Google og finn add-on í Cydia sem gerir það fyrir mig.

Re: Android vs iOS

Sent: Mið 08. Jún 2011 00:34
af chaplin
Alveg sammála því enda langar mig stundum í iPhone útaf stöðu- og einfaldleikanum, en Android getur verið svo persónulegt, síminn minn er gerður eftir mínu höfði, bara það að geta breytt um þema er stór kostur fyrir mér og er það ástæðan afhverju Android símar geta verið draumasíminn fyrir alla.