Síða 1 af 2
Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:15
af intenz
Ég er að spá í nýjum síma og fannst þessir tveir koma sterkastir til greina. Þar sem þeir eru frekar svipaðir ákvað ég að gera smá samanburð á þeim og hafði Samsung Galaxy S II töluvert betur...
Kostir Sensation framyfir Galaxy S II:- Betri upplausn (QHD [540x960] vs. WVGA [480x800])
- Dual LED flash
- Stereo upptaka
- Rúnnaðra/þægilegra body
Kostir Galaxy S II framyfir Sensation:- Meira RAM
- Léttari (plast vs. ál)
- Betri myndupptökugæði (dýpri contrast/litir, laus við lagg í 1080p)
- Betri skjár (Super-AMOLED vs. Super-LCD)
- Betra batterí + ending (1650 mAh vs. 1520 mAh)
- Getur skipt um launcher, fastur með Sense UI v3.0 í Sensation
- Betra benchmark rating (sjá myndband fyrir neðan)
Heimildir:http://www.youtube.com/watch?v=p3axSZX1R_s http://www.gsmarena.com/compare.php3?id ... hone2=3875 Sample videos:Galaxy S II: http://www.youtube.com/watch?v=pgLy0ubZfxE Sensation:
http://www.youtube.com/watch?v=GJu-0siHRjU (takið eftir lagginu)
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:24
af halli7
Iphone 4 er bara málið
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:33
af Kristján
HAHA er þetta spurning? Galaxy tekur sensation og!! iphone4 i þurt
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:34
af halli7
já en stýrikerfið í iphone er svo miklu þæginlegra, allavega miðað við mína reynslu af android.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:36
af intenz
halli7 skrifaði:Iphone 4 er bara málið
Þú ert náttúrulega ekki heilbrigður ef þú ætlar að bera þessa síma saman við iPhone 4. Þeir éta iPhone 4 gjörsamlega!
- Miklu minni skjár á iPhone 4
- Minna RAM í iPhone 4
- Verri myndavél í iPhone 4 (720p á móti 1080p)
- 1 GHz single core örgjörvi í iPhone 4 (á móti 1,2 GHz duo-core)
Svona mætti lengi telja.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:39
af halli7
intenz skrifaði:halli7 skrifaði:Iphone 4 er bara málið
Þú ert náttúrulega ekki heilbrigður ef þú ætlar að bera þessa síma saman við iPhone 4. Þeir éta iPhone 4 gjörsamlega!
- Miklu minni skjár á iPhone 4
- Minna RAM í iPhone 4
- Verri myndavél í iPhone 4 (720p á móti 1080p)
- 1 GHz single core örgjörvi í iPhone 4 (á móti 1,2 GHz duo-core)
Svona mætti lengi telja.
Enda var ég að tala um stýrikerfið á iphone sem er mun þæginlegra.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:42
af Kristján
hvernig er osið þægilegra?
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:46
af halli7
Kristján skrifaði:hvernig er osið þægilegra?
allavega var ég með htc desire í 1 mánuð og lenti oft í því að síminn var að frosna á mjög asnalegum tímum t.d að svara símtölum og oft einhvað not responding.
En hef aldrei lent í neinu veseni eftir að ég fékk mér iphone
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 02:54
af intenz
halli7 skrifaði:Kristján skrifaði:hvernig er osið þægilegra?
allavega var ég með htc desire í 1 mánuð og lenti oft í því að síminn var að frosna á mjög asnalegum tímum t.d á svara símtölum og oft einhvað not responding.
En hef aldrei lent í neinu veseni eftir að ég fékk mér iphone
Ég viðurkenni alveg að iOS hafi yfirhöndina hvað varðar þennan eyecandy smoothleika, en það er líka það eina. En það sem þú talar um er eitthvað tengt viðkomandi tæki. Ég hef aldrei lent í neinu svona á mínum Android síma og hef aldrei heyrt neinn tala um eitthvað líkt þessu.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 03:00
af halli7
Kannski var ég bara með gallað eintak, en eftir að ég fékk mér Iphone er ég mjög sáttur og bíð bara spenntur eftir iphone 5
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 03:03
af Kristján
intenz skrifaði:halli7 skrifaði:Kristján skrifaði:hvernig er osið þægilegra?
allavega var ég með htc desire í 1 mánuð og lenti oft í því að síminn var að frosna á mjög asnalegum tímum t.d á svara símtölum og oft einhvað not responding.
En hef aldrei lent í neinu veseni eftir að ég fékk mér iphone
Ég viðurkenni alveg að iOS hafi yfirhöndina hvað varðar þennan eyecandy smoothleika, en það er líka það eina. En það sem þú talar um er eitthvað tengt viðkomandi tæki. Ég hef aldrei lent í neinu svona á mínum Android síma og hef aldrei heyrt neinn tala um eitthvað líkt þessu.
dýrka að það sé latið mann vita að það sé buið að posta áður en maður postar.
en já x2 í raun, nkvl það sem ég ætlaði að segja.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 07:36
af audiophile
Ég var að fá mér LG Optimus Black og get bara ekki séð hvernig nokkur hefur við meira að gera. 4" 480x800, 1ghz, 1gb, 1500mah, 5mp, LED flash.....Smá aukning frá þessum speccum held ég að sé ekki tugþúsunda virði.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 08:10
af Kristján
galaxy II kostar ekki nema 109þús, sem er ekki mikið finnst mér, fyrir besta símann á markaðinum núna, htcinn á eftir að kosta meira örugglega.
er lg black ekki dual core?
en þetta er líka hárrétt hjá þér
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 08:31
af Zethic
intenz skrifaði:- Getur skipt um launcher, fastur með Sense UI v3.0 í Sensation
Root it and boot it (in something else)
HTC Wildfire-inn minn var með þetta ógeðslega Sense UI og ég bara rootaði 2.3 sem Nexus one var með
farið bara á
http://www.xda-developers.com/ og finnið ykkar síma
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 09:14
af toybonzi
halli7 skrifaði:Kannski var ég bara með gallað eintak, en eftir að ég fékk mér Iphone er ég mjög sáttur og bíð bara spenntur eftir iphone 5
iPhone 5 er búinn að tapa stríðinu áður en hann kemur út. En það er alveg rétt hjá þér með stýrikerfið. IOS er stýrikerfi fyrir gamalt fólk og fólk sem er ekki tæknilega sinnað. Android er fyrir þá sem að vilja ferskt útlit sem að tekur sífelldum breytingum, öflugan app markað þar sem leyfilegt er að fara ótroðnar slóðir og þar að auki útlit sem að að mínu mati skilur iPhone eftir í duftinu....sbr Galaxy II. En því miður er þá það líka þannig að meiri vandamál eru í android en ios, en það er bara sá fórnarkostnaður sem fólk verður að sætta sig við (ennþá). IOS hefur nokkur ár á það, og miðað við framfarirnar sem það er að taka mun ekki líða á löngu þar til að Apple þurfi actually að þróa eitthvað nýtt, ekki bara setja það í nýjar pakkningar
Batterisending í android símum er samt arfaslök, Apple hefur smá forskot þar!
Einu sinni langaði mig í iPhone, en núna langar mig í Galaxy II (í stað Galaxy S símans mín).............hann er hrikalega flottur.
PS: Ég tel mig ekki vera biased í þessu máli þar sem að ég hef bæði notað iphone og android, einnig á ég Macbook Pro sem að ég elska, "i take the best of both worlds"
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 09:32
af Steini B
Battery ending í Android slök vs. iphone???
Kóði: Velja allt
Samsung Galaxy S II Iphone 4
Stand-by Up to 710 h (2G) / Up to 610 h (3G) Up to 300 h (2G) / Up to 300 h (3G)
Talk time Up to 18 h 20 min (2G) / Up to 8 h 40 min (3G) Up to 14 h (2G) / Up to 7 h (3G)
Annars þá þarf ég ekki að hugsa mig tvisvar um á milli Samsung og HTC.
Mér finnst rosalega mikið um það að fólk sé að selja nokkra mánaða gamla og jafnvel vikugamla HTC síma
sem hlýtur að þýða að fólk er greinilega ekki sátt með það sem það var að kauða...
Svo eru Samsung búnir að taka sig virkilega á síðustu ár. Farnir að framleiða með gæði í fyrirrúmi í staðinn fyrir magn.
Á einn Samsung síma sem er búinn að endast í meira en 4 ár, og þar af 1 ár hjá algjörum símaböðli
Ég hef bara aðalega haldið mig við Nokia vegna þess að þjónustan hjá Hátækni er alveg til fyrirmyndar.
Nú er mig hinnsvegar farið að langa í eitthvað nýtt og þá verður Galaxy II sannarlega fyrir valinu
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 10:00
af Oak
Þetta eru bara alls ekki vasavænir símar...
Iphone svona rétt sleppur
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 10:58
af Kristján
Oak skrifaði:Þetta eru bara alls ekki vasavænir símar...
Iphone svona rétt sleppur
i hvernig buxum ert þú eiginlega?
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 11:13
af kubbur
intenz, ég myndi halda mig við n1 í svona ár í viðbót
annars það eina sem ég hef heyrt um sensation er að það er læstur bootloader á honum sem getur verið vesen
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 11:29
af wicket
Læstur bootloader á Sensation.
Maður kaupir ekki Android síma með læstum bootloader. Væntanlega verður hægt að komast framhjá þessu en þangað til er þetta no-go.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 12:27
af Oak
Gallabuxum
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 12:31
af blitz
Kristján skrifaði:Oak skrifaði:Þetta eru bara alls ekki vasavænir símar...
Iphone svona rétt sleppur
i hvernig buxum ert þú eiginlega?
Skinnypantsfaggothipster?
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 12:37
af chaplin
Oak skrifaði:Gallabuxum
=)
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 17:02
af toybonzi
Kristján skrifaði:Oak skrifaði:Þetta eru bara alls ekki vasavænir símar...
Iphone svona rétt sleppur
i hvernig buxum ert þú eiginlega?
Galaxy S II er með 4.3" skjá sem að er STÓR!
Varðandi endingu á batteríi sem gefin eru upp þá er ekkert hægt að kalla þau annað en bull. Galaxy S á að endast í nokkra daga í idle, en með lukku lifir hann í svona 30-40 tíma.....og þetta var þegar ég fékk hann úr kassanum.
Í tali, netrápi og þessu almenna stöffi sem að maður kaupir snjallsíma fyrir þá lifir hann kannski daginn! Reyndar stendur það til bóta þar sem að Samsung segja að nýji skjárinn noti talsvert minni orku þrátt fyrir að vera stærri.
Re: Samsung Galaxy S II vs. HTC Sensation
Sent: Mán 23. Maí 2011 17:39
af chaplin
toybonzi skrifaði:Varðandi endingu á batteríi sem gefin eru upp þá er ekkert hægt að kalla þau annað en bull. Galaxy S á að endast í nokkra daga í idle, en með lukku lifir hann í svona 30-40 tíma.....og þetta var þegar ég fékk hann úr kassanum.
Í tali, netrápi og þessu almenna stöffi sem að maður kaupir snjallsíma fyrir þá lifir hann kannski daginn! Reyndar stendur það til bóta þar sem að Samsung segja að nýji skjárinn noti talsvert minni orku þrátt fyrir að vera stærri.
Ef þú fengir síman nýjan úr kassanum, myndi slökkva á 2g/3g, þráðlausu neti, gps, bluetooth og hafa slökkt á skjánum allan tíman myndi batteríð líklegast duga nær gefnum tíma.
Eftir að ég uppfærð í Gingerbread hefur batterið hjá mér aukist all verulegu, en ég nota einnig Advanced Task Killer og WiFi/BT/GPS eingöngu virkt þegar ég þarf að nota það.