Síða 1 af 1

Vifta alltaf í gangi í Dell druslu :evil:

Sent: Lau 10. Apr 2004 01:52
af BS^
Ég er með Dell Inspiron 8500 fartölvu, reyndar seinni tölvan mín þar sem sú síðasta var með einhverju hátíðni suði sem fór brjálað í taugarnar á mér og fékk ég að skipta henni eftir mikið vesen og læti.
Allavegna ég er með þessa Dell druslu og hún virkar þannig að viftan er ALLTAF í gangi, alveg sama hversu mikið eða lítið ég er að gera :evil:

Svarið frá EJS er að þetta eigi að vera svona.
Nú er mín spurning; eru fleir sem kannast við þetta, að mínu mati er þetta ósættanlegt þegar ég er að læra með tölvuna suðandi við hilðina á mér. Það væri nú gaman ef hún mundi þegja allavegna á meðan ég er ekki að nota hana.

Sent: Þri 13. Apr 2004 10:47
af NortherWooD
Slökktu bara á henni þegar þú ert ekki að nota hana.

Sent: Þri 13. Apr 2004 11:03
af vjoz
ef þetta er svona á öllum svona tölvum þá er ekkert sem þú getur gert nema að tékka á task.is - þeir gætu tweakað hana eitthvað...

annars er séns að þetta sé í Biosnum, eitthvað með viftuhraða eða gráður ...

v.

Sent: Þri 13. Apr 2004 15:35
af Spirou
Farðu á http://www.dell.com og leitaðu á support forums. Þar eru spurningar og svör um allt sem getur komið upp í sambandi við þessar fartölvur.

Ég hef sjálfur notað þetta forrit til að fylgjast með viftunum og reyna að hafa hemil á þeim.
http://www.diefer.de/i8kfan/

Sent: Mið 14. Apr 2004 01:42
af BS^
Takk fyrir þessa ábendingu um forritið Spirou. Þetta á eftir að nýtast mér vel. Það var einmitt eitthvað svona sem ég þurfti :)

Sent: Mið 26. Maí 2004 15:01
af FrankC
þetta forrit er æðislegt, ég er búinn að vera að nota það á minni Latitude D800 í marga mánuði