Síða 1 af 1

Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:15
af DoofuZ
Ef maður ætlar að geyma fartölvu í hálft ár hvernig er þá best að geyma hana? Bara setja hana inní einhvern skáp eða er betra að pakka henni inní eitthvað? Setja hana kannski í fartölvutösku og svo inní skáp? Og hvað með batteríið? Ég sá einn gamlan þráð hérna þar sem er talað um að það sé best að geyma það á köldum stað við 40% hleðslu, er þá betra að geyma það þannig eitt og sér eða er í lagi að hafa það í fartölvunni?

Málið er að systir mín er að fara til útlanda í hálft ár eða svo og vantar s.s. að vita hvernig er best að geyma tölvuna á meðan en eins og er þá er planið hjá henni að setja hana í kassann sem hún var í og setja kassann svo bara inní skáp. Einhver með betri hugmynd? :-k

Re: Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:27
af Klemmi
Betra að taka rafhlöðuna úr tölvunni, annars drainar vélbúnaður tölvunnar batterýið smátt og smátt.

Sweet-spottið sem maður hefur heyrt um er 30-40% hleðsla og á köldum frekar en heitum stað, ekki verra að vefja einhverjum klút/litlu handklæði utan um rafhlöðuna.

Re: Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:28
af dori
Í stuttu máli: 40-60% hleðsla á köldum og þurrum stað. Kaldur staður gæti verið ísskápur en þá er rakamyndum vesen sem þarf að leysa. Ég myndi bara hlaða tölvuna, tæma niður í ~50% og taka hana svo úr tölvunni og setja hliðiná (hugsanlega allt í lagi að hafa hana í, ég nenni ekki að hugsa um það núna).

Svo er fín hugmynd að taka tölvuna fram eins og einu sinni á þessu tímabili og hlaða aftur og tæma niður í ~50%.

Re: Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:30
af Sphinx
dori skrifaði:Í stuttu máli: 40-60% hleðsla á köldum og þurrum stað. Kaldur staður gæti verið ísskápur en þá er rakamyndum vesen sem þarf að leysa. Ég myndi bara hlaða tölvuna, tæma niður í ~50% og taka hana svo úr tölvunni og setja hliðiná (hugsanlega allt í lagi að hafa hana í, ég nenni ekki að hugsa um það núna).

Svo er fín hugmynd að taka tölvuna fram eins og einu sinni á þessu tímabili og hlaða aftur og tæma niður í ~50%.


x2 kveikja á henni kanski mánaðarfresti

Re: Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:32
af Klaufi
dori skrifaði:Í stuttu máli: 40-60% hleðsla á köldum og þurrum stað. Kaldur staður gæti verið ísskápur en þá er rakamyndum vesen sem þarf að leysa. Ég myndi bara hlaða tölvuna, tæma niður í ~50% og taka hana svo úr tölvunni og setja hliðiná (hugsanlega allt í lagi að hafa hana í, ég nenni ekki að hugsa um það núna).

Svo er fín hugmynd að taka tölvuna fram eins og einu sinni á þessu tímabili og hlaða aftur og tæma niður í ~50%.


Tæma hana alveg áður en þú hleður hana aftur.

Re: Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:32
af Klemmi
www.powerstream.com skrifaði:Panasonic Lithium Ion Battery Storage:

The batteries should be stored at room temperature, charged to about 30 to 50% of capacity. We recommend that the batteries be charged about once per year to prevent overdischarge.

PowerStream Note: Test data confirms that storage of lithium-ion batteries is best if the cell is partially discharged. In one test by Cadex Electronics ( http://www.buchmann.ca ) after 1 year storage at 25°C the non-recoverable capacity remaining is 96% when stored at 40% initial charge level, but only 80% if stored with 100% initial charge level. This effect is reduced at lower temperature and is a non-issue at 0°C. At higher temperatures the effect is much worse. Cadex's recommendations are to store below 15° C at 40% of full charge (3.5 volts per cell). Our experience is that with cells stored at room temperature for 3 years that the non-recoverable capacity did not decrease, so this is probably manufacturer dependent.

Re: Geymsla á fartölvu og batteríi í langan tíma

Sent: Mið 30. Mar 2011 00:36
af dori
klaufi skrifaði:Tæma hana alveg áður en þú hleður hana aftur.
Já, það er rétt... :P Það er svo margt í þessu dóti að það er erfitt að muna það allt...

Þetta er samt solid:
http://batteryuniversity.com/learn/arti ... _batteries